Heilsuvernd - 01.06.1967, Qupperneq 13
Heilbrigði verður ekki keypl fyrir peninga
FullyrSingin í yfirskrift þessarar greinar kann að þykja hæpin. Aldrei
hefir verið meira fé varið til lækninga en nú. Lyfjabúðir blómgast. Að-
sókn að sjúkrahúsum og hælum eykst, og sjúku fólki fjölgar. Biðstofur
lækna eru fullar, og sjúklingar þurfa að bíða þar klukkustundum sam-
an. Þeir eiga heimtingu á ódýrri eða ókeypis læknishjálp og sjúkra-
húsvist, því að þeir greiða til sjúkrasamlags síns iðgjöld, sem fara sí-
hækkandi, af því að allur tilkostnaður eykst smámsaman, m. a. lyfja-
kostnaður. Daglega fá læknar sýnishorn og auglýsingar um ný lyf frá
lyfjaverksmiðjunum, en þær halda uppi mjög kostnaðarsamri tilrauna-
starfsemi í þeim tilgangi að framleiða ný og betri Iyf, sem eru oft miklu
dýrari en þau eldri, en ekki alltaf að sama skapi gagnlegri. Gömlu
verkja- og svefnlyfin kosta ekki nema nokkrar krónur venjulegur
skammtur, en mörg nýrri lyf, svo sem sum fúkalyf, cortisonlyf og hor-
mónalyf, mörg hundruð krónur. Sumir sjúklingar þurfa að nota dýr
lyf mánuðum og árum saman. Og þá eru margar læknisaðgerðir ó-
hemju dýrar, og ýmis langvarandi meðferð innan eða utan sjúkrahúsa
kostar mikið fé. Hluta af öllum þessum útgjöldum greiða sjúkrasamlög-
in, ríki eða bæjarfélög.
Sem betur fer bera þessar aðferðir oft árangur, svo sem í ýmsum
sjúkdómum af völdum sýkla, sem hægt er að eyða með lvfjum. Á hinn
bóginn eru margir sjúkdómar þess eðlis, að engin lyf né læknisaðgerðir
fá úr þeim bætt. Dæmi þess er verksmiðjueigandi, 51 árs að aldri, sem
kom til höfundar þessarar greinar og kvartaði um óþægindi fyrir hjarta,
mæði og svefnleysi. Hann var of feitur, hafði háan blóðþrýsting, og
aðrar rannsóknir sýndu, að starfsemi hjarta og lungna var mjög ábóta-
vant. En matarlystin var góð, hann var þorstlátur og slökkti þorstann
með áfengum drykkjum. Og hann var kominn með sykursýki. Hann
hafði lengi reykt, allt að 30 til 40 sígarettur á dag. En af ótta við krans-
æðastíflu hafði hann dregið verulega úr reykingum. Hann hafði aldrei
tekið sér frí í 15 ár, sunnudaga hafði hann einnig unnið. Hann hafði
HEILSUVERND
77