Heilsuvernd - 01.06.1967, Blaðsíða 20
Aðalfiindur Ml'It
Aðalfundur Náttúrulækningafélags Reykjavíkur var haldinn í matstofu
félagsins í Hótel Skjaldbreið miðvikudaginn 10. maí og hófst kl. 21.
Formaður félagsins, Njáll Þórarinsson stórkaupmaður, tilnefndi sem
fundarstjóra Klemens Þórleifsson kennara og flutti síðan skýrslu stjórn-
arinnar og las reikninga í fjarveru gjaldkera. Árni Ásbjarnarson for-
stjóri las reikninga matstofunnar og skýrði frá rekstri hennar, sem hefir
ekki gengið eins vel og æskilegt hefði verið, en margt benti til þess, að
breyting til bóta væri í aðsigi. Umræður urðu miklar um skýrslu stjórn-
arinnar og önnur félagsmál, og að þeim loknum voru reikningarnir
samþykktir.
Ur stjórn áttu að ganga Njáll Þórarinsson og Böðvar Pétursson. Gáfu
þeir ekki kost á sér til endurkosningar, og voru í stað þeirra kosnir til
tveggja ára Guðmundur Erlendsson löggiltur endurskoðandi og Valgeir
Magnússon verkamaður. í stjórn eru auk þeirra Anna Matthíasdóttir
símastúlka, Björn L. Jónsson læknir og Helga Vigfúsdóttir hjúkrunar-
kona. 1 varastjórn voru kosnar Bryndís Steinþórsdóttir húsmæðrakenn-
ari, frú Gunnhildur Ryel og frú Steinunn Magnúsdóttir. Endurskoðend-
ur voru kosnir Björn Kristjánsson stórkaupmaður, Marinó Stefánsson
kennari og Njáll Þórarinsson stórkaupmaður til vara.
Félagsgjöld voru ákveðin 100 krónur og ævifélagsgjöld 1000 krónur.
Að fundinum loknum voru bornar fram veitingar.
Anna Matthíasdóttir.
Vcrkaskipting stjórnar Mi’Il
Á fyrsta fundi sínum skipti stjórn NLFR þannig með sér störfum: Anna
Matthíasdóttir formaður, Björn L. Jónsson varaformaður, Guðmundur
Erlendsson ritari, Helga Vigfúsdóttir gjaldkeri, Valgeir Magnússon
vararitari.
84
IIEILSUVERND