Heilsuvernd - 01.12.1971, Síða 4
JÓNAS KRISTJÁNSSON LÆKNIR
Bardagaaðferðir
gegn foerkla-
veikinni
Allir vita nú, að berJcla-
veikin er noemur sjúkdómur.
En hitt er lika jafnáreiðan-
legt, að ýmis ytri skilyrði
hafa áhrif á þetta næmi, eða
á vvðnám gegn henni. Menn-
ingarþjóðimar hafa átt í
stríði við berklaveikina. Ekki
í þrátíu ára stríði, heldur í
fimmtíu ára stríði, og meira
þó. Viðureign frá læknis-
fræðinnar hálfu hefir mest
snúizt á þá sveif að eyði-
leggja berklasýkilinn og verj-
ast á þann hátt hinum ósýni-
lega óvini. En árangurinn hef-
ir vægast sagt verið fremur
lítitt.1)
Reynt hefir verið að finna
og nota lyf, sem berklasýkill-
inn væri viðkvæmur fyrir og
dreya hann í mannsholinu.
En hingaö til hafa þær til-
raunir verið árangurslitlar.
Aftur á móti hefir notkun sól-
arljóss og ýmissa geisla gefið
góða raun. Menn héldu fyrst,
að lækning með þessum Ijós-
um stafaði af því, að geislarn-
ir dræpu sýklana. En svo er
ekki. Sólarljósið styrkir lík-
amann og eykur lífsþróttinn
og viðnám til þess að stand-
ast vöxt og árásir sýklanna.
Þarna virðist því vera stefnan
að sigurmarkinu, fólgin i því
að styrkja og auka lífskraft-
164
HEILSUVERND