Heilsuvernd - 01.12.1971, Page 14

Heilsuvernd - 01.12.1971, Page 14
Aðalfundur Pöntunarfélags NLFR Aðalfundur Pöntunarfélags Náttúrulækningafélags Reykjavíkur var haldinn í Matstofu NLFR föstudaginn 22. okt. 1971 og hófst kl. 21. Formaður félagsins, Hafsteinn Guðmundsson prentsmiðjustjóri, setti fundinn og tilnefndi sem fundarstjóra Björn L. Jónsson lækni og sem fundarritara Friðgeir Ingimundarson bókhaldara. Formaður gerði grein fyrir starfsemi stjórnarinnar frá síðasta aðalfundi. Hið markverðasta er stofnun nýrrar verzlunar að Sól- heimum 35, sem var opnuð hinn 1. marz 1971 (sjá 4. hefti Heilsu- verndar), og naut hún aðstoðar stjórnar NLFÍ til þess að koma verzluninni á fót. Ásbjörn Magnússon verzlunarstjóri lagði fram reikninga, sem sýndu lítilsháttar tekjuafgang, enda þótt nokkur halli væri á brauðgerðinni. Nokkrar umræður urðu um skýrslu formanns og reikninga, sem voru síðan samþykktir. Úr stjóm félagsins áttu að ganga Ámi Ásbjarnarson og Zóph- onías Pétursson, en voru báðir endurkjörnir til þriggja ára. Stjórn félagsins skipa nú: Árni Ásbjamarson, Ásta Jónasdóttir, Eggert V. Kristinsson (tilnefndur af stjórn NLFR), Hafsteinn Guðmunds- son og Zóphónías Pétursson. Varastjórn: Anna Matthíasdóttir, Eiður Sigurðsson og Friðgeir Ingimundarson. Endurskoðendur: Hilmar J. Norðfjörð og Eiður Sigurðsson. 174 HEILSUVERND

x

Heilsuvernd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.