Heilsuvernd - 01.12.1971, Page 21
PÁLlNA R. KJARTANSDÓTTIR
HOSMÆÐRAKENNARI
Uppskriftin
Ostakex
250 g haframjöl 250 g heilhveit 1 egg
100 g púðursykur 250 g smjörlíki 1 tesk. salt
200 g rifinn ostur 1 tesk. lyftiduft
Hnoðað deig. Flatt fremur þunnt út, stungið með gaffli, kökur
mótaðar með vatnsglasi og bakað við 225°C.
Allbranbrauð
2 bollar allbran 2 bollar heilhveiti
1 bolli púðursykur 2 bollar mjólk
2 tesk. lyftiduft 1 bolli rúsínur
Allbran og sykur er látið liggja í bleyti í mjólkinni í eina klukku-
stund, áður en hveiti og lyftidufti og rúsínum er bætt út í. Bakað
í jólakökumóti við 180°C.
Konfektkaka
3 egg 100 g púðursykur
100 g saxaðar valhnetur 100 g saxað suðusúkkulaði
1 matsk. heilhveiti
Egg og sykur er þeytt vel saman, þar til það verður að léttri
froðu, hnetum og súkkulaði blandað saman við, og síðast er heil-
hveitið sigtað út í deigið. Bakað í springmótum, og er þetta hæfi-
legur skammtur í tvö mót. Hiti 180 - 200°C.
Þegar kökurnar eru oðnar kaldar, er látið á milli botnanna
1 niðursneiddur banani og þeyttur rjómi.
Glassúr. 6 msk. púðursykur, 2 msk. sýróp og 1 dl rjómi er soðið
saman og 1 msk. smjör síðan sett út í. Þessu er hellt yfir tertuna
og skreytt með valhnetum.
HEILSUVERND
181