Heilsuvernd - 01.10.1974, Síða 9
enn, ná tiltölulega fáir hitabeltisbúar háum aldri. En þeir sem
komast á efri ár eldast seint og sýna minni ellimörk en íbúar
tempruðu beltanna.
Hverju sætir nú það, að hitabeltisbúar eru seinþroska og eldast
seint? Hvorttveggja á sér eina og sömu orsök: Efnaskipti þeirra
eru hægari en meðal íbúa tempruðu beltanna. Þegar Evrópumenn
dvelja langvistum í hitabeltinu, stillir líkami þeirra sig smám-
saman inn á hægari efnaskipti í því skyni að draga úr hitafram-
leiðslu sinni. Þetta tekur nokkrar vikur, en eigi að síður gengur
mönnum illa að venjast hitanum. Þeim er alltaf hættara við hinu
lífshættulega hitaslagi en innfæddum mönnum, vegna þess að
efnabruninn er ör og hitaframleiðsla líkamans því meiri en skyldi.
Menn verða latir og værukærir í miklum hitum. Tilraunir hafa
sýnt að þá gengur mönnum illa að læra, samanber rottutilraun-
irnar sem lýst var hér á undan. Og í sumarhitum eru einkunnir
námsmanna lægri en ella.
Um ýmsa sjúkdóma. Sjúklinga með æðakölkun og háan blóð-
þrýsting ætti að vista í hitabeltinu, því að þar ber tiltölulega
lítið á þessum hættulegu kvillum. Sama er að segja um bólgur í
nef- og ennisholum sem virðast tíðastir í löndum með stormasamt
veðurfar, og liðagigt, sem versnar í illviðrum, og ýmsa sjúkdóma í
öndunarfærum.
Öðru máli gegnir um ýmsa smitsjúkdóma. Eins og fyrr er sagt,
reyndust rottur aldar upp í hitabeltisloftslagi viðkvæmar fyrir
sýklum. Á sama hátt virðast t.d. hermenn úr hitabeltislöndunum
hafa litla mótstöðu gegn sjúkdómum eins og lungnabólgu, kvefi
og öðrum umferðasóttum. Mótstaða gegn berklum er einnig næsta
lítil meðal hitabeltisbúa. Varast skyldi þó að flytja berklasjúklinga
úr hitabelti í veðrasöm lönd tempruðu beltanna, því að það mundi
oftast ríða þeim að fullu. í tempruðu beltunum er holdsveiki hæg-
fara sjúkdómur og lítt smitandi, öfugt við það sem er í hitabeltinu.
Á hinn bóginn benda skýrslur fjölda lækna ótvírætt til þess,
að krabbamein, botnlangabólga, magasár og margir svonefndir
,,menningarsjúkdómar“ séu sjaldgæfari í hitabeltinu en í tempr-
uðu beltunum. Athuganir hafa sýnt, að botnlangabólga er tíðari
HEILSUVERND
129