Heilsuvernd - 01.10.1974, Síða 18
Hve hár á stóllinn aö vera?
Mönnum heíir lengi verið ljós þýðing þess að fólk sitji rétt
í sætum sínum. Eitt fyrsta skilyrði fyrir því er rétt gerð stólsins,
þar á meðal hæð setunnar frá gólfi og lögun baksins. Af mistökum
í þessum efnum verða margskonar truflanir á líffærum og störf-
um þeirra. Sitji menn skakkir tímunum saman, getur af því leitt
skekkjur í hrygg og mjaðmargrind og þrýstingur á innri líffæri,
bæði í brjóstholi, kviðarholi og grindarholi með truflunum á
starfi hjarta, lungna, meltingarfæra og líffæra konunnar í grindar-
holinu, ásamt erfiðleikum um meðgöngutímann og við fæðingar.
Þetta hefir líka í för með sér margskonar óþægindi í liðum og
vöðvum, bæði í ganglimum, mjaðmargrind, baki, hálsi, höfði og
handleggjum. I barnaskólum er hæð borða og stóla misjöfn eftir
aldri barna, og er þar miðað við meðalhæð barna í hverjum aldurs-
flokki, eða þannig ætti það að vera. En sjaldnast mun þá vera
tekið tillit til þeirra barna, sem eru til muna hærri eða lægri en
meðaltalið.
Nýlega hefir þýska tímaritið Reform-Rundschau sagt frá at-
hugun, sem gerð var meðal skrifstofufólks sem situr allan daginn
við vinnu sína. Kom þar í ljós, að þeir sem sitja í stólum af rangri
hæð kvarta oft um bakverki að kvöldi, þegar heim kemur, eru
leiðir í skapi og daufir til ásta. Vísindamenn þeir sem stjórnuðu
rannsókninni héldu því fram að þetta gæti skert starfsþrek um
30 til 40%, m.a. vegna truflana á blóðrás.
Niðurstaðan af þessum athugunum var sú að hæfileg hæð stól-
setunnar sé sem hér segir:
Líkamshæð 160 til 165 cm Stólhæð 42 til 45 cm.
165 — 170
170 — 175
175 — 180
45 — 48
48 — 52
52 — 56
138
HEILSUVERND