Heilsuvernd - 01.10.1974, Side 22
Á víö og dreiff
Hverjir varast skuli heit böð
Heit böð eru mörgum góð og
gagnleg. Sumir þola þau illa, og
stundum eru þau beinlínis hættu-
leg. Þetta gildir fyrst og fremst um
sjúklinga með sjúkdóma í hjarta
og hjartaæðum (kransæðum) og
háan blóðþrýsting. Þá eiga sjúkl-
ingar með gigtsótt (febris rheuma-
tica) og með venjulega liðagigt
(arthritis rheumatoides) ekki að
taka heit böð, þegar gigtarköst
standa yfir. Milli kasta er öðru
máli að gegna, og þeir sem haldnir
eru hinni algengu gamalmennagigt
(arthrosis) eða slitgigt, sem sér-
staklega er algeng í mjöðmum,
hnjám og baki, hafa einmitt gott af
heitum böðum, ef engin tormerki
eru á að öðru leyti. Þá eiga sjúk-
lingar með flogaveiki, lamariðu
(Parkinsonismus) og heila- og
mænusigg (multiple sclerosis) að
sneiða hjá heitum böðum. Sama
gildir um berklasjúkt fólk og
skjaldkirtilsjúkdóma, þegar um er
að ræða ofstarfsemi skjaldkirtils-
ins, svo og þungaðar konur og upp-
dráttarsýki (Cachexia).
(Or grein eftir próf. dr. med.
F. Ditmar í Der Deutsche
Badebetrieb)
Kaffi truflar svefninn
Rannsóknir gerðar nýlega við
stofnun eina i Edinborg hafa leitt
í ljós að kaffineysla styttir svefn-
tímann um tvær klukkustundir að
meðaltali. Þeir sem fengu kaffi við
þessar tilraunir voru auk þess um
klukkutíma lengur að sofna, svefn
þeirra var óværari, og þeir voru
við og við að vakna. Þetta gildir
þó ekki fyrir sumt gamalt fólk
sem verður gott af kaffi fyrir
svefn, sennilega vegna þess að
kaffið örvar blóðrás til heilans, en
ónóg blóðsókn til heila getur ein-
mitt haft svefntruflanir í för með
sér. (Or Hálsa)
Vindlareykingar hættulegar
Viðtækar rannsóknir hafa sýnt,
að lungnakrabbi er miklu sjald-
gæfari hjá fólki sem reykir vindla
eða pípu heldur en meðal þeirra
sem reykja sígarettur. Munurinn
stafar af því, að vindla- og pípu-
reykingamenn soga reykinn yfir-
leitt ekki niður í lungun að neinu
ráði. Hafa því margir hætt að
reykja sígarettur en tekið að reykja
vindla eða pípu í þeirri sælu trú,
að nú sé þeim óhætt. En nú er ný-
lega skýrt frá því I ameríska tíma-
ritinu „Let us Live“, og heimild
þess er enska læknablaðið „The
Lancet", eitt þekktasta læknablað
í heimi, að rannsóknir hafi leitt í
ljós, að þeir sem breyti þannig til
haldi yfirleitt áfram að reykja „of-
an í sig“, eins og það er kallað, og
að þeim sé enn meiri hætta búin
af vindlum en af sígarettum.
142
HEILSUVERND