Feykir


Feykir - 29.01.2020, Side 3

Feykir - 29.01.2020, Side 3
FRÓÐLEIKUR FRÁ BYGGÐSAFNI SKAGFIRÐINGA Inga Katrín D. Magnúsdóttir skrifar Um veðurboða Í morgun leit ég yfir veðurspá næstu viku, sem varla er í frásögu færandi, en fór í kjölfarið að velta fyrir mér hvernig fólk spáði fyrir um veður fyrir tíma veðurfrétta. Eftir umhleypingasamar vikur vitum við hvað það getur verið þægilegt og jafnvel nauðsynlegt að vita á hvaða veðri er von. Við erum gjörn á að tengja atburði og skapa úr þeim einhverskonar flæði þar sem eitt leiðir af öðru. Við klæðumst ákveðnum sokkum og uppáhalds íþrótta- liðið okkar vinnur. Af því leiðir að við verðum að klæðast þessum ákveðnu sokkum næst þegar liðið spilar því nú eru þeir orðnir happaklæði. Veðurspá fyrri alda var að sumu leyti lík þessum þanka- gangi. Ef veður er svona þennan daginn, þá verður það svona í framhaldinu. Ef dýrin haga sér á ákveðinn hátt í þessu veðri, þá hlýtur sama hegðun að vera forspá næst. Jónas Jónasson frá Hrafnagili nefnir í bókinni Íslenskir þjóðhættir að stórviðri á nýársdag boði mikla storma, og „[e]ftir veðri á Knútsdag (7. jan.) á að viðra eftir vertíð á vorin.“1 Góðir veðurdagar fyrst og síðast í janúarmánuði þóttu jafnframt góðs viti fyrir veturinn. Eftir veðri á Pálsmessu, 25. janúar, viðrar í apríl- mánuði, sólskin boðaði þá frjósamt ár en dögg þykkviðri og snjókomu. Þoka boð- aði margvíslegan gróða, en votviðri kall- aði á votviðrasamt sumar og haust.2 Veðurbrigði mátti ennfremur lesa úr hegðun dýra, sem þóttu næm fyrir breytingum í umhverfinu. Þvægi heim- iliskötturinn sér upp fyrir hægra eyra á vetrardag var hláka í nánd. Teygði hann sig og hleypti klónum fram, og ef gamlir kettir léku sér, gat stormur verið í vændum. Ef kettir rifu tré, þ.e.a.s. brýndu klærnar á timbri boðaði það stórhríð að vetri en hrakviðri á sumri.3 Hegðun fugla gat verið vísbending um veðrið, ekki síður en heimilisdýr- anna. Ef rjúpur leituðu til byggða á haustin mátti búast við leiðindaveðri, sem og ef þær voru styggar og ólmar að tína.4 Lómurinn þótti sérstaklega málgur varðandi veður og ákveðin hljóð höfðu þá sérstaka meiningu. Þegar hann gagg- aði „þurrka traf“ vissi á þurrk, en hann vældi „marvott“ ef von var á vætu.5 Krummi var talinn veðurglöggur og þegar bomsaði einkennilega í honum í votviðri var von á þurrki (sumstaðar var sagt að þá væri þerrihljóð í krumma), en ef gutlaði í krumma („ber vatn í nefinu) var von á votviðri.6 Hegðun hrafna á flugi gat sagt til um veður. Þá þurfti að taka eftir úr hvaða átt þeir flugu, hvort þeir sneru að manni nefi eða stéli og hvernig þeir höguðu sér í nágrenni við heimilin.7 Veður mátti stundum lesa úr tunglgangi og vikudögum: „Þá er nú ekki sama, á hvaða dag tungl kviknar. Þannig trúa því ýmsir, að mánudagatungl og þriðjudagatungl, einkum mánudaga- tungl, verði annaðhvort verstu eða beztu tungl […]. Sjaldan átti að bregðast bloti á mánudagstungli […]. Þá hefir og verið sagt, að oftast viðri hvert tungl eftir því, sem viðrað hefir næsta fimmtudag á undan því, er það kviknaði, og næsta mánudag á eftir. Það hlýtur að eiga við tungl, sem kviknar milli fimmtudags og mánudags.“8 Ljóst er að það var mikil list og að mörgu að hyggja þegar kom að lestri veðurs í náttúru og umhverfi. Nánar má lesa um veðurboða í Smáriti Byggðasafns Skagfirðinga XXIV Blikur á lofti: Gamlir veðurboðar og veðurorð. Ritið má finna í safnbúðinni okkar í Gilsstofu og á heimasíðu safnsins. Heimildaskrá 1. Jónas Jónasson, Íslenskir þjóðhættir (1934). (Einar Ólafur Sveinsson bjó til prentunar). Bókaútgáfan Opna, Reykja- vík. Bls. 132. 2. Sama heimild. Bls. 132. 3. Sama heimild. Bls. 141. 4. Sama heimild. Bls. 141. 5. Sama heimild. Bls. 142. 6. Sama heimild. Bls. 143. 7. Sigríður Sigurðardóttir. Blikur á lofti: Gamlir veðurboðar og veðurorð (2018). Smárit Byggðasafns Skagfirðinga XXVI. Bls. 9. 8. Sama heimild. Bls. 145. Útskorinn hrafn (BSk 2018:15) gætir gamla bæjarins í Glaumbæ. Hrafninn var skorin út og gefinn til safnsins af Vestur-Íslendingnum Einari Vigfússyni. Amma Einars og langamma voru fjósakonur í Glaumbæ á 19. öld. Krummi þessi er nú orðvar þegar kemur að veðurspádómum. www.skagafjordur.is Til foreldra og forráðamanna Nú er tími þorrablótanna genginn í garð þar sem fólk kemur saman til að skemmta sér, borða þorramat og dansa inn í nóttina. Á þessum skemmtunum er áfengi gjarnan haft um hönd og viljum við því hvetja ykkur, kæru foreldrar og forráðamenn, til þess að taka meðvitaða ákvörðun um hvort unglingar eigi almennt heima á slíkum skemmtunum. Gleymum ekki að ábyrgð foreldra/forráðamanna nær til 18 ára aldurs og að aldurstakmark áfengisneyslu er 20 ár. Hvert ár sem beðið er með að smakka áfengi skiptir miklu máli þegar litið er til þroska einstaklinga og alvarlegra afleiðinga áfengisneyslu. Stöndum saman í því að sýna ábyrgð og munum að það er okkar að hugsa um heilsu og framtíð einstaklinga í okkar umsjá! Forvarnarteymi Sveitarfélagsins Skagafjarðar Krækjur áfram í 2. deild Helgina 18. og 19. janúar fór fram önnur törnering af þremur á Íslandsmóti í blaki í íþrótta-miðstöðinni Varmá hjá Aftureldingu. Krækjurnar spila í 2. deild annað árið í röð eftir að hafa afþakkað sæti í þeirri fyrstu þar sem keppnisfyrir- komulag hentaði ekki liðinu. Í 2. deild leika tólf lið og í fyrstu tveimur mótunum spila allir við alla, ellefu leiki samtals. Á þriðju og síðustu keppnishelg- inni fara fram A og B úrslit þar sem A riðill keppir um hverjir fara upp um deild og í B riðli þar sem barist er um að halda sér í deildinni en tvö neðstu liðin falla niður í 3. deild. Krækjurnar sátu í 2. sæti fyrir mótið í Mosfellsbænum á eftir toppliði Sindra frá Höfn í Horna- firði eftir að hafa unnið alla sína sex leiki á fyrstu törneringunni fyrir áramót. Þær voru því í góðri stöðu. Það voru þær Elsche Oda Apel, Vala Hrönn Margeirsdóttir, Valdís Ýr Ólafsdóttir, Sandra Íslandsmótið í blaki Hilmarsdóttir, Una Aldís Sig- urðardóttir, Helga Fanney Sal- mannsdóttir, og Claudia Wilke sem fóru að þessu sinni. „Við spiluðum fimm leiki þessa helgi. Á laugardaginn spil- uðum við þrjá þar sem við unnum ÍK og Þrótt Reykjavík örugglega 2-0 og síðasti leikur dagsins var svo gegn topp liði Sindra og var það hörku spenn-andi leikur sem endaði með 2-1 sigri hjá Krækj- um. Á sunnudeg-inum spiluðum við tvo leiki, fyrri leik-urinn var öruggur sigur gegn Bresa. Við töpuðum svo síðasta leiknum 1-2 naumlega í odda-hrinu á móti Ými B sem er í 3. sæti,“ segir Sandra Hilmarsdóttir. Krækjur sitja sem fastast með 28 stig í 2. sæti og spila í A úrslitum. /PF Kátar Krækjur á blakmóti í Mosfellsbæ. MYND AF FB SÍÐU KRÆKJANNA 04/2020 3

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.