Feykir


Feykir - 29.01.2020, Side 4

Feykir - 29.01.2020, Side 4
Öflug byggð um landið er hornsteinn heilbrigðs þjóðfélags. Landsbyggðin á ekki að vera í bakgarði byggðar- innar. Heldur styður hvað annað svo allir fái að njóta. Það er líka hluti af þjóðar- öryggi okkar að efla atvinnu og grósku um allt land. Öflug matvælafram- leiðsla er grunnur að sjálfbærni þjóðar og til að hún geti þrifist þarf önnur starfsemi að blómstra líka. Nýsköpun, vísindi og listir. Byggðaáætlun – verkfæri sem virkar Á vordögum 2018 var aðgerðaáætlun í byggðaáætlun samþykkt sem Sigurður Ingi samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra lagði fram. Áætlunin lýsir stefnu ríkis- ins í byggðamálum og er ætlað að stuðla að jákvæðri þróun byggða og að efla samkeppnishæfi þeirra sem og landsins alls. Meginmark- mið hennar er að jafna búsetu- skilyrði og stuðla að sjálfbærri þróun byggðalaga um allt land. Aðgerðaáætlun í byggðaáætlun er verkefni sem sannlega hljómar vel við þann vilja sem Framsóknar- flokkurinn lagði af stað með í kosningabaráttuna 2017. Því var AÐSENT | Halla Signý Kristjánsdóttir skrifar Mikilvægi byggðaaðgerða Golfklúbbur Skagafjarðar hefur starfað frá árinu 1970 og verður því 50 ára á árinu 2020. GSS gegnir mikilvægu hlut- verki í Sveitarfé- laginu Skagafirði. Í fyrsta lagi fer fram öflugt barna- og unglingastarf í klúbbnum, í öðru lagi hentar golf sem áhugamál, félagsskapur og heilsubót fyrir fólk á öllum aldri og síðast en ekki síst er golf hluti af ferðamennsku og golfarar heimsækja Skagafjörð gagngert til þess að spila golf. Um mitt sumar 2019 voru 167 félagar skráðir í GSS og hafði fjölgað um 13 frá árinu áður. Barna- og unglingastarf Barna og unglingastarf er blómlegt og fer vaxandi. Sumaræfingar eru á virkum dögum í júní – ágúst og á veturna eru inniæfingar. Þjálfarar okkar eru reyndir golfarar í GSS og einnig fáum við PGA kennara í heimsókn. Langtímamarkmið í þjálf- un barna og unglinga er að skapa áhuga á golfíþróttinni og íþróttum almennt, sem endist ævilangt. Mikil áhersla er lögð á gott félagsstarf og í tilefni afmælisárs verður farið í æfingaferð til Danmerkur í sumar. Nýliðun og mótahald GSS er góður félagsskapur sem er öllum opinn. Árlega eru haldin nýliðanámskeið á vorin. GSS hefur það að markmiði að gera inngöngu í GSS áhugaverða, með kynningu, nám- skeiðum og nýliðamótum. Nýliða- nefndin og þjálfarar á nýliðanámskeiði hjálpa við skrefið frá því að vera byrjandi yfir í það að spila reglu- lega á Hlíðarendavelli. Mótahald skipar stóran sess í starfi klúbbsins. Árlega eru haldin a.m.k. sex opin mót og yfir 20 innanfélagsmót. Auk þess starfar GSS með UMFÍ/UMSS að undir- búningi og framkvæmd lands- móta. Völlur og starfsmenn Hlíðarendavöllur fær einróma lof þeirra sem hann sækja. Völlurinn að Hlíðarenda er á um 29 hektara svæði, sem jafngildir yfir 60 knatt- spyrnuvöllum. Hann er með stærri íþróttamannvirkjum Skagafjarðar að flatarmáli. Staðsetning vallarins er góð, í göngufæri frá íbúabyggð og tjaldstæðum bæjarins sem hefur marga augljósa kosti. Það krefst vinnu að viðhalda vellinum og bæta. Vallar- nefnd hefur lagt fram metnaðarfulla áætlun um endurbætur á vellinum árin 2020 – 2024. Áætlunina er að finna í handbók klúbbsins á heimasíðu GSS, www.gss.is. Vallarstjórinn hefur ásamt sumarstarfsmönnum unnið afrek við að halda vellinum í góðu ástandi og tækjum gangandi. Endur- bætur á vellinum krefjast mikillar vinnu. Fjórir sumarstarfsmenn starfa á vellinum og einn starfsmaður í golfskálanum. Tveir starfsmanna vall- arins sinna einnig kennslu barna og unglinga. Starfsmenn vallarins sinna einnig slætti á íþróttasvæði Sauðár- króks og á opnum svæðum á Sauðárkróki. Golfskálinn á Hlíðarenda Félagsmenn nýta golfskálann mikið í tengslum við blómlegt mótahald og samkomur tengdar golfinu. Auk þess veitir skálinn börnum og unglingum afdrep þegar þau sækja skipulagðar æfingar hjá GSS en algengt er að börn komi með nesti að heiman fyrir matar- og kaffitíma. Yfir sumartímann er starfsmaður alla daga í skálanum sem gefur gestum upplýsingar um völlinn og Skagafjörð og innheimtir vallar- gjöld og selur léttar veitingar. Golf- klúbburinn nýtir skálann mest yfir sumarmánuðina, en hann stendur að mestu ónotaður yfir vetrarmánuðina. Sum sveitarfélög hafa farið þá leið að byggja fjölnota skála sem nýtist fyrir ýmsa starfsemi allt árið, m.a. klúbba sem ekki hafa eigin aðstöðu. Inniæfingar á veturna Í inniaðstöðu á Borgarflöt 2 er golfhermir, púttvöllur og aðstaða til að slá í net. Þar eru inniæfingar fyrir börn og unglinga á veturna. Aðrir félags- menn nýta inniaðstöðuna einnig til æfinga og mótahalds á veturna. Í norðurhluta hússins er tækjageymsla og aðstaða til viðhalds á tækjum. Goflhermirinn er nokkuð gamaldags og kominn tími á endurnýjun til að börn og unglingar fái sem besta kennslu. 50 ára afmæli GSS heldur upp á 50 ára afmælið með ýmsum hætti. Afmælisrit verður gefið út og dreift til allra heimila og fyrirtækja í Skagafirði. Þar verða greinar og viðtöl og birtur hluti af sögu klúbbsins, en saga GSS er hluti af sögu Skagafjarðar. Fleiri viðburðir verða á árinu svo sem afmælismót og afmælishóf. Nokkrir klúbbfélagar hafa tekið sig saman og stefna á golfferð til Póllands í haust. Átak verður gert í því að ná til nýbúa og stofnuð verður púttdeild sem hentar vel fyrir 70+ aldurinn. Fyrirtækjum og stofnunum stendur til boða að vera með starfsmannavið- burði á Hlíðarendasvæðinu í samstarfi við golfklúbbinn í sumar. Þar kemur ýmislegt til greina, t.d. vanur/óvanur mót, síðdegisgolfnámskeið, þrauta- braut og fleira. Framtíðin Framtíðin er björt. Golf nýtur mikilla vinsælda á Íslandi með næstflesta iðkendur samkvæmt tölum frá ÍSÍ. Golfið hefur sannað gildi sitt sem heilsubót og fjölskylduíþrótt sem hentar fólki á öllum aldri. Einnig eru mikil tækifæri í golfferðamennsku fyrir GSS og Skagafjörð. Kristján Bjarni Halldórsson, formaður GSS, formadur@gss.is AÐSENT | Kristján Bjarni Halldórsson skrifar Golfklúbbur Skagafjarðar 50 ára mikilvægt að komast að við ríkis- stjórnarborðið til að vinna því brautargengi. Fjarvinnsla á Skagaströnd Í aðgerðaáætlun má finna kafla um fjarvinnslustöðvar. Markmiðið er að koma opinberum gögnum á stafrænt form og fjölga atvinnutækifærum á landsbyggðinni. Komið verði á lagg- irnar starfsstöðvum á nánar tilgreind- um svæðum sem fái það verkefni að koma opinberum gögnum stjórnvalda á stafrænt form. Ríkið kæmi að því með því að taka þátt í að endurgreiða allt að 80% af kostnaði við hvert stöðugildi. Auglýst var eftir verkefnum til að styrkja og kom það í hlut valnefndar að ákveða hvaða verkefni yrðu valin. Að þessu sinni voru þrjú verkefni sem hljóta styrk á árinu 2019-2020. Þessi verkefni eru á Norðurlandi og eitt af þeim er verkefni sem snýr að því að gagnagrunnur sáttanefndarbóka verði myndaðar og komið á stafrænt og veflægt from. Verkefnið verður unnið af Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Skagaströnd, í samstarfi við Héraðs- skjalasafn Skagfirðinga og Þjóðminja- safnið. Þetta er styrkur allt að 31.6 m.kr. til næstu þriggja ára. Níu rannsóknarsetur Háskóla Ís- lands eru um landið og er þetta mikilvægur liður til að skapa aðstöðu til rannsókna á landsbyggðinni og skapa tengsl Háskólans við atvinnu- og þjóðlíf. Auk þess styrkja þau byggðalögin með því að skapa fjölbreytni og styrkja þannig mannauð samfélagsins. Halla Signý Kristjánsdóttir 7. þingmaður Norðvesturkjördæmis. Ungir golfarar. MYND: GSS 4 04/2020

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.