Feykir - 29.01.2020, Qupperneq 7
Gullfallegir drengir og sigurvegarar Lávarðadeildar Pollamóts 2017.
MYND: ÖGMUNDUR ARNARSON
að taka verkefnið að sér og
hófust æfingar 23. febrúar. Það
má segja að árið 1991 hafi verið
mun erfiðara í sögu Þryms en
1990. Má rekja það til árangurs
fyrra árs. Menn spurðu sig
hvort rétt hefði verið að stofna
nýtt lið sem sýndi ekki betri
árangur en raun bar vitni. Þetta
kom niður á æfingasókn hjá
leikmönnum og áhuginn fór
þverrandi eftir því sem leið á
veturinn. Sökum þess treysti
þjálfarinn sér ekki til að halda
áfram og urðu þjálfaraskipti
þann 10. mars. Ákveðið var á
stjórnarfundi að Árni Friðriks-
son tæki að sér þjálfun liðsins.
Fyrsti leikur sumarsins var
25. maí, gegn Neista, Hofsósi,
sem vann með 5 mörkum gegn
1. Úrslit sumarsins urðu sem
hér segir:
Neisti – Þrymur 5-1
Þrymur – Hvöt 1-6
HSÞ b – Þrymur 9-1
SM – Þrymur 4-2
Þrymur – UMSE b 1-4
Kormákur – Þrymur 7-0
Þrymur – Neisti 0-2
Hvöt – Þrymur 6-l
Þrymur - HSÞ b 1-8
Þrymur – SM 2-2
UMSE b Þrymur 9-0
Þrymur – Kormákur 1-4
Lokastaðan L S J T Mörk Stig
Hvöt 12 8 4 0 47-18 28
HSÞ b 12 7 3 2 41-16 24
Kormákur 12 7 1 4 34-15 22
Neisti 12 4 3 5 21-25 15
SM 12 3 3 6 19-30 12
Þrymur 12 0 1 11 11-66 1
(Ísl. knattsp.1991 bls. 81)
Þrymur fékk slæma útreið þetta
sumar og var með áberandi
slakasta liðið í sínum riðli en
samt var haldið áfram, þrátt
fyrir mikið mótlæti. Þurfti oft
að smala í leikina til að hafa
fullskipað lið. Af árangri liðsins
að segja, má hafa eftir ummæli
stjórnarinnar í ársskýrslu
UMSS 1991:
„Árangurinn verður ekki
mældur í stigum eða fjölda
marka, heldur þeim mikla
mannskap sem tók þátt í
mótinu og ánægjunni sem því
fylgdi.“
Þrymur tók þátt í héraðsmóti
UMSS í knattspyrnu þetta
sumar og betur gekk þar en í
Íslandsmótinu, því fleiri stig
náðust í viðureignum við
andstæðingana. En svona var
lokastaðan á mótinu:
UMF Tindastóll 14 stig
UMF Neisti 10 -
Þrymur 8 -
UMF Glóðafeykir 2 -
Á haustdögum var ákveðið að
stofna körfuknattleiksdeild
innan félagsins, sem hefði sér
stjórn og sjálfstæðan fjárhag
og tæki þátt í Íslandsmóti í
körfuknattleik. Þriggja manna
stjórn var kjörin:
Formaður: Halldór Ingi Steinsson
Gjaldkeri: Birgir Valgarðsson,
Ritari: Stefán Ó. Stefánsson
Ekki er ætlun mín að greina frá
starfsemi deildarinnar nánar.
En á aðalfundi félagsins þann
16. janúar árið eftir var deildin
viðurkennd í félagið. Breyta
þurfti lögum um aðalstjórn
og var samþykkt að stjórn
knattspyrnudeildar væri í senn
stjórn deildarinnar og aðal-
stjórn félagsins. Ný stjórn var
skipuð og hlutu eftirfarandi
kosningu:
Formaður: Páll Friðriksson
Varaformaður: Ragnar Kárason
Gjaldkeri: Sigrún Angantýsdóttir
Ritari: Halldór Ingi Steinsson
Meðstjórnandi: Árni Friðriksson
(Fundarg. bók)
Þriðja starfsár 1992
Eins og fyrra ár gekk illa að
finna þjálfara fyrir liðið en
mikið var pressað á Þórarin
Thorlacius að reyna aftur og
tókst að lokum að fá samþykki
hans til þess. Leikmenn voru
jákvæðir, áhuginn óx og
æfingasóknin jókst og leikið
var af krafti þótt úrslit yrðu
óhagstæð. Þó tókst Þrymi betur
upp en árið áður og fékk fleiri
stig.
Úrslit urðu þessi:
Kormákur – Þrymur 6-0
Þrymur – SM 1-1
Hvöt – Þrymur 7-0
Neisti – Þrymur 4-0
Þrymur - HSÞ b 1-5
Þrymur – Kormákur 0-4
SM – Þrymur 0-1
Þrymur – Hvöt 1-4
Þrymur – Neisti 0-6
HSÞ b – Þrymur 3-1
Lokastaðan L S J T Mörk Stig
Hvöt 10 10 0 0 33-8 30
Kormákur 10 6 1 3 23-9 19
Neisti 10 5 0 5 23-17 15
HSÞ b 10 5 0 5 23-21 15
SM 10 1 2 7 13-25 5
Þrymur 10 1 1 8 5-40 4
(Ísl. knattsp. 1992 bls. 81)
Fyrsti titill sem Þrymur fékk
var í héraðsmóti UMSS í knatt-
spyrnu. Þar kepptu þrjú lið:
Þrymur, Neisti og Tindastóll
b og vann Þrymur mótið með
sigri á Neista og jafntefli við
Tindastól b og varð þar með
héraðsmeistari.
Um mitt sumar skráðu sig
nokkrir drengir til þátttöku í
héraðsmóti UMSS í frjálsum
íþróttum og sundi. Tveir þeirra
unnu til verðlauna.
Í sundi: Keppandi Birgir Valgarðsson,
100 m bringa, 3. verðlaun.
Í frjálsum:
Keppandi Árni Friðriksson,
sleggjukast, 3. verðlaun
Á haustdögum 1992 var ákveð-
ið að færa út kvíarnar enn
meira og gefa mönnum kost á
að kynnast og æfa glímu. Þar
fór Árni Friðriksson fremstur
manna. Hann var búinn að
kynnast íþróttinni áður og
gat miðlað þekkingu sinni
til áhugasamra glímukappa
framtíðarinnar. Í janúar 1993
var svo glímudeild stofnuð og
Oddbjörn Magnússon kjör-
inn formaður. Deildin var
samþykkt sem sér deild innan
Knattspyrnufélagsins Þryms á
aðalfundi þess 1993.
Lokaorð
Frá stofnun félagsins og fram
að aðalfundi 29. janúar 1993
hefur Knattspyrnufélagið
Þrymur vaxið jafnt og þétt.
Stofnfélagar voru um 30, en
félagar voru komnir upp í
rúma 90 þremur árum síðar og
störfuðu í þremur deildum. Það
má sjá út frá þessari samantekt
að félagið á sér bjarta framtíð
um ókomin ár ef rétt er haldið
á spöðunum.
Enn keppir Þrymur
Þó Þrymur sé ekki til sem
eiginlegt íþróttafélag er samt
verið að keppa undir þess
nafni enn í dag. Einn af
gömlu kempunum, Óli Viðar
Andrésson, stendur styrkur í
brúnni og skráir félagið í tvö til
þrjú fótboltamót á ári.
„Það sem við höfum verið
að reyna að gera er að taka
þátt í þremur mótum á ári og
staðið okkur alveg prýðilega í
því. Við höfum meira að segja
hampað titli þegar við unnum
í Pollamóti Þórs fyrir þremur
árum síðan. Svo spiluðum
við til úrslita á Würth mótinu
í vetur, en enduðum í öðru
sætinu. Við höfum verið að
fara á þessi þessi þrjú mót,
Pollamótið og jólamót Þórs á
Akureyri og Würth mótið fyrir
sunnan,“ segir Óli en ekki er
um neinar skipulagðar æfingar
að ræða hjá félaginu. „Það er
hver í sínum hóp og stundum
hafa menn utan Skagafjarðar
einnig tekið þátt með okkur.
Við erum enn að spila í flokki
38+ en meðalaldurinn var 48
ára í síðasta móti af því að það
var einn sem ekki hafði náð
fertugsaldrinum og komumst
þess vegna ekki í 40+.“
Þegar Óli er beðinn um að
rifja upp smá úr fortíðinni segir
hann upplifunina af því að vera
í Þrym algjörlega stórbrotna.
„Það var alveg gríðarlega gam-
an. Mikill keppnisandi í liðinu
og menn lögðu sig iðulega alla
fram, bæði utan vallar sem
innan. Ég var í fjögur sumur
en við unnum aldrei neina titla
þá, en mjög gaman samt. Þetta
var orðið helvíti þunnt þarna
í restina og líklega var það
sumarið 1995 sem keppt var í
Íslandsmótinu í síðasta sinn.“ Þrymur tók þátt í utandeildarkeppni Breiðabliks og hömpuðu bikarnum árið 2009.
MYND AF NETINU
04/2020 7