Feykir


Feykir - 29.04.2020, Qupperneq 9

Feykir - 29.04.2020, Qupperneq 9
Haukur Sindri Karlsson (1999) er ungur og upprennandi tónlistarmaður sem vakið hefur verðskuldaða athygli m.a. fyrir aðkomu sína að tónlistarvinnu í uppsetningum leikverka við Verkmenntaskólann á Akureyri. Hann hefur verið að gefa út eigin tónlist sem hægt er að finna á Spotify, undir Haukur Karls, og fyrir skömmu gaf hann út, í samvinnu við félaga sína á Króknum Atla Dag Stefánsson og Ásgeir Braga Ægisson, nýtt lag, Let you down. Haukur Sindri stundar nú nám í Danmörku sem væntanlega leiðir til BA-prófs og heitir á ensku „Music Production“. Feykir leitaði til Hauks Sindra og fékk hann til að svara nokkrum laufléttum Tón-lystar spurningum. Hvar ólstu upp? Fyrri partinn á Sauðárkróki, en sá seinni í Eyja- fjarðarsveit. Hljóðfæri: Gítar, trommur, hljómborð, bassi, ukulele, munnharpa. Helstu tónlistarafrek: Enn sem komið er að komast inn í RMC tón- listarháskólann. Uppáhalds tónlistartímabil? Dag- urinn í dag. Finnst alltaf gaman að heyra í hvaða átt tónlistin er að fara. Hvaða tónlist fær þig til að sperra eyrun þessa dagana? Ég er mikið að setja á kósí sólseturs-playlistann minn þessa daganna og slaka á úti í garðskála þar sem veðrið er geggjað um þessar mundir. Á þeim lista eru t.d: J. Cole, Frank Ocean, Post Malone, Blood Orange, Billie Eilish og Drake. Hvers konar tónlist var hlustað á á þínu heimili? Alls konar klassískt rokk, þökk sé pabba mínum. En Pink Floyd stendur mikið upp úr. Það æði gekk svo langt að einn daginn tók ég með mér útprentaða mynd af Nick Mason (trommuleikara) í leikskólann, og eru þeir ein uppá- halds hljómsveitin mín ennþá í dag. Hver var fyrsta platan/diskurinn/ kasettan/niðurhalið sem þú keyptir þér? Lagið Who Says með John Mayer. Hvaða græjur varstu þá með? Þá var ég með Sony Ericson farsíma og eyddi allri minni 500 kr. inneign í að niðurhala laginu á meðan ég var í útlöndum – foreldrarnir voru ekki kátir, en ég bara varð að eignast þetta lag. Langar að gefa 11 ára sjálfum mér fimmu fyrir að hafa gert það, því að þetta lag hefur haft mikil áhrif á mig. Hvað syngur þú helst í sturtunni? Sturtu-playlistinn minn inniheldur tónlistarmenn eins og Drake, Kanye, Khalid, Clean Bandit og Avicii. Mögnuð leið til að peppa sig fyrir daginn! Bítlarnir eða Bob Dylan? Bítlarnir! Ekki spurning. Besta hljómsveit allra tíma. Uppáhalds Júróvisjónlagið? Draumur um Nínu. Þú heldur dúndurpartí í kvöld, hvað læturðu hljóma í græjunum til að koma öllum í stuð? Ég er því miður yfirleitt beðinn um að víkja frá hljómflutningstækjunum þegar ég ætla mér að spila tónlist í partýum af því ég spila ekki Séra Bjössa eða eitthvað svoleiðis. En ef þetta er mitt partý, og það þarf að vera „dúndur“ þá myndi ég spila vel valin lög með Drake og Travis Scott til að koma öllum í gang. Sennilega Sicko Mode fyrst alla vega. Þú vaknar í rólegheitum á sunnu- dagsmorgni, hvað viltu helst heyra? Ég set hiklaust á playlistann minn „Góðan Dag“ sem samanstendur af þægilegum lögum með vel völdum tónlistarmönnum eins og Bítlunum, Fleetwood Mac, Lana Del Rey, John Mayer, Billie Eilish o.fl. Þú átt þess kost að fara hvert sem er í heiminum og skella þér á tónleika. Hvert færirðu, hvaða tónleika og hvern tækirðu með þér? Ef ég mætti ráða alveg, þá myndi ég skella mér á John Mayer með Atla Degi Stefánssyni í London. Hvaða tónlistarmaður hefur þig dreymt um að vera? Paul McCartney, alveg óteljandi sinnum. Hver er að þínu mati besta plata sem gefin hefur verið út? Ég get bara alls ekki gert upp á milli Abbey Road með Bítlunum og Born & Raised með John Mayer. Haukur í Kóngsins Köbenhavn. MYND: ÚR EINKASAFNI toppurinn Vinsælast á Playlista Hauks Sindra: If I Ever Get Around To Living JOHN MAYER From Time DRAKE Brooklyn Baby LANA DEL REY Dreams FLEETWOOD MAC The Long And Winding Road THE BEATLES Theme from A Summer Place PERCY FAITH AND HIS ORCHESTRA Haukur Sindri Karlsson / tónlistarmaður Langar að gefa 11 ára sjálfum sér fimmu ( TÓN-LYSTIN ) palli@feykir.isFramkvæmdir við smábátahöfn Flotbryggja og fleiri fingur Framkvæmdir eru hafnar við smábátahöfnina á Sauðárkróki þar sem setja á niður nýjar flotbryggjur og efni tekið upp úr henni vegna grynninga. Ráðist var í þessar framkvæmd- ir til að bæta aðstöðu eigenda smá- og skemmtibáta. Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri, segir töluvert plássleysi hafa verið við opnu bryggjuna síðastliðin sumur og erfitt orðið að koma bátum á flot vegna grynninga. Einnig skapast við þessar fram- kvæmdir góð aðstaða til að taka á móti léttabátum frá skemmti- ferðaskipum og aðstaða fyrir sjóferðamennsku á svæðinu. Króli ehf. er verktaki og fær hann aðila á svæðinu til liðs við sig en Víðimelsbræður og Uppsteypa hafa verið með í verkefninu. Kostnaðurinn við verkið er áætlaður 31 m.kr. og felst í kaupum á flotbryggjum, fleiri fingrum við flotbryggj- urnar og vinnu við verkið. „Á fjárhagsáætlun 2020 eru þrjár m.kr. til að snyrta opna svæðið við smábátabryggjuna. Endanleg útfærsla þess liggur ekki fyrir en horft er til þess að jafna út svæðið, bera í það perlumöl og snyrta til með ýmsum hætti,“ segir Sigfús Ingi. Hann segir umsvif Skaga- fjarðarhafna hafa aukist veru- lega á undanförnum árum og útlit fyrir að á næstu árum aukist umsvifin enn meira. Telur hann líklegt að fram- kvæmdir við Skagafjarðarhafnir aukist í takti við það. /PF Framkvæmdir við smábátahöfnina mun bæta aðstöðu eigenda smá- og skemmtibáta en einnig skapast við þessar framkvæmdir góð aðstaða til að taka á móti léttabátum frá skemmtiferðaskipum og aðra sjóferðamennsku á svæðinu. MYND: PF Vestur-Húnvetningar Með afurðahæstu sauðfjárbúin Ráðgjafarmiðstöð land- búnaðarins, RML, hefur birt niðurstöður úr afurðaskýrslu- haldi sauðfjárræktarinnar fyrir framleiðsluárið 2019. Fjallað er um niðurstöðurnar á vef Bændablaðsins þar sem segir að útkoman sé góð í heildina og niðurstöður keimlíkar því sem árið 2018 skilaði. Fleiri bú ná þó mjög góðum árangri og búum á topplistunum fjölgar. Uppgjör framleiðsluársins byggir á 329.619 ám sem eru tveggja vetra og eldri frá 1.680 skýrsluhöldurum. Flestar ær á skýrslum eru í Skagafirði, 30.012 talsins, en næst kemur Austur-Húnavatnssýsla með 29.702 ær. Vestur-Húnvetn- ingar ná mestum afurðum eftir sínar ær og skilaði meðalbúið 30,6 kílóum eftir hverja á. Afurðahæsta búið á lista- num er Gýgjarhólskot í Bisk- upstungum sem skilaði 44,2 kílóum á hverja kind. Næst koma Efri-Fitjar í Fitjárdal í Húnaþingi vestra með 41,9 kg eftir ána. Bergsstaðir í Miðfirði eru í fjórða sætinu með 40,3 kíló og nágrannar þeirra á Urriðaá eru í fimmta sæti með 38,7 kíló. Sé litið til frjósemi er Vestur- Húnavatnssýsla í öðru sæti yfir sýslur landsins. Efri-Fitjar eru í efsta sæti yfir lömb til nytja á hverja á með 2,08 lömb til nytja og af veturgömlum voru ærnar á Bergsstöðum í Miðfirði frjósamastar með 1,67 lamb eftir ána. /FE Ert þú áskrifandi? 17/2020 9

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.