Feykir


Feykir - 29.04.2020, Blaðsíða 5

Feykir - 29.04.2020, Blaðsíða 5
Ungmennasamband Skagafjarðar 110 ára Landsmótið 1971 ein mesta skrautfjöðrin í hatti UMSS Á vef UMSS er fróðleg saman- tekt um sambandið og fékk Feykir góðfúslegt leyfi til að birta lítillega breytt. Ungmennasamband Skaga- fjarðar var stofnað 17. apríl 1910 en bráðabirgðastjórn hafði setið frá 20. febrúar sama ár, en boðað var til stofnfundar 17. apríl. Stofnfélög voru Ung- mennafélagið Æskan Staðar- hreppi, Ungmennafélagið Framför Lýtingsstaðahreppi og Ungmennafélagið Fram Seylu- hreppi. Fyrsta stjórn sam- bandsins var skipuð Brynleifi Tobíassyni, formanni, Árna J. Hafstað, ritara og Jóni Sigurðssyni, gjaldkera. Þegar líða tók á öldina fjölgaði aðildarfélögunum og starfsemin efldist á allan hátt. Þessi félög gengu í sambandið fyrstu 50 árin: Ungmennafélagið Hegri Rípurhreppi 1917 Ungmennafélagið Höfðstrend- ingur Hofsósi 1917 Ungmennafélagið Tindastóll 1924 Ungmennafélagið Glóðafeykir Akrahreppi 1952 Ungmennafélagið Geisli Óslandshlíð1947 Ungmennafélagið Framsókn Viðvíkursveit 1914-20 Ungmennafélagið Von í Stíflu 1933 Ungmennafélag Holtshrepps 1947 Ungmennafélagið Hjalti Hjaltadal 1932 Ungmennafélag Hagnesshrepps 1947 Ungmennafélagið Bjarmi Goðdalasókn 1924-36 Ungmennafélagið Grettir 1956 Starfsemi sambandsins var að vonum ekki sérlega fjölbreytt fyrstu árin. Þó má nefna að það stóð fyrir Sumarmótum svo- kölluðum. Þar voru flutt erindi og tekið þátt í kappreiðum. Eins stóð sambandið fyrir fræðslu og fór á milli aðildar- félaga með ýmis erindi. Auk þess stóð sambandið að því að auka áhuga almennings á íþróttum. Sund var snemma á dagskrá og lagði UMSS fjár- magn til að endurgera Steins- staðasundlaug og fór þar aðal- sundkennsla fram um nokkurt árabil. Þetta var fyrsta stein- steypta sundlaugin í Skagafirði. Seinna var svo gerð laug í Varmahlíð. Mótahald varð seinna mikið og öflugt, héraðsmótin á 17. júní þóttu stórhátíðir, haldið var úti sér knattspyrnuliði um tíma og settar upp leiksýningar svo eitthvað sé upp talið. Héraðsþjálfarar í frjálsum og knattspyrnu voru fastir liðir svo árum skipti og þjálfuðu þeir vítt og breytt um héraðið. Héraðs- þjálfarafyrirkomulagið var sér kapítuli útaf fyrir sig og fengu þá krakkar í sveitum sem þéttbýli að spreyta sig í frjálsum og knattspyrnu. Voru æfingar víða, við Ketilás í Fljótum, Hofsósi, Efra-Ási í Hjaltadal, á Vallarbökkum, á Steinsstöðum, Varmahlíð og Sauðárkróki svo einhverjir staðir séu nefndir. Eins var spilaður handbolti um tíma bæði á Sauðárkróki og Hofsósi. Margir mjög færir og góðir þjálfarar voru við störf þessi sumur þegar þetta fyrir- komulag var við lýði. Lagðist það af á níunda áratugnum. Ekki er ofsögum sagt þó eitt nafn sé tengt UMSS öðru fremur hér í héraði en það er Guðjón Ingimundarson sem var einn af ötulustu braut- ryðjendum í skagfirsku íþróttalífi svo áratugum skipti. Guðjón sat í stjórn Ungmenna- sambands Skagafjarðar í 31 ár, þar af 29 ár (1944-1973) sem formaður. Eins sat Guðjón í stjórn Ungmennafélags Íslands Ungmennasamband Skagafjarðar fagnaði 110 ára afmæli á dögunum en félagið var stofnað þann 17. apríl árið 1910. Stefnt var á að halda ársþing sambandsins þann 7. apríl síðastliðinn en af því gat ekki orðið vegna samkomubanns af völdum COVID-19 faraldursins. „Þetta eru skrýtnir tímar,“ segir Klara Helgadóttir, formaður UMSS í viðtali á vef UMFÍ. „Við ætluðum að hafa veglegt ársþing í apríl, bjóða upp á þriggja rétta veislu með ljúffengu kjöti úr Skagafirði fyrir hátt í 90 manns, þingfulltrúa, gesti og fleiri. Þetta átti að vera stórt þing, það hundraðasta að viðbættu afmælinu. En ætli við gerum nokkuð fyrr en í haust. um tíma og var þar vara- formaður. Með þeim albestu á landinu Landsmótið 1971 er ein mesta skrautfjöðrin í hatti UMSS. Það tókst með miklum ágætum og mættu 8–10 þúsund manns á mótið. Keppendur voru tæplega 500 og kepptu í sjö mismunandi greinum. Skag- firðingar stóðu sig vel og sendu keppendur í flestallar greinar og náðu 5. sæti í stigakeppni mótsins. Fyrir mótið 1971 var gert stórátak í uppbyggingu keppnisaðstöðu á Sauðárkróki og grasvöllurinn var tekinn í notkun fyrir mótið. Sá völlur var notaður sem aðalvöllur til ársins 2004 þegar núverandi aðstaða var tekin í notkun. Körfubolti og handbolti voru spilaðir utandyra á mótinu og byggður bráðabirgða körfu- boltavöllur. Keppendur og áhorfendur héldu til á tjald- svæðinu á Nöfum sem notað hefur verið á stórmótum síðar með góðum árangri. Frjálsíþróttalíf á vegum og undir merkjum UMSS hefur lengi verið öflugt. Á tíunda áratug síðustu aldar efldist það sem aldrei fyrr með veru Gísla Sigurðssonar sem yfirþjálfara og prímusmótors í starfinu til margra ára. Hingað löðuðust líka gríðarlega góðir íþrótta- menn og konur sem skipuðu sér sess á alþjóðavísu. Má þar nefna Jón Arnar Magnússon og seinna Sunnu Gestsdóttur. Starfið heima fyrir varð líka gríðarlega öflugt og smitaði árangur hinna bestu út frá sér. Lið UMSS varð líka á þessum árum með þeim albestu á landinu og í Bikar- keppni Frjálsíþróttasambands- ins náði liðið best í 2. sæti. Árið 2004 líður skagfirskri íþróttahreyfingu sennilega seint úr minni. Það ár voru haldin tvö landsmót á Sauðár- króki með þriggja vikna milli- bili. Fyrst var stóra landsmótið í annarri viku júlímánaðar og svo unglingalandsmótið um verslunarmannahelgina. Bæði mótin tókust með eindæmum vel og voru Skagfirðingum til mikils sóma. Byggður hafði verið nýr íþróttavöllur sumarið áður og var hann tilbúinn til notkunar á mótinu. Fjórða landsmótið sem haldið hefur verið í Skagafirði var svo um verslunarmanna- helgina 2009. Þá kom sér vel að frjálsíþróttavöllurinn var ekki nema fimm ára gamall og þurfti því að ráðast í sáralitlar framkvæmdir til að gera mótið að veruleika og virkilega góðu móti. Eins og hin mótin tókst þetta mót með glæsibrag, keppendur um 1500 og gestir um 10 þúsund. Enn á ný sannaði íþróttasvæðið og að- staðan sig og að Skagfirðingar kunna að standa að stór- mótahaldi. Fimmta landsmótið var svo haldið um verslunar- mannahelgina 2014. Árið 2018 var Landsmótið haldið á Sauðárkróki dagana 12.–15. júlí. En þá var haldið í fyrsta sinn sameiginlegt Lands- mót UMFÍ og 50+ mót UMFÍ. Inni í því móti var einnig hald- ið Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum dagana 14.- 15. júní á Sauðárkróksvelli. Starfsemi UMSS í dag er öflug og er það samstíga öflugu íþróttastarfi innan héraðsins sem sýnir sig í þeirri áræðni að takast á við að halda tvö landsmót á sama árinu. Hefðbundin starfsemi er nokk- urt mótahald ár hvert í frjáls- um, sundi og hestaíþróttum. Eins er hluti af starfsemi sambandsins að halda uppi samskiptum við UMFÍ og ÍSÍ. Í dag eru tíu aðildarfélög innan UMSS, þrjú ungmenna- félög Hjalti, Neisti og Tinda- stóll, Ungmenna- og íþrótta- félagið Smári, Hestamannafél- agið Skagfirðingur, Íþrótta- félagið Gróska, Golfklúbbur Sauðárkróks, Bílaklúbbur Skagafjarðar, Vélhjólaklúbbur Skagafjarðar og Siglinga- klúbburinn Drangey. En hinum almennu ungmennafélögum hefur fækkað mikið síðustu 20 árin og önnur félög komið í staðinn. Í stjórn UMSS sitja Klara Helgadóttir formaður, Gunnar Þór Gestsson varaformaður, Sigríður Fjóla Viktorsdóttir gjaldkeri, Þorvaldur Gröndal ritari og Sigmundur Jóhannes- son meðstjórnandi. UMSJÓN Páll Friðriksson Þátttakendur frá UMSS á Unglingalandsmóti UMFÍ. MYND: UMFÍ 17/2020 5 ÍÞRÓTTAFRÉTTIR F

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.