Feykir


Feykir - 29.04.2020, Blaðsíða 10

Feykir - 29.04.2020, Blaðsíða 10
FRÓÐLEIKUR FRÁ BYGGÐSAFNI SKAGFIRÐINGA Inga Katrín D. Magnúsdóttir skrifar Hyggileg húsgögn Hönnuðir verslunarrisans Ikea hafa löngum þótt snillingar í alls kyns lausnum þegar innbú eru annars vegar. Húsgögnin eru sum hver hugvitssamlega hönnuð og mörg þykja þægileg í notkun, einkum þar sem rými er takmarkað. Einstaka húsgagn kemur safnafólki kunnuglega fyrir sjónir og við þykjumst vita að innblástur hönnunarinnar eigi í sumum tilfellum rætur að rekja aftur til fortíðar, nánar tiltekið tilveru í þröngu rými torfbæjanna og smáum timburhúsum sem á eftir komu. Torfhús lutu öðrum lögmálum en hús í dag og íbúar þeirra þurftu þ.a.l. að taka tillit til annarra þátta en við gerum í nútímanum. Heimilin voru jafnan frek-ar lítil m.a. til að halda hita því engin var kyndingin þar til kola- og olíumaskínur hófu innreið sína. Á mörgum heimilum var margt um manninn og þá skipti máli að nota plássið vel. Byggðasafn Skagfirðinga á í fórum sínum ýmis húsgögn sem voru einmitt hönnuð með rýmisnýtingu að leiðarljósi. Það eru t.a.m. húsgögn sem hægt er að draga sundur og saman eftir notkun og tíma dags. Rúm sem hægt var að stækka fyrir nóttina og minnka, þegar fólk fór á stjá, var þægileg leið til að nýta plássið í litlum stofum. Ákveðinn kostur var að geta notað hluti á fleiri en eina vegu. Í því samhengi má nefna rúmfjalir sem gegndu í grund- vallaratriðum tveimur hlutverkum. Á nóttunni var þeim stungið meðfram rúmbríkinni til að halda rúmfötunum á sínum stað. Á vökutíma sat fólk oft á rúminu við vinnu sína og voru rúmfjalirnar þá stundum notaðar sem borð. Merki um það má oft sjá á bakhlið rúmfjala, sem margar hverjar eru skrámaðar og skornar eins og þær hafi verið notaðar sem vinnuborð. Framhlið þeirra er oft fagurlega útskorin með jurtamynstri, fléttum, höfðaletri og alls kyns flúri. Við hvetjum lesendur til að senda okkur myndir af húsgögnum sem þið eigið í ykkar fórum, og eru fjölnota (þ.e. geta sinnt fleiri en einu hlutverki) eða með sniðugum útfærslum. Rúm (BSk 1995:87) frá Merkigili. Rúmið er hægt að draga í sundur og saman eftir hentugleikum, þegar það er fellt saman er það um 70 cm á breidd, en um 120 cm á breidd þegar það er sundurdregið. Svona rúm voru algeng á millistríðsárunum. Rúmið var í eigu Elínar Finnbogadóttur og Jóhannesar Bjarnasonar, tengdaforeldra Moniku Helgadóttur á Merkigili. MYNDIR: BYGGÐASAFN SKAGFIRÐINGA Felliborð. Þegar vængurinn er felldur niður fer ekki mikið fyrir þessu húsgagni, en þegar hann er spenntur upp verður til ágætt borð. Lengjanlegt rúm frá Völlum. Stækkanleg rúm voru mismunandi að hönnun. Sum voru stækkuð á þverveginn, þetta rúm var stækkað á langveginn. Rúmfjöl (BSk 54) frá Heiði í Gönguskörðum. Á nóttunni voru rúmfjalir notaðar til að halda rúmfötunum á sínum stað. Á vökutíma voru þær stundum notaðar sem borð. Rúmskápur (BSk 2005:67). Við fyrstu sýn virðist húsgagnið vera venjulegur skápur, en þegar betur er að gáð kemur í ljós að sé losað um klinku á skápnum og „skrautlistar“ togaðir fram þá leggst framhliðin niður og úr verður rúm en skáphlutinn sem eftir stendur er eins konar höfuðgafl sem klæddur er að innan með appelsínugulum líndúk. Mjög hentugt húsgagn þar sem þrengsli eru mikil. Rúmskápinn smíðaði Guðjón Gunnlaugsson (1862- 1945) í Vatnskoti. Steypustöð Skagafjarðar leggur Sauðárkrókslínu 2 Útdráttur jarðstrengs hafinn í Skagafirði Nú á laugardaginn hóf Steypustöð Skagafjarðar útdrátt á 66kV jarðstreng sem verið er að setja í jörð á milli Sauðárkróks og Varma- hlíðar. Strengurinn, sem Landsnet lætur leggja, mun auka afhendingaröryggi rafmagns á svæðinu en um nokkurt skeið hefur verið óánægja á Sauðárkróki vegna tíðra rafmagnsbilana. Nú síðustu vikur hafa starfs- menn Steypustöðvarinnar á Króknum verið á fullu við skurðgröft og annan tilfallandi undirbúning fyrir lagningu strengsins en að jafnaði vinna 15–20 manns við þetta verk. Jarðstrengurinn verður um 23 kílómetra langur og er ekki reiknað með neinum meiri- háttar hindrunum í lagningu hans. Verklok eru áætluð í lok júní 2021. Í samtali Feykis við syst- kinin Ástu og Ásmund Pálma- börn hjá Steypustöð Skaga- fjarðar kom fram að þetta verk sé af svipaðri stærðargráðu og Steypustöðin hefur verið að vinna undanfarin ár fyrir Landsnet annars staðar á landinu. Er nóg að gera hjá Steypu- stöð Skagafjarðar? „Verkefna- staðan í ár er góð og höfum við bætt við okkur starfsmönnum í tengslum við lagningu Sauðár- krókslínu 2. Þetta er stærsta einstaka verkefnið í ár en einnig er verið að vinna við önnur verkefni í plægingu Starfsmenn Steypustöðvar Skagafjarðar við störf. Fleiri myndir er að finna á Feykir.is. MYNDIR: ÓAB rafstrengja og ljósleiðara. Svo vonumst við til að steypusala verði með hefðbundnum hætti í sumar.,“ segja Ásta og Ási. Feykir sagði frá því síðla árs 2017 að eina tenging Sauðár- króks við flutningskerfi Lands- nets væri 66 kV loftlína frá Varmahlíð sem orðin er rúm- lega 40 ára gömul og mun tilkoma jarðstrengsins auka orkuöryggi og meira en tvö- falda flutningsgetu að svæð- inu. /ÓAB 10 17/2020

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.