Feykir


Feykir - 19.08.2020, Page 2

Feykir - 19.08.2020, Page 2
Nú lýkur senn íslenska ferðasumrinu mikla. Sumarið sem Íslendingar komust hvorki á sólarströndina á Tene né klifur í Ölpunum og neyddust til að ferðast um gamla skerið. Mörgum til furðu reyndist þetta hin besta afþreying og hafði skerið upp á margt að bjóða. Magnaðar gönguleiðir í stórbrotnu landslagi og tjaldsvæðin buðu upp á fyrirtaks þjónustu. Nýir staðir voru uppgötvaðir, s.s. Stuðlagil, regnbogagatan á Seyðisfirði og Seljalandsfoss, svo eitthvað sé nefnt. Þú varst ekki maður með mönnum nema birta myndir af þér á samfélagsmiðlunum á þessum stöðum, helst á uppblásnum einhyrningum eða við aðrar misgáfulegar athafnir. Nú heyrast enn fleiri sögur af ferðum landans í sumarlok. „Hefur þú farið í Ábyrgi? Það er alveg magnaður staður“ eða „vá ég vissi ekki að það væri svona mikið að skoða í borginni“ og hver af fætur öðrum kemur með stórbrotna lýsingu á því sem sumarið hafði upp á að bjóða. Þið verðið bara að afsaka en mér finnst þetta frekar smáborgaralegt, smáborgarinn stjórnast af almennum ríkjandi viðhorfum og leggur áherslu á að hverfa í fjöldann eða þóknast fjöldanum, og í raun sorglegt að heimsfaraldur þurfi til að Íslendingar líti við sínu eigin landi. Hingað til hefur svo sem ekki verið ódýrt að fara hringinn. Verðið í vegasjoppunum uppsprengt og bensínlítrinn ekki ókeypis. Í ár var hins vegar hægt að fá gistingu á ágætis verði þar sem ekki var mikið um útlendinginn á ferðinni þetta sumarið. Því ekki að undra að landinn hafi gripið tækifærið og lagt landið undir fótinn í ár og skoðað sig um túristalausa landið. Þið megið samt ekki misskilja mig. Ég er alls ekki að gera lítið úr upplifun þeirra sem hafa hrifist svona af landinu okkar/ sínu. Í raun finnst mér þetta pínu fyndið því að ég var sjálf í þessum sporum fyrir ekki svo all löngu síðan þegar ég gerði sjálf þessa uppgötvun. Já, reyndar ekki fyrr en eftir að hafa búið í Danmörku í tvö ár. Þegar ég flutti svo aftur hingað heim fannst mér þetta allt svo æðislegt og hef, má að segja, verið meira og minna trillandi út um allt land síðan að uppgötva nýja og flotta staði, fyrir mér. Ég fagna því að þetta sumar hafi ekki þverfótað fyrir Íslendingum að uppgötva landið sitt upp á nýtt. Vonandi fækkar nú þeim sem hafa ekki farið hringinn eða farið oftar til Tene heldur en út fyrir bæjarhólinn. Hlakka til að hitta ykkur öll á ferðinni næsta sumar og bíð spennt eftir sögum frá „nýfundnum“ stöðum. Soffía Helga Valsdóttir blaðamaður LEIÐARI Landafundur Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842 Blaðamenn: Fríða Eyjólfsdóttir, frida@feykir.is Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is Soffía Helga Valsdóttir, bladamadur@feykir.is Auglýsingastjóri: Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is Áskriftarverð: 585 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 720 kr. m.vsk. Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf. Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum Hafnarsvæðið á Sauðárkróki Sjóvörn og sandfangari í smíðum Framkvæmdir við gerð sjóvarnar og lenging sandfangara á Hafnarsvæðinu á Sauðárkróki hófust sl. mánudagsmorgun en um er að ræða gerð sjóvarnargarðs meðfram Þverárfjallsvegi og Skarðseyri á um 450 m kafla og lengingu sandfangara um 30 metra. Það er verktaka- fyrirtækið Víðimelsbræður ehf. sem sjá um verkið. Að sögn Dags Þórs Bald- vinssonar verður sjóvörnin hækkuð um u.þ.b. einn metra þannig að hæð hennar verði +5,0 m í hæðarkerfi hafnar- innar. Verklok á öllum fram- kvæmdum eru áætluð 31. desember þessa árs. Fréttir voru fluttar af mikl- um skemmdum sem urðu á sjóvarnargarðinum síðastliðinn vetur þegar ítrekað flæddi yfir í þeim miklu óveðrum sem riðu yfir landið. Vonast er til að hækkun garðana verði til þess að þeir standist vond veður og sjólag. Áætlun gerði ráð fyrir því að framkvæmdir á Skarðs- eyri, sem stefnt er að í ár, kosti allt að 50 milljónir króna en það eru Vegagerðin og Sveitar- félagið Skagafjörður sem standa að þeim. /PF Slökkvilið Skagastrandar Slökkvibíll verður endurnýjaður Til stendur að endurnýja bílakost slökkviliðs Skagastrandar en sveitarstjórn ákvað á fundi sínum sl. föstudag að taka tilboði frá Feuerwehrtechnik Berlin en nauðsynlegt þykir að bæta tækjakostinn. Bifreiðin sem um ræðir er af tegundinni MAN TGM og er með 3000 lítra vatnstanki og 300 lítra froðutanki ásamt því að vera búin öllum helsta búnaði sem nauðsynlegur er til slökkvistarfa. Verðtilboðið sem liggur fyrir nemur 215.000 evrum eða um 34,8 milljónum króna samkvæmt því sem kemur fram í fundargerð sveitarstjórnar Skagastrandar. Starfssvæði Slökkviliðs Skagastrandar nær yfir Skaga- strönd og Skagabyggð frá Laxá í Refasveit að Skagatá. Fram kemur í fundargerðinni að samtal hafi átt sér stað við oddvita Skagabyggðar vegna kaupa á bifreið og að sveitar- stjórn Skagabyggðar væri jákvæð fyrir fjárfestingunni. Sveitarstjórn ræddi framkomið tilboð og fyrirliggjandi gögn og fól sveitarstjóra að ganga frá samningi um kaupin. Verður fjárfestingunni mætt með lækkun á handbæru fé og vísað til viðauka við fjárhags- áætlun. /PF Á meðfylgjandi loftmynd má sjá hvar sjóvarnargarðarnir munu verða staðsettir. AÐSEND MYND SSNV Atvinnuráðgjafi með nýsköpun sem sérsvið Kolfinna Kristínardóttir hefur verið ráðin til SSNV sem atvinnuráðgjafi með áherslu á nýsköpun. Kolfinna hefur MA próf í hagnýtri menn- ingarmiðlun og Bs próf í ferðamálafræði. Í tilkynningu frá SSNV kemur fram að Kolfinna hafi sett upp Matarhátíð í Skagafirði í tengslum við meistara- verkefni sitt þar sem áhersla var lögð á nýsköpun í matarmenningu og kynningu á skagfirsku hráefni og framleiðslu. „Kolfinna hefur stjórn- enda- og rekstrarreynslu úr störfum sínum hjá Wow Air auk þess sem hún hefur sinnt stjórnunarstörfum í ferðaþjónustu. Meginstarfsstöð Kolfinnu verður á Sauðárkróki en hún mun líkt og aðrir ráðgjafar samtakanna vinna með aðilum á Norður-landi vestra öllu. Með ráðningu atvinnuráð- gjafa með nýsköpun sem sérsvið er verið að auka áherslu á þennan mikilvæga þátt til aukinnar verðmætasköpunar í landshlutanum. Er það í takt við áherslur í Sóknaráætlun Norðurlands vestra fyrir árin 2020-2024. Í áætluninni er meðal annars lögð áhersla á fullvinnslu afurða sem fram- leiddar eru á svæðinu, fjölgun vaxtarbrodda sem og styrk- ingu grunnstoða í atvinnu- lífinu, svo sem í ferðaþjónustu, landbúnaði og sjávarútvegi,“ segir í tilkynningu SSNV. Kolfinna, sem er búsett á Sauðárkróki, hefur störf þann 1. september 2020. /PF Kolfinna Kristínardóttir, atvinnuráðgjafi hjá SSNV MYND AF NETINU 2 31/2020

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.