Feykir


Feykir - 19.08.2020, Blaðsíða 7

Feykir - 19.08.2020, Blaðsíða 7
hitta vini okkar en hér á Gauta- borgarsvæðinu búa margir vinir okkar og fjölskyldur þeirra. Þetta eru mest bekkjar- systkini mín úr læknadeild. Hér eru endalausir möguleikar á skemmtilegum útivistar- svæðum og leikvöllum fyrir krakkana. Svo er æðislegt að skella sér í sænska útilegu eða á ströndina. Hverju hefur COVID-19 helst breytt fyrir ykkur og hvernig er ástandið í Svíþjóð? Því miður höfum við ekki getað fengið fólk í heimsókn eins og planað hafði verið, eins höfum við ekki getað skotist heim í heimsókn. Það hefur eflaust ekki farið framhjá mörgum að Svíar hafa brugðist aðeins öðruvísi við veirunni en önnur lönd. Ástandið hér er enn slæmt og margir smitaðir. Við finnum samt kannski ekki mikið fyrir þessu í okkar daglega lífi en ég verð auðvitað mikið vör við þetta í vinnunni. Því miður hafa margir af mínum skjólstæðingum misst maka sína eða foreldra úr sjúkdómnum og margir veikst og verið lengi að ná sér. Hvers saknar þú mest að heiman? Auðvitað fjölskyld- unnar og vina. Líka bara íslenska viðhorfsins „þetta reddast“ – það er ekki eins Gautaborg á netinu ... mikið um það hér. Svo verð ég að nefna sundlaugarnar, þær eru hvergi betri en á Íslandi. Maturinn er líka betri heima. Það er eiginlega allt betra á Íslandi og þá sérstaklega í Skagafirðinum eins og vinnufélagar mínir fá reglulega að heyra. Við hlökkum öll til að flytja aftur heim einn daginn. Gætir þú deilt einhverri sniðugri eða eftirminnilegri sögu frá dvöl þinni erlendis? Ég var ekki búin að búa margar vikur hér þegar ég er að ræða við tvo karlkyns kollega mína á kaffistofunni. Þeir voru að ég hélt að tala um líkamsrækt (en voru í raun að tala um herþjálfun) og spurðu mig hvort slíkt væri á Íslandi og ég svara: „Já, heldur betur!“ Þá voru þeir smá hissa en spurðu mig hvort ég hafi verið í slíku og ég sagði: „Já, hef alveg prófað það en það er langt síðan.“ Síðan héldu þeir áfram að ræða málin og þá áttaði ég mig smám saman á því að þeir hefðu verið að meina hvort ég hefði verið í hernum. Mér datt auðvitað ekki í hug að leiðrétta þetta og fannst það reyndar frábært að þeir skyldu halda að ég gæti hafa verið í hernum. Þetta leiðréttist svo nokkrum dögum síðar þegar vinkona mín sprakk úr hlátri þegar ég sagði fyrir framan þá að þeir héldu að ég hefði verið í hernum – segir kannski að hún þekkir mig töluvert betur en þeir. Valkyrie-rússíbaninn í Liseberg Tivoli virðist bjóða upp á ansi hressilegt ferðalag. Frá fiskmarkaði í Gautaborg. MYNDIR AF NETINU • Á Wikipediu segir að það hafi verið Hollendingar sem einkum settu svip sinn á Gautaborg í fyrstu og enn sér þessa merki því hollenskt byggingarlag einkennir eldri og meiri hús borgarinnar og sundin inni í borginni. Þegar til þess er litið að í fyrstu bæjarstjórn Gautaborgar sátu sjö Svíar, einn Skoti og tíu Hollendingar, sést vel hvílík ítök Hollendingar höfðu í borginni. Hollendingar kölluðu borgina um tíma Nýju Amsterdam. • Það snýst flest allt um hafið í Gautaborg en borgin stendur á vesturströnd Svíþjóðar með Norðursjóinn í túnfætinum – eða þannig. Þeim sem þykja sjávarréttir kóngafæða ættu að finna sinn heimavöll í Gautaborg og úrvalið er víst einstakt. Stytta af Póseidon, sjávarguðinum, er eitt þekktasta kennileiti borgarinnar en það stendur fyrir utan tónlistarhöllina. Íbúar borgarinnar tala oft um að Gautaborg sé staðurinn þar sem hið alvöru haf byrjar – sem er smá skot á vini þeirra í Stokkhólmi sem búa við Eystrasaltið sem er auðvitað bara pollur. • Það ríkir víst ekki gagnkvæm hrifning milli íbúa Stokkhólms og Gautaborgar en sagt er að íbúum höfuðborgarinnar finnist Gautaborgarar kyndugir, ef ekki bara stórskrítnir, á meðan Gautaborgarar kalla þá í Stokkhólmi snobbhænsn sem líti stórt á sig. Þetta eru víst þekktar trakteringar á fleiri stöðum víða um heiminn. • Gautaborg er oft kölluð Litla-London en þegar iðnbyltingin hófst í byrjun 19. aldar bar mikið á því að Englendingar og Skotar settust að í Gautaborg. Þeir stunduðu þá útflutning til Bretlands, efnuðust talsvert á viðskiptunum og margir þeirra þökkuðu fyrir sig með því að láta fé af hendi rakna til uppbyggingar safna, skóla og spítala í Gautaborg – eða í það minnsta Eng- lendingarnir! • Fyrsti fótboltaleikurinn í Svíþjóð fór fram í Gautaborg árið 1892 og er borgin því sögð heimili sænska fótboltans. Eurovision-keppnin fór fram í Gautaborg árið 1985 eftir að Svíar sigruðu með laginu Diggi-Loo Diggi-Ley árið áður. Norðmenn sigruðu svo í Gautaborg með La det swinge. Poppsveitin Ace of Base er sennilega þekktasta poppsveitin sem rekja má til Gautaborgar en hún átti fína smelli seint á síðustu öld eins og til dæmis lagið All That She Wants og The Sign. • Nordstan, eitt stærsta mall Evrópu, er í miðbæ Gautaborgar en þar eru um 180 verslanir og 150 skrifstofur. Þá er einn frægasti skemmtigarður Norðurlandanna, Liseberg Tivoli, í Gautaborg > liseberg.se Séð frá svölunum á heimili Heru og Donna í Sävedalen. Hera í fullum herklæðum. Átta félagslið frá Gautaborg hafa spilað í efstu deild í Svíþjóð en um þessar mundir eru GAIS, Göteborg og Örgryte best. Sjávarfangs-gúrmet er á boðstólum veitingastaða í Gauta- borg og úrvalið ku vera engu líkt. 31/2020 7

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.