Feykir - 19.08.2020, Síða 5
Tindastólsmenn og lið
Hugins/Hattar mættust um
helgina á Egilsstöðum í
rjómablíðu. Þetta voru
fyrstu leikir liðanna að
lokinni COVID-pásunni og
var lið Tindastóls í þriðja
sæti en heimamenn voru í
næstneðsta sæti. Engin
breyting varð á stöðu
liðanna að leik loknum því
liðin skiptu stigunum á milli
sín en lokatölur voru 1-1 eftir
að Stólarnir jöfnuðu enn
eina ferðina í uppbótartíma.
Markalaust var í hálfleik en
á 51. mínútu kom Jesús inn á
hjá heimamönnum og mín-
útu síðar uppskáru Austfirð-
ingarnir fyrsta mark leiksins
sem Þorlákur Baxter gerði.
Eftir þetta settu Stólarnir í
annan gír og gerðu hvað þeir
gátu til að jafna metin. Markið
lét bíða eftir sér en eftir lag-
legan snúning Konna á miðj-
um vellinum náðu Stólarnir
góðri sókn sem lauk með því
að Luke Rae fékk boltann inni
á vítateig Hugins/Hattar og
Petar Mudresa braut á honum.
Dómari leiksins dæmdi víta-
spyrnu og sýndi varnarmanni
heimamanna rauða spjaldið.
Luke skoraði síðan af öryggi úr
spyrnunni og jafnaði þar með
metin. Stólarnir náðu einni
ágætri sókn áður en flautað
var af en náðu ekki að krækja í
stigin þrjú.
Sem fyrr segir er lið Tinda-
stóls í þriðja sæti 3. deildar
með 16 stig að loknum níu
leikjum, hafa unnið fjóra leika,
gert fjögur jafntefli og tapað
einum leik.
Jamie ánægður
með leik Stólanna
Jamie McDunough, þjálfari
Tindastóls, var sáttur við leik
liðsins en hann segir lið
Tindastóls hafa verið með
boltann 75% leiktímans og
heimamenn hafi aðeins skap-
að sér tvö færi í leiknum. „Við
erum svekktir með markið
sem þeir skoruðu. Það er í eina
skiptið í leiknum sem við
gerðum mistök í vörninni og
þeir refsuðu okkur. Þeir
sköpuðu sér tvö færi, eitt úr
aukaspyrnu af löngu færi og
markið. En svona er fót-
boltinn! Frammistaðan eftir
markið var frábær. Við sýnd-
um karakter aftur, héldum
áfram að spila okkur leik til
loka og náðum að skora
markið sem við áttum skilið.
Þetta lið veit ekki hvernig á að
tapa sem er mikil breyting frá
því fyrir ári síðan! Luke Rae
átti mjög erfiðan dag en leik-
plan heimamanna gekk út á að
koma í veg fyrir að hann og
Benjamín fengju eitthvert
pláss,“ segir Jamie sem engu að
síður er gríðarlega ánægður
með Luke og hældi honum
fyrir að krækja í vítið og halda
rónni þegar kom að því að
framkvæma spyrnuna. „Strák-
urinn er bara 19 ára! Það þarf
sterkan karakter til að klára
undir þessum kringumstæð-
um.“
Þá var Jamie ánægður að
hafa endurheimt Fannar Örn
Kolbeinsson en hann skipti
yfir í Magna sl. vetur. „Það er
frábært að fá Fannar Örn
aftur. Hann er einstaklingur
sem er frábært að hafa í liðinu
og hefur reynslu sem við
munum þurfa á að halda
næstu tvo mánuðina.“ Aðeins
15 leikmenn voru í hóp
Tindastóls í gær og segir
Jamie að Stólarnir þurfi að
bæta við sig leikmanni eða
leikmönnum til viðbótar við
Fannar en Michael Ford og
Halldór Broddi eru á förum.
„Þannig að við erum í vand-
ræðum ef menn meiðast eða
lenda í leikbönnum,“ segir
Jamie að lokum. /ÓAB
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR F
Jafnt á Villa Park
3. deild | Huginn/Höttur – Tindastóll 1–1
Þrjár nýjar Stólastúlkur
Kvennalið Tindastóls fær liðsstyrk
Feykir hefur sagt frá því að
í ljósi þess að það kvarn-
aðist úr kvennaliði Tinda-
stóls þá var stefnt að því að
styrkja liðið fyrir síðari
umferðina í Lengjudeild-
inni. Nú í vikulokin höfðu
þrjár stúlkur félagaskipti
yfir í lið Tindastóls og
verða þær klárar í slaginn á
morgun þegar Afturelding
kemur í heimsókn á
Krókinn.
Þetta eru þær Agnes Birta
Stefánsdóttir, miðjumaður
frá Þór/KA, Rakel Sjöfn
Stefánsdóttir, kantmaður/
sóknarmaður sem sömu-
leiðis kemur að láni frá Þór/
KA og loks Lára Mist
Baldursdóttir, miðjumaður
úr Stjörnunni.
Allar koma þær frá liðum
í efstu deild kvenna en hafa
ekki fengið að spila mikið
með liðum sínum í sumar.
Þær munu styrkja hópinn og
auka breiddina hjá liði
Tindastóls eftir að Hallgerð-
ur, Lara Margrét og Anna
Margrét héldu í nám til
Bandaríkjanna nú í lok júlí.
/ÓAB
Fyrsti leikur Stólastúlkna að
loknu COVID-hléi fór fram á
Króknum sl. sunnudag en þá
kom sprækt lið Aftureldingar
í heimsókn á gervigrasið.
Leikurinn var í jafnvægi
fyrstu 60 mínúturnar en þá
fékk Taylor Bennett að líta
rauða spjaldið í liði gestanna.
Heimastúlkur nýttu sér
liðsmuninn og gulltryggðu
góðan sigur. Lokatölur 4-0
og Mur með þrennu.
Lið Tindastóls tefldi fram
þremur nýjum leikmönnum í
dag í byrjunarliði þegar leikið
var í sól og sumaryl á
Króknum og áttu þær allar
ágætan leik þrátt fyrir að hafa
lítið æft með sínu nýja liði.
Eins og oft áður voru mót-
herjar Tindastóls liprari á
boltanum og spiluðu betur sín
á milli en vörn Tindastóls var
sterk og beina leiðin fram
nýttist liðinu vel eins og svo oft
áður. Murielle Tiernan gerði
fyrsta mark leiksins þegar hún
nýtti styrk sinn og hraða og
komst inn fyrir vörn gestanna
á 16. mínútu og skoraði af
öryggi. Hún fékk tvö önnur
dauðafæri í fyrri hálfleik en
brást bogalistin. Lið Aftureld-
ingar var ekki síðra liðið en
þeim gekk illa að skapa sér
færi og staðan 1-0 í hálfleik.
Gestirnir skoruðu mark
snemma í síðari hálfleik sem
dæmt var af og smám saman
jókst pirringurinn í liði gest-
anna og stanslaust dómara-
nöldur var ekki að gefa mikið
– eiginlega síður en svo. Lið
Tindastóls var fast fyrir og gaf
ekki þumlung eftir eins og
eðlilegt er. Á 61. mínútu fékk
Taylor Bennett rautt spjald –
Bryndís Rut, fyrirliði Tindastóls, hirðir boltann af sóknarmanna Aftureldingar. Bryndís átt frábæran leik í vörninni. MYND: ÓAB
Lengjudeild kvenna | Tindastóll – Afturelding 4–0
Góð byrjun Stólastúlkna eftir pásuna
sennilega fyrir að slá til
leikmanns Tindastóls. Þjálfari
gestanna gerðist hávær og
krafðist skýringa og fékk þá
sjálfur að líta rauða spjaldið.
Fimm mínútum síðar bætti
Rakel Sjöfn Stefánsdóttur við
öðru marki fyrir Tindastól
með góðu skoti og nú voru
allar sóknir Stólastúlkna
hættulegar. Lið Aftureldingar
gafst ekki upp og reyndi að
sækja en komst lítt áleiðis.
Mur bætti við tveimur
týpískum Mur-mörkum, því
fyrra á 72. mínútu og því síð-
ara á 89. mínútu eftir frábæra
sendingu frá Bergljótu.
Að leik loknum fékk síðan
aðstoðarþjálfari Aftureldingar
að líta rauða spjaldið þannig
að Mosfellingar náðu í hat-
trick á þeim vígstöðvum. Ekki
efnilegt!
Það var eins og oft áður að
lið Tindastóls hélt boltanum
ekki vel innan liðs framan af
leik og það gekk ekki vel að
koma Jackie í takt við leikinn
en hún er búin að stríða við
meiðsli undanfarið. Vörnin
hélt hins vegar vel og þar
stjórnaði Bryndís umferðinni
eins og herforingi. Lára Mist
Baldursdóttir var sterk sem
djúpur miðjumaður, var fín á
boltanum og vinnusöm.
Hugrún og Rakel Sjöfn voru
mjög líflegar á köntunum
þegar leið á leikinn og vörn
gestanna opnaðist. Mur var
síðan sjálfri sér lík uppi á
toppnum, endalaust hættuleg
og viljug og uppskar verð-
skuldað hat-trick.
Næstkomandi sunnudag
mætast síðan toppliðin í
Lengjudeildinni öðru sinni en
þá fara Stólastúlkur í heim-
sókn til Keflavíkur. /ÓAB
Luke Rae kominn einn í gegn. Myndin er frá því fyrr í sumar. MYND: ÓAB
31/2020 5