Feykir - 19.08.2020, Síða 10
halda opnunarpartý en hætta þurfti við það þar sem
seinni Covid bylgjan var að fara af stað á þessum
tíma og vissara að fara varlega. Hún ætlar því að
halda opnunarteiti síðar. „Ég tækla Covid eins og
allar aðrar stofur í svipuðum bransa, sótthreinsa vel
alla snertifleti milli viðskiptavina, dauðhreinsa öll
tól sem ég nota, er alltaf með grímu og geri þá kröfu
á viðskiptavini mína að vera einnig með grímu og
byrja á því að þvo hendur þegar þær koma inn. Að
öðru leyti finnst mér Covid ekki hafa mikil áhrif á
starfsemina eins og er, ekki nema komi til lokunar
vegna frekari samkomuhafta eins og gerðist í vor,“
segir Hrafnhildur, en eins og aðrir þurfti hún að loka
stofunni heima í samkomubanninu.
Ballerínan vinsælust
Hingað til hafa konur verið helstu viðskiptavinir
Hrafnhildar. Það hefur þó komið fyrir að karlmenn
mæti til hennar í naglasnyrtingu og hún man eftir
einum sem fékk gel á sínar eigin neglur. Segir
Hrafnhildur það þó frekar óvanalegt en jafnframt
skemmtilegt að fá karlana í stólinn þar sem
umræðurnar verði þá af allt öðrum toga. „Allir eru
að sjálfsögðu velkomnir“ segir Hrafnhildur.
Hrafnhildur segist enn ekki hafa fengið neitt
svakalega skrýtnar beiðnir um neglur. Vinsælasta
lögunin á nöglunum er ballerína en þetta er mjög
fjölbreytt, enginn einn stíll vinsælli en annar. Bleikur í
alls konar tónum er vinsæll, frá fölbleikum upp í neon
er það heitasta núna. Vinsælasti liturinn núna heitir
Cosmopolitan frá magnetic. Þjónustan sem í boði
er á stofunni er naglaásetningu, bæði í gel og akrýl.
Einnig að fjarlægja neglur og gellakk á eigin neglur.
Hún vonast þó til þess að geta aukið þjónustuúrvalið
í framtíðinni. Það svakalegasta sem hún hefur þó
lent í er þegar einn viðskiptavinur mætti með hrika-
lega illa brotna
nögl. Hún var
brotin þvert
yfir naglabeðið
og fossblæddi
úr öllu. Eftir að
hafa ráðfært sig
við kennarann
sinn pússaði
Hr a f n h i l du r
nöglina niður,
sótthreinsaði
mjög vel og
setti svo loks
gel aftur ofan
á sárið til að
koma í veg
fyrir frekari
sýkingu. Þetta
gréri svo vel.
„Mér fannst
verst hvað
elsku konan
kvaldist fyrst,
en hugg-
unin var sú
að henni leið
miklu betur
á eftir“ segir
Hrafnhildur og
var ánægð yfir
því að þetta
endaði vel.
En af hverju
Game of
Nails? „Já góð
spurning,“ seg-
ir Hrafnhildur
og hlær. „Þegar
ég var að búa
til Facebook
og Instagram
síður fyrir neglurnar var ég akkúrat að horfa á Game
of Thrones-þættina. Við systurnar fórum að djóka
með að þetta ætti að heita Game of Nails og að cover
ætti að vera glitter is coming. Okkur fannst við vera
ógeðslega fyndnar og ég lét bara vaða. Ég velti því
hins vegar alveg fyrir mér hvort það ætti að vera
annað nafn á stofunni en mér líkaði bara svo vel við
Game of Nails og finnst það líka vera smá skírskotun
í nördinn í mér“.
Noona appið: Game of Nails
Facebook: Game of Nails
Instagram: @gameofnailsiceland
Símanúmer: 8981111
Game of Nails
Sérhæfð naglasnyrtistofa opnar á Sauðárkróki
VIÐTAL
Soffía Helga Valsdóttir
Í byrjun ágúst opnaði naglasnyrtistofan Game
of Nails á Kaupvangstorgi 1 á Sauðárkróki.
Samkvæmt heimildum Feykis mun þetta vera
fyrsta snyrtistofan
sem sérhæfir sig
eingöngu í ásetningu
á gervinöglum hér á
Króknum. Hrafnhildur Viðarsdóttir, eigandi
stofunnar og jafnframt eini starfsmaðurinn, segir
að með því hafi langþráður draumur orðið að
veruleika.
Hrafnhildur er
fædd og uppalin
á Sauðárkróki,
yngri dóttir
h j ó n a n n a
Maríu Grétu
Ólafsdóttur og
Viðars Sverris-
sonar, en þær
systur eiga tvo
eldri samfeðra
h á l f b r æ ð u r .
Hún er gift Loga
Snæ Knútssyni,
verkstjóra hjá
Rarik, og eiga
þau þrjú börn,
Snæbjörn Atla,
15 ára, Fanndísi
Hildi, 10 ára
og Dagmar
Frostrós, 4 ára.
Aðspurð segir
Hrafnhildur að
hana hafi lengi
langað að læra
að gera neglur.
Hún lét verða af
því árið 2017 og
dreif sig í nám
hjá Magnetic
naglaskólanum
í Reykjavík.
Skólinn heldur
stundum nám-
skeið á Akureyri
og nýtti hún sér
það. Hún sér
svo sannarlega
ekki eftir þeirri
á k v ö r ð u n .
„Til að byrja með var ég nú bara að setja neglur á
sjálfa mig, vini og ættingja en svo kom að því að ég
missti vinnuna í fyrri Covid-bylgjunni og ákvað þá
að nú væri bara alveg eins gott að nota tækifærið
og uppfylla þann draum að opna eigin naglastofu,“
segir Hrafnhildur um aðdragandann að því að hún
opnaði stofuna. Hún var alveg óhrædd við að opna
svo sérhæfða snyrtistofu þar sem kúnnahópurinn er
nú ágætlega stór og kemur frá mjög dreifðu svæði,
sumar alveg frá Hvammstanga.
Sumarið var svo nýtt í standsetningu og gat
hún opnað stofuna í byrjun ágúst, sérútbúna
naglasnyrtistofu. Að sögn Hrafnhildar stóð til að
10 31/2020