Feykir


Feykir - 19.08.2020, Síða 11

Feykir - 19.08.2020, Síða 11
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTUR : Tal Sudoku FEYKIFÍN AFÞREYING Krossgáta Feykir spyr... Hvenær lýkur sumrinu í þínum huga? Spurt á Facebook UMSJÓN : bladamadur@feykir.is / SHV „Sumrinu lýkur þegar Pétur Björnsson er kominn í vetrarham, það getur gerst fyrirvaralaust.“ Snorri Geir Snorrason Finna skal út eitt orð úr línunum fjórum. Ótrúlegt - en kannski satt... Schiphol flugvöllur í Amsterdam var tekinn í gagnið þann 16. sept- ember 1916 sem herflugvöllur. Í dag telst hann þriðji annasamasti flugvöllur í Evrópu hvað varðar farþegafjölda og sá sem þarf að annast hvað mestu flugumferð í álfunni. Ótrúlegt, en kannski satt, þá fara um 10.000 hollenskar kýr í gegnum völlinn á hverju ári. Tilvitnun vikunnar Ekki hafa áhyggjur – ég veit eiginlega alveg hvað ég er að gera! – Woody Allen „Þegar skólinn byrjar á haustin.“ Hafdís Einarsdóttir „Þegar skólarnir byrja, þá fer allt aftur í rútínu.“ Helgi Jóhannesson „Þegar ég tek fortjaldið niður í Varmahlíð. Það gerist ekki fyrr en í byrjun október, ef það spáir ekki snjókomu fyrir þann tíma. “ Hafdís Ólafsdóttir LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Algjörlega kýrskýr hugsun ... kónguló, vísaðu mér á berjamó... Fyrir suma er gósentíð framundan, berjatíminn. Næstu vikurnar munu margir fara í berjamó eða hirða ber af runnum, sulta, safta og frysta eins og enginn sé morgundagurinn. Fólk er mis berjaglatt, sumir elska að fara í berjamó á meðan aðrir láta sér nægja að kaupa sultuna tilbúna í krukkunni úti í búð. Feykir mælir hiklaust með því að fara í smá hugleiðslu í berjamó og gróf upp nokkrar berjauppskriftir á veraldarvefnum sem spennandi væri eflaust að prófa. UPPSKRIFT 1 Bláberjaís 250 g bláber 200 g sykur 4 dl þeyttur rjómi 3 eggjahvítur Aðferð: Bláber og 50 g sykur sett í matvinnsluvél og maukað saman. Afgangi af sykri og eggjahvítur þeytt saman þar til blandan verður þykk og ljós. Öllu blandað varlega saman, sett í form og fryst. UPPSKRIFT 2 Krækiberjahlaup 1 líter berjasafi 1 kg sykur 1 bréf gult bréf Melatin (Ath. minna magn en gefið er upp á bréfinu) Aðferð: Skolið berin og hreinsið. Krækiberin sett í pott og soðið upp á þeim í 20 mínútur. Berin eru kramin þar til þau springa og gefa frá sér safann, gott að nota t.d. kartöflustappara. Þá er hratið sigtað frá. Látið standa yfir nótt. Daginn eftir er saftinni hellt í pott og soðið uppá henni með sykrinum í um 10 mínútur eða þar til sykurinn er uppleystur. Ef gera á krækiberjasaft þá er henni hellt af þarna og sett í glerflöskur. Ef gera á hlaup þá er sykur settur saman við berjasafann í pottinum ásamt Melatín dufti sem gott er að blanda saman við 2 msk af sykri svo að það hlaupi ekki í kekki í pottinum, og soðið í 10 mín í viðbót. Safanum svo hellt á krukkur og lokað strax. UPPSKRIFT 3 Rifsberja- eða rabarbarapæ 150 g smjör 100 g hveiti 50 g Graham mjöl (má einnig nota hveiti) 100 g sykur 50 g púðursykur 1 bolli rifsber eða rabarbari 1 bolli brytjuð epli ½ bolli brytjaðar döðlur 1 pk. möndluflögur Þessi uppskrift á upprunalega rætur að rekja til Noregs. Hún er sérlega ljúffeng og í stað rifs- berjanna má einnig nota rabarbara. Aðferð: Smjör skorið í bita og hnoðað létt saman við þurrefnin í skál. Rifsberjum, epla- og döðlubitum dreift jafnt í botninn á smurðu glerformi og dálitlum sykri stráð yfir, einkum yfir rifsberin. Því næst er deigið, sem er laust í sér, mulið jafnt yfir og klappað létt ofan á með höndun- um. Möndluflögum stráð yfir. Bakað við 175°C í 30 mín., eða þar til pæið verður ljósbrúnt á lit. UPPSKRIFT 4 Hrútaberjahlaup 1 kg hrútaber örl. vatn 1 kg strásykur á móti hverjum lítra af saft safi úr einni sítrónu Aðferð: Hrútaberin eru tínd af stilkunum og sett í pott með ca botnfylli af vatni og soðin við vægan hita þar til þau springa. Hellt í gegnum grisju eða sigti. Allt í lagi að kreista aðeins. Saftin mæld í pott, sítrónusafanum bætt út í og soðið í 5 mínútur. Potturinn tekin af hellunni og sykrinum hrært saman við. Hrært þangað til sykurinn er uppleystur. Þá er nóg að gert og hlaupinu hellt í hreinar krukkur og lokað strax. Verði ykkur að góðu! Soffía frænka ( FEYKIR MÆLIR MEÐ ) bladamadur@feykir.is Fátt er búsældarlegra en heimagerð sulta. MYND AF NETINU 31/2020 11 Vísnagátur Sigurkarls Stefánssonar Sögusmettur sitja á mér. Sjá hér stéttarbræðrakver. Skrá þarf rétt nær Skjalda ber. Skáklist fréttnæm rússans er.

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.