Feykir


Feykir - 02.09.2020, Side 2

Feykir - 02.09.2020, Side 2
Senn lýkur sumardvöl minni hér á Feyki. Snemma í vor hefði mér ekki dottið í hug að ég ætti eftir að vinna sem blaðamaður. En þar sem ég er opin að eðlisfari og tilbúin í alls konar áskoranir er ég alltaf að takast á við eitthvað nýtt og skemmtilegt. Já, ótrúlegt en satt þá var ég alveg að fýla þetta starf. Kannski var það ekki bara starfið sem féll mér til geðs, sam- starfsmenn mínir áttu eflaust einhvern þátt í því líka. Þeir sem þekkja til vita að hér hjá Nýprent/ Feyki vinnur samansafn af fag- mönnum, skemmtikröftum, fræði- mönnum og lífskúnstnerum (og konum). Hér ríkir aldrei nein lognmolla og alltaf glatt á hjalla. Umræðurnar líflegar á kaffi- stofunni og fólk ófeimið við að láta skoðanir sínar og lífsmottó í ljós. Engu tækifæri til stríðni og glensi sleppt. Hér finnst mér þó ríkja gagnkvæm virðing á milli fólks, enginn tekur sig of alvarlega og starfsandinn góður. Ætli ég verði ekki að viðurkenna það að ég eigi nú eftir að sakna ykkar þrátt fyrir stutt kynni. Ekki má gleyma lesendum Feykis. Þið virtust taka blautum blaðamanni með opnum hug og vert að þakka fyrir það. Það var hjálplegt að lesa yfir kommentin frá ykkur og skeytin, þó verð ég sérstaklega að þakka honum Helga vini mínum frá því á síðustu öld fyrir hans innlegg og ábendingar. Takk Helgi minn. Þetta hafa verið áhugaverðir og skemmtilegir mánuðir. Ég hef margt lært og tel mig nú þekkja mun betur til Norðurlands vestra og nærsveita eftir þetta sumar og mun hér eftir fylgjast betur með því sem er að gerast á svæðinu. Af ógrynni er að taka og eins og þið öll eflaust vitið er hér nóg um að vera. En ég þakka fyrir mig í bili. Sjáumst vonandi sem fyrst, þá eflaust að gera eitthvað nýtt og skemmtilegt. Soffía Helga Valsdóttir, blaðamaður LEIÐARI Veriði sæl Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842 Blaðamenn: Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is Soffía Helga Valsdóttir, bladamadur@feykir.is Auglýsingastjóri: Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is Áskriftarverð: 585 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 720 kr. m.vsk. Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf. Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum Aflatölur 5. júlí – 28. ágúst 2020 3735 tonn síðustu átta vikurnar SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG Guðrún Ragna HU 162 Lína 779 Hafdís HU 85 Handfæri 3.779 Hafdís HU 85 Línutrekt 10.760 Hafrún HU 12 Dragnót 117.711 Hafrún HU 12 Handfæri 4.710 Hjalti HU 313 Handfæri 9.067 Hjördís HU 16 Handfæri 5.615 Hrund HU 15 Handfæri 23.281 Húni HU 62 Handfæri 22.947 Indriði Kristins BA 751 Lína 18.052 Ísak Örn HU 151 Handfæri 816 Jenny HU 40 Handfæri 5.131 Kambur HU 24 Handfæri 17.002 Kári SH 78 Handfæri 7.715 Kópur HU 118 Handfæri 8.874 Kristinn HU 812 Landbeitt lína 28.402 Kristín HU 219 Handfæri 2.323 Loftur HU 717 Handfæri 13.781 Magnús HU 23 Handfæri 20.683 Magnús HU 23 Landbeitt lína 1.001 Már HU 545 Handfæri 1.456 Ólafur Magnússon HU 54 Handfæri 5.280 Ólafur Magnússon HU 54 Þorskfisknet 3.677 Ragnar Alfreðs GK 183 Handfæri 1.601 Rán SH 307 Landbeitt lína 20.857 Rán SH 307 Lína 2.404 Sandvík KE 79 Handfæri 8.738 Straumey EA 50 Lína 53.863 Svalur HU 124 Handfæri 2.098 Sæunn HU 30 Handfæri 12.959 Sævík GK 757 Lína 92.672 Tóki ST 100 Handfæri 1.695 Tryggvi Eðvards SH 2 Handfæri 10.483 Viktor Sig HU 66 Handfæri 9.238 Viktoría HU 10 Handfæri 5.521 Víðir EA 423 Handfæri 148 Víðir ÞH 210 Handfæri 1.309 Alls á Skagaströnd 858.342 HOFSÓS Gaffallinn EA 0 Sjóstöng 711 Geisli SK 66 Handfæri 8.115 Skáley SK 32 Handfæri 10.718 Skotta SK 138 Handfæri 5.232 Þorgrímur SK 27 Landbeitt lína 6.592 Alls á Hofsósi 31.368 HVAMMSTANGI Harpa HU 4 Dragnót 11.309 Steini HU 45 Handfæri 105.043 Alls á Hvammstanga 116.352 SAUÐÁRKRÓKUR Akurey AK 10 Botnvarpa 632.880 Arnar HU 1 Botnvarpa 989.489 Drangey SK 2 Botnvarpa 136.919 Fannar SK 11 Handfæri 15.963 Fjölnir GK 157 Lína 52.480 Gammur SK 13 Handfæri 4.758 Gjávík SK 20 Handfæri 4.458 Hafborg SK 54 Handfæri 16.044 Hafey SK 10 Botnvarpa 785 Hafey SK 10 Handfæri 10.383 Hafsól SK 96 Handfæri 1.263 Jóhanna Gíslad. GK 557 Lína 52.482 Kaldi SK 121 Handfæri 4.983 Kristín SK 77 Handfæri 2.539 Maró SK 33 Handfæri 928 Málmey SK 1 Botnvarpa 141.863 Már SK 90 Handfæri 10.024 Onni HU 36 Dragnót 80.477 Óskar SK 13 Lína 152 Óskar SK 13 Handfæri 857 Silver Bergen NO 999 Rækjuvarpa 268.885 Skvetta SK 7 Handfæri 7.482 Steini G SK 14 Handfæri 4.795 Sæfari HU 212 Landbeitt lína 7.935 Sævík GK 757 Lína 3.668 Viðey RE 50 Botnvarpa 266.960 Vinur SK 22 Handfæri 10.319 Alls á Sauðárkróki 2.729.771 SKAGASTRÖND Addi afi GK 97 Handfæri 4.571 Addi afi GK 97 Landbeitt lína 5.880 Alda HU 112 Handfæri 14.372 Bergur Sterki HU 17 Lína 68.244 Bergur Vigfús GK 43 Handfæri 1.882 Birta Dís GK 135 Handfæri 5.045 Bjartur í Vík HU 11 Handfæri 11.874 Blíðfari HU 52 Handfæri 13.238 Blær HU 77 Handfæri 1.399 Blær HU 77 Landbeitt lína 5.127 Bogga í Vík HU 6 Handfæri 6.562 Bragi Magg HU 70 Handfæri 17.063 Dagrún HU 121 Handfæri 13.094 Dúddi Gísla GK 48 Lína 47.885 Elfa HU 191 Handfæri 15.125 Elín ÞH 82 Handfæri 6.646 Fengsæll HU 56 Handfæri 22.917 Geiri HU 69 Handfæri 12.501 Greifinn SK 19 Handfæri 5.843 Guðrún Petrína GK 107 Handfæri 10.070 Guðrún Ragna HU 162 Handfæri 12.576 Síðastliðnar átta vikur hafa engar aflatölur verið birtar í Feyki fyrir Norðurland vestra en hér fyrir neðan má sjá að margir hafa verið duglegir á strandveiðunum í sumar. Alls lönduðu 50 bátar á Skagaströnd, flestir handfærabátar, og var samanlagður afli þeirra rúmlega 381 tonn. Aflahæstur var línubáturinn Hrund HU með 23 tonn. Á Sauðárkróki var landað rúmum 2.729 tonnum og var það Arnar HU 1 sem átti tæp 989 tonn af þeim afla. Fimm bátar lönduðu á Hofsósi rúmum 31 tonni og á Hvammstanga lönduðu tveir bátar rúmum 116 tonnum. Heildarafli síðustu átta vikurnar á Norðurlandi vestra var 3.735.833 kíló. /SG Sæluvikan blásin af COVID-19 | Setur strik í menningarlífið Ekkert verður af Sæluviku sem ráðgert hafði verið að halda í lok september sam- kvæmt heimildum Feykis. Áður en blaðið fór í prentun í gær fengust þær upplýsingar hjá Svf. Skagafirði að atvinnu-, menningar- og kynningar- nefnd myndi funda í dag og þar tekin formleg ákvörðun um afblásturinn. Í síðustu viku tók stjórn Leikfélag Sauðárkróks ákvörð- un um að fresta sýningu á nýju leikriti Péturs Guðjónssonar, sem æfingar voru hafnar á sl. vetur. Ráðgert hafði verið að frumsýna í Sæluviku, sem var svo frestað fram á haustið. Til stóð að taka þráðinn upp á ný fyrir haustið en nú er útséð með það að ekki verður sýnt fyrr en í næstu Sæluviku. /PF Sóttvarnir í sveitinni Bændur fá aðgöngumiða í réttir Fjallskilastjórn Miðfirðinga kom saman sl. sunnudag og fór yfir þær reglur sem sem settar hafa verið af yfirvöldum vegna gangna- og réttastarfa þetta haustið. Til að lágmarka fjölda sem kemur saman í réttinni hverju sinni er stefnt að því að Núpsheiðarsafn komi fyrst til réttar kl. 11, Húksheiði komi kl 13 og Aðalbólsheiðir komi til réttar kl 15. Hrossarétt hefst kl. 18:30. Fjallskilastjórn mun útdeilda miðum niður á bæi sem gefur rétt til þátttöku í réttarstörfum. Einn miði fer á þá bæi sem eiga fjárvon í réttinni en það ættu að vera tólf bæir, sex miðar á hvern bæ sem á færri en 200 ær á heiði og níu miðar fara á þá bæi sem eiga fleiri en 200 ær á heiði. Vegna fjöldatakmarkana verður gestum hvergi heimilt að koma til réttarstarfa eins og verið hefur en gefnar hafa verið út leiðbeiningar vegna gangna og rétta út af COVID-19. Mælst er til þess að fjöldi aðila við réttarstörf verði ekki fleiri en 100 manns, börn fædd 2005 eða síðar eru undanskilin þeim reglum, og hliðvarsla verður við aðkeyrslu að réttum og þangað inn verður aðeins hleypt þeim sem þar eiga erindi. Allir sem taka þátt í göngum og réttum skulu hlaða niður smitrakningarappi almannavarna og ekki er mælst til þess að áfengi sé haft um hönd við réttarstörf. /PF 2 33/2020

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.