Feykir - 02.09.2020, Qupperneq 10
„Það er mjög mikilvægt
fyrir stofnun eins og
okkar að eiga svona
góðan bakhjarl,“ segir
Kristrún Snjólfsdóttir,
yfirhjúkrunarfræðingur
á heilbrigðisstofnuninni
á Sauðárkróki, en sl.
fimmtudag afhenti
stjórn Menningarsjóðs
Kaupfélags Skagfirðinga
stofnuninni höfðinglegar
gjafir sem sannarlega
koma öllum vel.
Um er að ræða fimm stór
snjallsjónvörp og fóru tvö
þeirra á sjúkradeild, eitt á
deild III, annað á deild V og
það fimmta á deild VI.
Fjórir Bluetooth hátalarar,
sitthvor á deild III og deild VI
og tveir á deild V.
Tíu lítil útvarpstæki með
heyrnatólum sem fóru á
sjúkradeild.
Hljóðkerfi fyrir deild II,
lítið hljóðkerfi, eða magnari,
fyrir tómstundastarf sem
nýtist vel þegar lesið er upp úr
bókum eða öðru.
Tveir DVD spilarar sem
fóru á deild III og V.
Með gjöfinni fylgdi upp-
setning á tækjunum og segir
Kristrún allt vera komið í
notkun og komi til með að
nýtast afar vel.
Bjarni Maronsson, formað-
ur Menningarsjóðs KS og
stjórnarformaður Kaupfélags-
ins, bauð gesti velkomna, sem
voru í færra lagi vegna Covid
ástands, og rakti sögu sjóðsins
sem á sér langa og merka
sögu. Í máli Bjarna kom fram
að síðustu ár hefur sá háttur
verið hafður á að tvisvar á
ári er veitt úr sjóðnum til
menningar og framfaramála.
Taldi hann þá gjöf sem þarna
var verið að afhenda formlega
rúmast vel innan þess
ramma þar sem menning og
framfaramál eru iðulega flutt
í fjölmiðlum landsins.
„Þá gerist það í vor þegar
við erum að ræða úthlutanir
og fara yfir umsóknir að það
kemur upp sú hugmynd hvort
við getum ekki lagt þessari
stofnun lið með þeim hætti
að auka aðgengi fólks, sem
hér dvelur, með nýjustu tækni
til þess að miðla afþreyingu
og menningarefni til þeirra,“
sagði Bjarni í ávarpi sínu. Var
ákveðið, að höfðu samráði
við Kristrúnu, að gera þetta
og sendi hún lista yfir þau
tæki sem gætu komið til
greina. Sagði Kristrún í
sínu þakkarávarpi að ekki
hefði hún búist við því að öll
tækin sem nefnd voru yrðu á
endanum á gjafalistanum.
„Við höfum oft velt því
fyrir okkur, við sem hér
störfum, hvernig við værum
tækjum búin ef ekki nyti við
þau félagasamtök og ein-
staklingar í Skagafirði sem
hafa lagt okkur lið í gegnum
tíðina. Það verður að segjast
eins og er að það er grunnurinn
að þeim tækjabúnaði sem
Margur tækjabúnaðurinn
fenginn fyrir gjafafé
Menningarsjóður KS færir HSN höfðinglegar gjafir
UMFJÖLLUN
Páll Friðriksson
Allir kátir með rjómatertuna.
AÐSEND MYND
Kristrún Snjólfsdóttir, yfirhjúkrunarfræðingur, og Bjarni Maronsson, formaður Menningarsjóðs KS, kampakát með daginn enda
tilefni til. MYNDIR AF NETINU
hér er fenginn fyrir gjafafé
og Kaupfélagið hefur verið
þar öflugt og vil ég þakka
þeim fyrir þær gjafir og þann
hlýhug sem að baki þeim
býr,“ sagði Örn Ragnarsson,
framkvæmdastjóri lækninga.
Að loknum ávörpum og
þakkarorðum var boðið upp
á kaffi og ljúffengar tertur á
öllum deildum sjúkrahússins
sem gerðar voru góð skil.
Menningarsjóður KS
Á heimasíðu Kaupfélags
Skagfirðinga kemur fram
að á vegum félagsins hafi
menningarsjóður starfað í
um 40 ár, sem hefur styrkt
margskonar menningarstarf-
semi í Skagafirði gegn
um árin. „Má þar nefna
styrki til kóra og annarrar
tónlistarstarfsemi, leikfélaga,
íþrótta- og æskulýðsstarfsemi
og styrki til listamanna. Á
fjörutíu ára afmæli sjóðsins
ákvað stjórnin að taka upp
sérstakar viðurkenningar
með fjárframlagi til þeirra
verkefna, sem teljast sérstak-
lega markverð og þýðingar-
mikil fyrir menningar- og
félagslíf í Skagafirði og
nefnist styrkurinn Skagfirskt
Framtak.“ Í stjórn sjóðsins
sitja Bjarni Maronsson, for-
maður, Þórólfur Gíslason,
kaupfélagsstjóri, Einar Gísla-
son, Efemía Björnsdóttir og
Inga Valdís Tómasdóttir.
Frá afhendingunni, fámennt en góðmennt.
MYND: PF
Inga Valdís Tómasdóttir hefur lengi setið í stjórn Menningarsjóðs KS.
MYND: PF
Ekki amalegt að fá tertu í boði KS.
AÐSEND MYND
10 33/2020