Feykir - 09.09.2020, Síða 2
„Verið velkomin í sunnudagaskólann í kirkjunni,“ segir í
auglýsingu frá þjóðkirkjunni sem vakið hefur mikla athygli,
ekki fyrir starfið sjálft heldur myndina sem þessi orð eru
skrifuð á. Hún á að sýna Jesú Krist,
glaðlynd börn að leik, regnboga,
og konur sem veifa úr gluggum
kirkju, önnur þeirra með slæðu
sem minnir á klæðnað kvenna í
öðrum trúarhópi. Það sem helst
hefur farið fyrir brjóstið á fólki er
sú staðreynd að þarna er Jesú
hafður með brjóst og sýnist mér
hann einnig í kjól, frekar en hinum
hefðbundna víða serk. Þá er Jesú
einnig með farða.
Halldór Gunnarsson, fyrrverandi sóknarprestur í Holti,
skorar á fulltrúa kirkjuþings, sem kemur saman á morgun, að
þeir veiti biskupi Íslands, Agnesi M. Sigurðardóttur, áminningu
vegna þessarar ósmekkvísi og trúarbrenglun sem myndin
býður upp á.
Pétur G. Markan, samskiptastjóri hjá þjóðkirkjunni segir í
samtali við mbl.is að myndin endurspegli fyrst og fremst
samfélagið sem við búum í. Myndirnar létu þau gera fyrir
auglýsingar á sunnudagaskóla kirkjunnar. „Hugmyndin að
myndefninu er að fanga samfélagið sem við öll viljum tilheyra;
réttlátt, fordómalaust og kærleiksríkt umhverfismiðað sam-
félag sem einblínir á kærleiksboðskap Jesú Krists í stað þess að
hengja sig í hvers kyns hann hafi verið. Það skiptir ekki máli,“
segir Pétur.
Þarna er ég Pétri sammála. Kærleikurinn er ofar öllu.
Sérhverjar hugmyndir manna um það hvernig Jesú hafi litið út
eru hreinar ágiskanir. Mjallahvítur síðhærður, hávaxinn,
ungur maður með engilsásjónu, er sú mynd sem mér hefur
verið innprentað. En var hann svo útlítandi? Það efast ég
stórlega um, vitandi hvaðan hann er upprunninn. En það
skiptir ekki máli. Það er kærleikurinn sem skiptir máli.
Halli Hallssyni, fyrrverandi fréttamanni er brugðið yfir
þessari myndnotkun og spyr í Facebook-færslu hvort foreldr-
um sé óhætt að senda börn sín í sunnudagaskólann. „Hvernig
koma þau til baka?“ spyr Hallur. Eflaust eru einhverjir
sammála Halli og efast um að þau börn sem fara í
sunnudagaskólann komi heim til sín með öllum mjalla eftir
heimsókn í kirkjuna. Gunnar Þorsteinsson, kenndur við
Krossinn, tekur í sama streng og skrifar: „Boðar Þjóðkirkjan
annan Krist en þann sem Biblían boðar?“
Þetta er dapurlegt. Ég fagna því að kirkjan sé að opna sig
fyrir fjölbreytileikanum. Allir eiga heima í kirkjunni sem þess
óska. Þegar ég lít til baka man ég ekki betur en að fordómar
gagnvart „hinsegin“ fólki hafi verið alls ráðandi í samfélaginu
og ég ekki barnanna bestur í ömurlegum upphrópunum. Ég
skammast mín fyrir það í dag og fagna fjölbreytileikanum nú
og þeim árangri sem baráttufólk fyrir betri kjörum og rétt-
indum þessa fólks hefur náð í gegnum tíðina.
Jesús elskar alla menn, þá er átt við alla, sama af hvaða kyni
og hversu mörg kynin eru. Alla vega sá sem ég þekki: Jesús
bróðir besti, já eða systir.
Páll Friðriksson, ritstjóri
LEIÐARI
Kristur í hvítum kjól
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842
Blaðamenn:
Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is | Soffía Helga Valsdóttir, bladamadur@feykir.is
Prófarkalestur: Fríða Eyjólfsdóttir
Auglýsingastjóri: Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is
Áskriftarverð: 585 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 720 kr. m.vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171.
Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Rafhleðslustöðvar á Húnavöllum
Hægt að hlaða fjóra bíla í senn
Á Húnavöllum hafa verið settar
upp tvær rafbílahleðslustöðv-
ar, tvisvar sinnum 22 kW hvor
stöð, og því hægt er að hlaða
fjóra rafbíla í senn og fræðilega
getur hleðsla því orðið 88kW
ef rafbílar gætu tekið við því
afli.
Til að heimtaug Húnavalla-
skóla fari ekki á yfirálag, ef
hleðsla væri svo mikil á sama
tíma og mikið álag væri á
svæðinu, minnkar straumurinn
að rafbílum sem því nemur og
eru því hleðslustöðvar álags-
stýrðar með nýjustu tækni í
þeim málum.
Á heimasíðu Húnavatns-
hrepps kemur fram að stöðv-
arnar styðji samskiptastaðalinn
OCPP 1.6 til álagstýringar og
greiðslulausna og eru tilbúnar
fyrir staðal ISO15118 sem gerir
raforkukerfi kleift að nýta orku
rafbíla og þannig keyra raf-
orku frá rafhlöðu rafbíla inn á
raforkukerfið en ekki mun
verða þörf að nýta þá tækni
eins og er. /PF
Aflatölur 29. ágúst – 4. september 2020 á Norðurlandi vestra
Málmey SK 1 aflahæst í síðustu viku
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
Dúddi Gísl GK 48 Lína 17.704
Elfa HU 191 Handfæri 1.927
Fengsæll HU 56 Handfæri 1.766
Guðrún Petra GK 107 Handfæri 3.916
Hafdís HU 85 Handfæri 535
Hafrún HU 12 Dragnót 23.655
Hjalti HU 313 Handfæri 945
Húni HU 62 Handfæri 1.133
Kristinn HU 812 Landbeitt lína 41.815
Kristín HU 219 Handfæri 404
Magnús HU23 Landbeitt lína 3.631
Ólafur Magnússon HU 54 Handfæri 557
Ragnar Alfreðs GK 183 Handfæri 5.389
Rán SH 307 Landbeitt lína 16.399
Steinunn SF 10 Botnvarpa 55.464
Straumey EA 50 Lína 14.266
Sævík GK 757 Lína 41.059
Viktoría HU 10 Handfæri 528
Alls á Skagaströnd 254.060 SAUÐÁRKRÓKUR
Akurey AK 10 Botnvarpa 123.704
Drangey SK 2 Botnvarpa 60.958
Fjölnir GK 157 Lína 83.321
Gammur SK 12 Handfæri 200
Hafborg SK 54 Handfæri 2.239
Helga María RE 1 Botnvarpa 61.896
Málmey SK 1 Botnvarpa 152.906
Onni HU 36 Dragnót 10.636
Óskar SK 13 Handfæri 1.023
Sæfari HU 212 Landbeitt lína 1.194
Alls á Sauðárkróki 498.077 SKAGASTRÖND
Addi afi GK 97 Landbeitt lína 9.113
Auður HU 94 Handfæri 1.421
Bergur Sterki HU 17 Lína 7.005
Birta Dís GK 135 Handfæri 3.653
Bragi Magg HU 70 Handfæri 1.775
Heildarafli síðustu viku á Norðurlandi vestra var 752.137 kíló. Akurey AK 10 landaði á
Sauðárkróki tæpum 124 tonnum en Málmey SK 1 var aflahæst með tæp 153 tonn. Þá var alls
landað á Sauðárkróki 498.077 kg. Til Skagastrandar bárust 254 tonn og var Steinunn SF 10
aflahæst með 55 tonn af 254 tonnum sem komu á land. Enginn landaði á Hvammstanga eða
Hofsósi. /SG
Fyrsti bíllinn hlaðinn.
MYND: HUNAVATNSHREPPUR.IS
Veðurspá Veðurklúbbsins á Dalbæ
September mildur
en vætusamur
Tíðin hefur verið heldur rysjótt
það sem af er september:
Strekkingur, rigning, allhvasst,
él, átta stiga hiti, oná pollum
örþunn skel, … svo vantar að
botna. En þann 1. september
kl. 14 komu tíu félagar
Veðurklúbbsins á Dalbæ
saman til fundar og fóru yfir
síðasta spágildi.
Samkvæmt skeyti frá Dalvík
voru spámenn allir mjög sáttir
með hvernig veðrið gekk eftir. Í
skeytinu segir að ríkjandi tungl
hafi kviknað þann 19. ágúst sl.
en nýtt tungl kvikni svo þann
17. september kl. 11 í suðaustri.
Telja veðurspámenn september
verða mildan en vætusaman.
„Það er ekki ólíklegt að
aðeins gráni í toppa. Áttir verða
breytilegar. Gangnamenn og
konur þurfa að hafa með sér
regnföt til vonar og vara í
göngurnar,“ segja klúbbfélagar
sem óska öllum góðs gengis við
smölun. Fundi lauk kl 14:20.
Með gangnakveðjum spá-
manna fylgir veðurvísa:
Í ágúst slá menn engið
og börnin tína ber
Í september fer söngfugl
og sumardýrðin þver.
/PF
Blönduósskirkja
Jazz-
tónleikar
Gítarleikarinn Andrés Þór
Gunnlaugsson og píanistinn
Agnar Már Magnússon
munu koma fram á tón-
leikum í Blönduósskirkju
sunnudaginn 13. september
kl. 16:00.
Tónleikarnir eru hluti af
tónleikaröð, en Andrés og
Agnar fengu styrk frá
Tónaland - landsbyggðar-
tónleikar vegna verkefnis-
ins. Á efnisskránni eru
tónverk eftir þá félaga, auk
laga eftir Jón Múla, Cole
Porter og Luiz Bonfa.
Tónleikarnir eru hluti af
tónleikaröð sem sóknar-
nefnd Blönduósskirkju
stendur fyrir í vetur. /PF
2 34/2020