Feykir


Feykir - 09.09.2020, Qupperneq 12

Feykir - 09.09.2020, Qupperneq 12
Ertu með fréttaskot, mynd eða annað skemmtilegt efni í Feyki? Hafðu samband. Síminn er 455 7176 og netfangið feykir@feykir.is 34 TBL 9. september 2020 40. árgangur Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981 Í sumar hafa nokkrar tíu ára stelpur á Sauðár- króki hist reglulega og hlaupið góðgerðahlaup til styrktar Barnaspítala Hringsins. Það var fyrir tilstilli Hasna Boucham, móður einnar úr hópnum, sem stelpurnar byrjuðu að hlaupa og var það gert að fyrirmynd góðgerðaverkefnis í Bandaríkjunum sem kallast Girls on the run. Verkefnið gengur út á það að stelpurnar hittast einu sinni til þrisvar í viku og hlaupa tiltekna vegalengd og safna upphæð fyrir hvern hring sem þær hlaupa. Tilgangurinn er að sýna stelpunum að með sam- stilltu átaki nái þær að áorka einhverju sérstöku um leið og þær efla sjálfstraust sitt og huga að líkamlegri og andlegri heilsu. Hasna hafði hugsað þetta verkefni fyrir sig og dóttur sína, Syrine, en vinkonurnar voru fljótar að taka við sér og urðu þær sjö sem hlupu saman. Þær hittust reglulega í allt sumar og hlupu nokkra hringi á hlaupabrautinni á Sauðárkróksvelli og fengu 100 kr. fyrir hvern hring sem þær hlupu. Fyrir skömmu var svo lokahlaupið þar sem stelpurnar mættu í búningum og hlupu við tónlist og fengu svo hress- ingu að hlaupi loknu. Hasna segir að þetta hafi gengið mjög vel og að hún sé mjög stolt af stelpunum fyrir að hafa haldið þetta út allt sumarið. Suma daga hafi þær ekki nennt að hlaupa marga hringi en eitt af markmiðunum er að sýna þeim að margt smátt gerir eitt stórt. Þær hlupu samtals 206 hringi og munu því leggja 20.600 kr. inn á reikning hjá Barnaspítala Hringsins. „Þetta tókst mjög vel og stelpurnar eru svo ánægðar með sig og vilja endilega gera þetta aftur. Við munum halda þessu áfram seinna“ segir Hasna. /SVH Þeim sem vilja kynna sér góðgerðarverkefni Girls on the run er bent á heimasíðuna þeirra: girlsontherun.org Stelpur – on the run Góðgerðarhlaup fyrir Barnaspítala Hringsins Gígja Rós Bjarnadóttir, Natalía Rós Viktorsdóttir, Lóa Dröfn Þorláksdóttir, Katla Maren Þorsteinsdóttir Ásthildur Una Björgvinsdóttir og Syrine Pálína Boucham Róbersdóttir, ánægðar með árangurinn eftir sumarið. Myndun gaf hópnum bolina sem þær eru í. Kristín Guðrún Eggertsdóttir var fjarverandi. MYNDIR: SHV Við óskum Sauðárkróksbakaríi til hamingju með 140 ára afmælið Sauðárkróki Sími 455 8000 www.fnv.is Sæmundargötu 1 Sauðárkróki Sími 571 7888 Skarðseyri 2 550 Sauðárkróki & 453 5581 Ártorgi 1 550 Sauðárkróki Sími 455 4500 Sauðárkróki Sími 455 3000 www.steinull.is Sími 528 9000 | www.rarik.is LÖGREGLAN Á NORÐURLANDI VESTRA Sími 444 0700 www.logreglan.is Æðadúnn | Hraun á Skaga www.hraunaskaga.is www.ssnv.is Sími 455 2510 Family Farm Hraun á Skaga: A century of eiderdown harvest Hraun á Skaga is a small family farm located on the northernmost tip of the Skagafjördur peninsula in north Iceland, just under the Arctic Circle. For a century now, the main harvest from this barren land has been the gentle practice of eiderdown collection. In 1914 three eider ducks made their nests on the farm, today their count lies between 2000 to 3000 couples every spring. This symbiotic relationship—cultivated at Hraun á Skaga now for four generations, in Iceland for over nine centuries– signifies an extraordinary partnership between bird and human, a unique interspecies bond that leads both to thrive. Eiderdown is the warmest feather in the world and the best thermal insulation nature has to offer. It is highly efficient, extremely lightweight and very soft to the touch. The eiderdown in the duvets of Hraun á Skaga is 100% natural, hand-cleaned without any additives. All duvets are signed and sealed by the Icelan- dic National Eider Down Quality Control Agency, which certifies that the down is of Premium Class Qual- ity and confirms the exact weight of the pure eider down that the duvet contains. If you would like to pur- chase a Hraun á Skaga eiderdown duvet, please contact us at skagahraun@simnet.is or visit our website at www.hraunaskaga.is H Ö N N U N P R E N T U N S K I L T A G E R Ð Borgarflöt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is Borgarflöt 1 550 Sauðárkróki Sími 455 7171 Hesteyri 2 Sauðárkróki Sími 455 4500 SAUÐÁRKRÓKI Sími 455 4692 www.ks.is HOFSÓSI Verslun Haraldar Júlíussonar Aðalgötu 22 550 Sauðárkróki Sími 453 5124

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.