Feykir - 16.09.2020, Blaðsíða 2
Enn á ný standa öll spjót á ríkisstjórn Íslands varðandi
brottvikningu egypskrar fjölskyldu af landinu í dag. Málið
hefur vakið mikla athygli undanfarna daga og sitt sýnist
hverjum. Þannig hafa margir þá
skoðun að einungis sé verið að
fara eftir settum lögum og regl-
um, sem ég tel líklegt, meðan
aðrir telja jafnvel að um hreina
illsku sé að ræða eða í næstversta
falli hluttektarleysi valdhafa.
Efalaust er verið að fara eftir
lögum og reglum um hælisleit-
endur á Íslandi þegar sú ákvörðun
er tekin að vísa fjölskyldunni úr landi þar sem hún hefur
væntanlega ekki uppfyllt þau skilyrði sem hælisleitendum
eru sett. En hvernig í ósköpunum má það vera að þetta sé
framkvæmt tveimur árum eftir að fólkið kom til landsins.
Það skil ég ekki. Mér sýnist stjórnmálamenn eiga erfitt þegar
þeir eru spurðir út í málið en enginn vill stíga fram og breyta
ákvörðun Útlendingastofnunar. Það væri heldur ekki góð
stjórnsýsla að gefa eftir vegna þrýstings almennings þótt ekki
ætti að útiloka það.
Svo virðist sem sum mál séu tekin upp af góðhjörtuðum
einstaklingum sem vilja þessu fólki allt hið besta og er það
vel. Bent hefur verið á að þessi umrædda egypska fjölskylda
sem hefur verið hér í tvö ár gæti hæglega nýst í okkar
samfélagi og efast ég ekki um það en það verður að fara eftir
þeim leikreglum sem settar eru í hverju landi. Hugsanlega
eru reglurnar of harðar en þær eru samt settar af okkar
ráðamönnum, ekki einstaka ráðherrum eða þingmönnum.
Ég held að allir séu sammála því að sá langi tími sem fólki er
haldið í óvissu meðan málið fær úrlausn í kerfinu sé ómann-
úðlegur fyrir alla, ekki síst börnin sem stundað hafa nám í
Reykjanesbæ sl. tvö ár, auk þess sem eitt þeirra byrjaði í fyrsta
bekk í haust.
Þegar þessi pistill er í smíðum eru þrjár beiðnir af hálfu
egypsku fjölskyldunnar sem bíða meðferðar hjá kærunefnd
útlendingamála, skv. ruv.is, ein frestunarbeiðni og tvær
endurupptökubeiðnir.
Vonandi fær þessi lánlausa fjölskylda réttláta meðferð hjá
Íslendingum og svo má brýna fyrir stjórnvöldum að sníða
reglur þannig að enginn þurfi að upplifa slíkt aftur. Það
hlýtur að vera hægt að stytta úrlausnarferlið.
Lifið heil.
Páll Friðriksson, ritstjóri
LEIÐARI
Óskiljanlega langur úrlausnartími
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842
Blaðamenn:
Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is | Soffía Helga Valsdóttir, bladamadur@feykir.is
Prófarkalestur: Fríða Eyjólfsdóttir
Auglýsingastjóri: Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is
Áskriftarverð: 585 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 720 kr. m.vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171.
Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Náttúruvænir nemendur
Settu niður 600 krókusa
Nemendur í Blönduskóla tóku
þátt í skemmtilegu verkefni í
síðustu viku er þeir settu niður
600 haustlauka sem kallast
krókusar í kirkjuhólinn á
Blönduósi. Björk Bjarnadóttir,
umhverfisþjóðfræðingur og
fyrrverandi nemandi við
skólann, hafði yfirumsjón með
verkefninu og nutu nemendur
aðstoðar hennar auk starfsfólks
Blönduskóla og Snjólaugar hjá
áhaldahúsi Blönduósbæjar.
Þar kemur fram að Björk
hafi fengið hugmyndina í vor
þegar hún dvaldi hjá foreldrum
sínum og gekk mikið um
bæinn með son sinn í barna-
vagni. Þá blasti kirkjuhólinn
við gulur og líflaus og Björk sá
að þarna væri svæði sem gaman
væri að fegra með krókusum.
Hún setti sig í samband við
skólastjóra Blönduskóla og
hann, ásamt öðru starfsfólki
skólans, tók vel í hugmyndina
um að fegra kirkjuhólinn. Björk
fékk upplýsingar frá starfsfólki
Grasagarðsins í Reykjavík og
var það henni innan handar
um pöntun á laukum og
hvernig ætti að bera sig að við
gróðursetningu.
Litir og fegurð krókusanna
munu gleðja þá sem bíða eftir
vorinu. Þar sem þeir eru
fjölærir og fjölga sér þá verður
hægt að sjá þessa lauka á hverju
vori í marga áratugi. Þeir eru
fjólubláir, hvítir og gulir. Oftast
byrja þeir að blómstra um
miðjan mars og standa fram í
apríl.
Markmið verkefnisins er að
gleðja augað og fræða fólk á
Blönduósi, sem og annars
staðar, um hve gaman og
auðvelt sé að fegra umhverfi sitt
ef allir hjálpast að. „Að skilja
eitthvað eftir sig sem blómstrar
á hverju vori er fagurt og göfugt
verkefni, sem mun vonandi
vekja áhuga fólks á Blönduósi,
sem og annars staðar, að fegra
umhverfi sitt með hinum ýmsu
laukum, blómum, grænmetis-
eða trjáræktun,“ segir á vef
Blönduskóla. /HÚNI.IS
Krókusar settir í jörðina. MYND: BLONDUSKOLI.IS
Votlendissjóður
Fyllt upp
í 4,5 km af
skurðum á
Gottorp
Einar Bárðarson, fram-
kvæmdastjóri Votlendis-
sjóðs, hefur sótt um
framkvæmdaleyfi fyrir
endurheimt votlendis á
jörðinni Gottorp í Húna-
þingi. Á svæðinu sem um
ræðir, eru skurðir sem
áætlað er að séu alls 4,5 km
að lengd.
Í fundargerð skipulags-
og umhverfisráðs Húna-
þings vestra frá því í síðustu
viku kemur fram að fyrir-
hugað sé að fylla upp í hluta
þessara skurða að fullu með
uppgreftri, sem að þeim
liggur, en í öðrum skurðum
er áætlað að gera litlar
„stíflur“ með reglulegu
millibili. Þjappað verður
ofan í skurðstæði svo
fyllingar skolist ekki til og
hliðargróður skurða og ofan
af ruðningum notað til að
þekja yfir rastasvæði. Stærð
framkvæmdasvæðis er um
33 ha. /PF
Aflatölur 5.–12. september 2020 á Norðurlandi vestra
Rúmum 853 tonnum landað á Króknum
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
Elfa HU 191 Handfæri 3.521
Geir ÞH Dragnót 9.167
Geiri HU 69 Handfæri 1.305
Guðrún Petrína GK 107 Landbeitt lína 4.883
Hafrún HU 12 Dragnót 24.834
Hjalti HU 313 Handfæri 1.852
Hrund HU 15 Handfæri 1.108
Jenny HU 40 Handfæri 144
Kristinn HU 812 Landbeitt lína 54.894
Ragnar Alfreðs GK 183 Handfæri 836
Rán SH 307 Landbeitt lína 10.363
Særif SH 25 Lína 23.278
Sævík GK 757 Lína 32.098
Viktor Sig HU 66 Handfæri 760
Alls á Skagaströnd 197.175 HOFSÓS
Bíldsey SH 65 Lína 10.300
Alls á Hofsósi 10.300 SAUÐÁRKRÓKUR
Akurey AK 10 Botnvarpa 81.257
Bíldsey SH 65 Lína 5.590
Drangey SK 2 Botnvarpa 138.130
Fjölnir GK 157 Lína 52.493
Geir ÞH 150 Dragnót 14.363
Hafborg SK 54 Handfæri 2.640
Helga María RE 1 Botnvarpa 201.583
Málmey SK 1 Botnvarpa 329.723
Már SK 90 Handfæri 1.701
Onni HU 36 Dragnót 25.463
Óskar SK 13 Handfæri 283
Alls á Sauðárkróki 853.226 SKAGASTRÖND
Addi afi GK 97 Landbeitt lína 4.731
Birta Dís GK 135 Handfæri 1.284
Blíðfari HU 52 Handfæri 1.009
Dúddi Gísla GK 48 Lína 21.108
Heildarafli síðustu viku á Norðurlandi vestra var 1.060.701 kíló og var landað 853.226 kg á
Sauðárkróki. Málmey SK 1 var aflahæsti togarinn en Helga María RE 1 landaði einnig 201
tonni þar í vikunni. Kristinn HU 812 var aflahæstur á Skagaströnd með rúm 55 tonn af 197
tonnum sem þar komu á land. Einn bátur landaði á Hofsósi, Bíldsey SH 65, sem var með
10.300 kg. /SG
Lumar þú á frétt sem
smellpassar í Feyki?
HAFÐU SAMBAND
& 455 7176 feykir@feykir.is
2 35/2020