Feykir


Feykir - 16.09.2020, Blaðsíða 9

Feykir - 16.09.2020, Blaðsíða 9
Verkfærakassinn er nýr hlaðvarpsþáttur Hrafnhildar Ýrar Þú skiptir máli „Það má kannski segja að ég setji mig í hlutverk spæjarans og fari rannsóknarferð þar sem ég hitti áhugavert fólk sem er að gera áhugaverða hluti til hjálpar sjálfu sér og öðrum. Markmiðið er að fjölga þeim verkfærum sem við höfum til að hjálpa okkur að líða betur og verða besta útgáfan af sjálfum okkur,“ segir Hrafn-hildur. Þátturinn er á vegum verkefnisins Þú skiptir máli sem er forvarnaverkefni gegn einelti, fíkn og sjálfsskaða eða sjálfsvígum og hefur verið starfandi frá árinu 2016. Á vegum verkefnisins er m.a. rekin Tónasmiðja, skapandi starf fyrir ungt fólk á Húsavík og unnið öflugt fræðslu- og forvarnarstarf, bæði í nær- samfélaginu sem og í gegnum heimasíðuna thuskiptirmali.is og Facebooksíðu starfsins. „Þar er að finna mikið af frábæru efni bæði á formi texta og hljóðvarpsþátta sem ég hvet fólk til að kíkja á. Forsvarsmaður verkefnisins er Elvar Bragason en hann hefur unnið við forvarnarstarf í um 15 ár,“ segir Hrafnhildur en þáttinn er hægt að nálgast á öllum helstu steymisveitum s.s. Spotify, Apple, Sound- Cloud, Google o.s.frv., ásamt því að hægt er að nálgast þáttinn á heimasíðu verkefnis- ins thuskiptirmali.is. Hvaðan kom hugmyndin að þættinum? „Í sumar kom ég fram í þættinum Fyrirmyndir í tali og tónum á vegum Tóna- smiðjunnar en þar lágu leiðir okkar Elvars saman. Fljótlega eftir að sá þáttur fór í loftið hefur Elvar samband við mig aftur og býður mér að vera með vikulegan þátt. Mér fannst hugmyndin strax mjög spennandi enda hefur mig lengi langað að spreyta mig í útvarpi. Ég fékk mjög frjálsar hendur með efnistök og ólíkt mörgum öðrum var Elvar strax mjög opinn fyrir því að ég myndi fjalla um óhefð- bundnar aðferðir til sjálfs- hjálpar. Ég hef alla tíð haft mikinn áhuga á hinu óhefð- bundna og hef nýtt mér slíkar meðferðir sjálf með góðum árangri. Mér finnst hin opin- bera umræða um þessi mál oft á villigötum og einkennast af vanþekkingu og fordómum. Það er auðvelt að dæma eitthvað sem maður skilur ekki eða fellur ekki inn í normið. Mín reynsla er hins vegar sú að almenningur sé yfirleitt mjög opinn og for- vitinn um þessi mál og því langaði mig að búa til fræðandi og skemmtilega þætti sem svarað gætu áhugaverðum spurningum – og kannski kveikt enn fleiri! Það er hollt að spyrja, maður á að gera það.“ Af hverju Verkfærakassinn? „Hugmyndin að nafninu er sú að því fleiri aðferðir eða verkfæri sem við höfum í verkfærakassanum til sjálfs- hjálpar, því líklegra er að við finnum eitthvað við okkar hæfi og náum árangri í að bæta líf okkar. Hin hefð- bundnu verkfæri sem allir þekkja og heilbrigðiskerfið okkar vinnur með, eru ein- hvers konar sálfræðimeðferð- ir, geðlæknar, lyf, ýmiss konar endurhæfing og svo framveg- is. Eins frábær og þessi verk- færi eru henta þau ekki öllum ein og sér. Margir finna meiri árangur ef þeir nýta sér óhefð- bundnar aðferðir samhliða og fyrir suma hafa þær reynst nægar einar og sér. Með þessu er ég ekki að segja að fólk eigi að hætta að leita sér hefð- bundinnar hjálpar, alls ekki. Við þurfum bara að vera opin fyrir því að hún hentar ekki alltaf öllum og því þurfum við að hafa fleiri verkfæri í hand- raðanum.“ Hefurðu gert svona áður? Þann 3. september fór fyrsti þáttur Verkfærakassans í loftið þar sem Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir skoðaði ýmsar áhugaverðar leiðir til sjálfshjálpar, leiðir sem oft hafa talist óhefðbundnar eða fyrir utan normið. Leiðir sem af mörgum teljast framandi og jafnvel í sumum tilfellum forboðnar eða furðulegar, eins og hún segir sjálf. Þátturinn er á vegum verkefnisins Þú skiptir máli sem er forvarnaverkefni gegn einelti, fíkn og sjálfsskaða eða sjálfsvígum. Feykir hafði samband við Hrafnhildi og forvitnaðist um verkefnið. „Eina reynsla mín af gerð út- varpsþátta var þegar ég var tíu ára og tók upp þætti á kassettu á stofugólfinu heima. Mig dreymdi alltaf um að gera minn eigin útvarpsþátt og er afskaplega þakklát fyrir að fá núna tækifæri til þess.“ Eitthvað sem þú vilt koma á framfæri við lesendur Feykis? „Mig langar til að hvetja fólk til að hlusta á þáttinn með opnum huga. Það er mikilvægt að við finnum öll okkar sannleika í lífinu og sama leið hentar aldrei öllum. Það mun ýmsum finnast umfjöllunarefnið skrít- ið á köflum og það er bara í góðu lagi. Ef þú finnur ekki „já“ í hjartanu þá er þetta ekki þinn sannleikur. Það þýðir samt ekki að það geti ekki verið sannleikur einhvers annars. Við erum öll ólík og þurfum að læra að virða það hjá hvoru öðru án þess að dæma þá leið sem hver og einn velur. Ég hlakka til að fara í þessa rannsóknarferð og skoða heim óhefðbundinna aðferða. Ég vona að sem flestir skelli sér í ævintýraferðina með mér.“ Hrafnhildur Ýr stýrir hlaðvarpsþættinum Verkfærakassinn en honum er streymt á vegum verkefnisins Þú skiptir máli sem er forvarnaverkefni gegn einelti, fíkn og sjálfsskaða eða sjálfsvígum. AÐSEND MYND VIÐTAL Páll Friðriksson Stendur með húfu á höfði halur í túni valinn, sjö vetrum yfir áttrætt, enda með staf í hendi. Gúmmískór fótum fylgja, frægir með sínu lagi, svartir með sóla hvíta sýna þeir tímans línu. Maðurinn kostum krýndur, kannar með viljann sanna gögn þau sem greiða vegi, gefið sig að því hefur. Rúnir hins liðna rekur rétt meðan blöðum flettir, Stefán á Höskuldsstöðum, styrkur í fræðavirki. AÐSENT | Rúnar Kristjánsson Horft á mynd Stefán Jónsson fræðimaður á Höskuldsstöðum 87 ára gamall. Myndin er samskeytt svo hann stendur hér í túninu heima. MYND: BYGGÐASAGA SKAGAFJARÐAR 35/2020 9

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.