Feykir - 16.09.2020, Qupperneq 9
Verkfærakassinn er nýr hlaðvarpsþáttur Hrafnhildar Ýrar
Þú skiptir máli
„Það má kannski segja að ég
setji mig í hlutverk spæjarans
og fari rannsóknarferð þar
sem ég hitti áhugavert fólk
sem er að gera áhugaverða
hluti til hjálpar sjálfu sér og
öðrum. Markmiðið er að
fjölga þeim verkfærum sem
við höfum til að hjálpa okkur
að líða betur og verða besta
útgáfan af sjálfum okkur,“
segir Hrafn-hildur.
Þátturinn er á vegum
verkefnisins Þú skiptir máli
sem er forvarnaverkefni gegn
einelti, fíkn og sjálfsskaða eða
sjálfsvígum og hefur verið
starfandi frá árinu 2016. Á
vegum verkefnisins er m.a.
rekin Tónasmiðja, skapandi
starf fyrir ungt fólk á Húsavík
og unnið öflugt fræðslu- og
forvarnarstarf, bæði í nær-
samfélaginu sem og í gegnum
heimasíðuna thuskiptirmali.is
og Facebooksíðu starfsins.
„Þar er að finna mikið af
frábæru efni bæði á formi
texta og hljóðvarpsþátta sem
ég hvet fólk til að kíkja á.
Forsvarsmaður verkefnisins er
Elvar Bragason en hann hefur
unnið við forvarnarstarf í um
15 ár,“ segir Hrafnhildur en
þáttinn er hægt að nálgast á
öllum helstu steymisveitum
s.s. Spotify, Apple, Sound-
Cloud, Google o.s.frv., ásamt
því að hægt er að nálgast
þáttinn á heimasíðu verkefnis-
ins thuskiptirmali.is.
Hvaðan kom hugmyndin að
þættinum? „Í sumar kom ég
fram í þættinum Fyrirmyndir í
tali og tónum á vegum Tóna-
smiðjunnar en þar lágu leiðir
okkar Elvars saman. Fljótlega
eftir að sá þáttur fór í loftið
hefur Elvar samband við mig
aftur og býður mér að vera
með vikulegan þátt. Mér
fannst hugmyndin strax mjög
spennandi enda hefur mig
lengi langað að spreyta mig í
útvarpi. Ég fékk mjög frjálsar
hendur með efnistök og ólíkt
mörgum öðrum var Elvar
strax mjög opinn fyrir því að
ég myndi fjalla um óhefð-
bundnar aðferðir til sjálfs-
hjálpar. Ég hef alla tíð haft
mikinn áhuga á hinu óhefð-
bundna og hef nýtt mér slíkar
meðferðir sjálf með góðum
árangri. Mér finnst hin opin-
bera umræða um þessi mál oft
á villigötum og einkennast af
vanþekkingu og fordómum.
Það er auðvelt að dæma
eitthvað sem maður skilur
ekki eða fellur ekki inn í
normið. Mín reynsla er hins
vegar sú að almenningur sé
yfirleitt mjög opinn og for-
vitinn um þessi mál og því
langaði mig að búa til fræðandi
og skemmtilega þætti sem
svarað gætu áhugaverðum
spurningum – og kannski
kveikt enn fleiri! Það er hollt
að spyrja, maður á að gera
það.“
Af hverju Verkfærakassinn?
„Hugmyndin að nafninu er sú
að því fleiri aðferðir eða
verkfæri sem við höfum í
verkfærakassanum til sjálfs-
hjálpar, því líklegra er að við
finnum eitthvað við okkar
hæfi og náum árangri í að
bæta líf okkar. Hin hefð-
bundnu verkfæri sem allir
þekkja og heilbrigðiskerfið
okkar vinnur með, eru ein-
hvers konar sálfræðimeðferð-
ir, geðlæknar, lyf, ýmiss konar
endurhæfing og svo framveg-
is. Eins frábær og þessi verk-
færi eru henta þau ekki öllum
ein og sér. Margir finna meiri
árangur ef þeir nýta sér óhefð-
bundnar aðferðir samhliða og
fyrir suma hafa þær reynst
nægar einar og sér. Með þessu
er ég ekki að segja að fólk eigi
að hætta að leita sér hefð-
bundinnar hjálpar, alls ekki.
Við þurfum bara að vera opin
fyrir því að hún hentar ekki
alltaf öllum og því þurfum við
að hafa fleiri verkfæri í hand-
raðanum.“
Hefurðu gert svona áður?
Þann 3. september fór fyrsti þáttur Verkfærakassans í loftið þar sem Hrafnhildur Ýr
Víglundsdóttir skoðaði ýmsar áhugaverðar leiðir til sjálfshjálpar, leiðir sem oft hafa talist
óhefðbundnar eða fyrir utan normið. Leiðir sem af mörgum teljast framandi og jafnvel í sumum
tilfellum forboðnar eða furðulegar, eins og hún segir sjálf. Þátturinn er á vegum verkefnisins
Þú skiptir máli sem er forvarnaverkefni gegn einelti, fíkn og sjálfsskaða eða sjálfsvígum.
Feykir hafði samband við Hrafnhildi og forvitnaðist um verkefnið.
„Eina reynsla mín af gerð út-
varpsþátta var þegar ég var tíu
ára og tók upp þætti á kassettu
á stofugólfinu heima. Mig
dreymdi alltaf um að gera
minn eigin útvarpsþátt og er
afskaplega þakklát fyrir að fá
núna tækifæri til þess.“
Eitthvað sem þú vilt koma á
framfæri við lesendur Feykis?
„Mig langar til að hvetja fólk til
að hlusta á þáttinn með opnum
huga. Það er mikilvægt að við
finnum öll okkar sannleika í
lífinu og sama leið hentar
aldrei öllum. Það mun ýmsum
finnast umfjöllunarefnið skrít-
ið á köflum og það er bara í
góðu lagi. Ef þú finnur ekki
„já“ í hjartanu þá er þetta ekki
þinn sannleikur. Það þýðir
samt ekki að það geti ekki verið
sannleikur einhvers annars.
Við erum öll ólík og þurfum að
læra að virða það hjá hvoru
öðru án þess að dæma þá leið
sem hver og einn velur. Ég
hlakka til að fara í þessa
rannsóknarferð og skoða heim
óhefðbundinna aðferða. Ég
vona að sem flestir skelli sér í
ævintýraferðina með mér.“
Hrafnhildur Ýr stýrir hlaðvarpsþættinum Verkfærakassinn en honum er streymt á vegum
verkefnisins Þú skiptir máli sem er forvarnaverkefni gegn einelti, fíkn og sjálfsskaða
eða sjálfsvígum. AÐSEND MYND
VIÐTAL
Páll Friðriksson
Stendur með húfu á höfði
halur í túni valinn,
sjö vetrum yfir áttrætt,
enda með staf í hendi.
Gúmmískór fótum fylgja,
frægir með sínu lagi,
svartir með sóla hvíta
sýna þeir tímans línu.
Maðurinn kostum krýndur,
kannar með viljann sanna
gögn þau sem greiða vegi,
gefið sig að því hefur.
Rúnir hins liðna rekur
rétt meðan blöðum flettir,
Stefán á Höskuldsstöðum,
styrkur í fræðavirki.
AÐSENT | Rúnar Kristjánsson
Horft á mynd
Stefán Jónsson fræðimaður á Höskuldsstöðum 87 ára gamall.
Myndin er samskeytt svo hann stendur hér í túninu heima.
MYND: BYGGÐASAGA SKAGAFJARÐAR
35/2020 9