Feykir - 16.09.2020, Page 4
Viðgerð hafin á Stefánskirkju hjá tréiðnadeild FNV
Gamli og nýi tíminn
mætast í bindingsverkshúsi
Frá því að húsið var tekið
niður fyrir 20 árum síðan
hefur það ekki verið sett
saman þar til nú á haustdögum
þegar hliðar og hluti stafna
voru reistir á ný. Eftir lag-
færingar er áætlað að kirkjan
verði flutt á ný á Sauðanes þar
sem hún verður varðveitt í
húsasafni Þjóðminjasafnsins á
staðnum og ætlað sem
sýningarhús þar sem allar
viðgerðir verða sýnilegar.
Það er tréiðnadeild FNV
sem vinnur að lagfæringunum
í samvinnu við Fornverka-
skólann og Þjóðminjasafnið
en fram að þessu hafa nem-
endur í húsaviðgerðaráfanga í
helgarnámi eingöngu komið
að verkefninu.
Þegar Feykir lagði leið sína í
skólann einn sunnudag fyrir
skömmu var búið að reisa
burðargrind kirkjunnar en til
stóð að taka hana aftur niður
fyrir dagslok. Á staðnum voru
tréiðnanemar í helgarnámi
undir stjórn kennaranna
Óskars Más Atlasonar og
Eyþórs Fannars Sveinssonar.
Að sögn Eyþórs er verkefnið
komið á það stig að mögulega
sé fært að nýta það í fleiri
áfanga.
„Þessir hópar sem hafa
fengið að vera í þessu eru
aðallega helgarnemar á sinni
síðustu önn í tréiðnanáminu, í
áfanga sem fjallar um húsa-
viðgerðir og snýst um lása-
samsetningar á gömlu burða-
virki, palllása, blöðun á stoðum
o.fl. Kosturinn við þetta verk-
efni er sá að þetta er bindings-
verkshús og tekur yfir allan
skalann, annars værum við að
gera þetta inni á borði í ein-
hverjum prufustykkjum vær-
um með efni sem væri unnið
niður í vélum. Það er í rauninni
það sem dagskólinn er að gera
þar sem kennslutíminn er
þannig í dagskólanum og
enginn tími er til að ná í heilu
stykkin út og fara að vinna í
þeim og út aftur,“ segir Eyþór.
Helgarkennslan passar
betur þessu verkefni þar sem
unnið er allan daginn og
þannig næst mestur árangur
út úr kennslunni. Eyþór segir
þrjá hópa í gangi sem skila
mikilli vinnu og allt í topp-
málum með það.
Bindingsverkshús
Sá byggingastíll sem viðhafður
var á þeim tíma sem
Stefánskirkja er byggð, býður
upp á timbursamsetningar
með svokölluðum lásum, allt
bundið saman með töppun.
Þannig eru stoðir tappaðar við
aurstokkinn niðri og sylluna
uppi og svo eru járnsinklar
reknir inn til styrktar. Eyþór
segir þetta verkefni virkilega
gott fyrir nemendur sem
Við tréiðnadeild Fjölbrautaskóla Norðurland vestra er hafin viðgerð á Stefánskirkju sem reist var á
bænum Sauðanesi á Langanesi árið 1848 en hönnuður hennar var Jón Benjamínsson, forsmiður.
Kirkjan var afhelguð 1889 og flutt skömmu síðar upp á bæjarhólinn og notuð um tíma sem
fundarsalur hreppsnefndar og dúnhús. Um 1920 var kirkjan færð á ný og sett niður austarlega á
bæjarhólinn og notuð sem hlaða, hesthús og fjárhús en við flutninginn var hún stytt að einhverju
leyti. Það var svo árið 1990 að húsið var friðað og það tekið niður ári síðar til viðgerðar en á
Krókinn kemur það í gámi fyrir sex árum.
öðlast góða sýn á þennan forna
byggingamáta. En hvernig
skyldi ástand hússins vera eftir
allan þennan tíma?
„Í rauninni voru fótstykkin,
eða stokkarnir allir, horfin og
allar stoðir sem við höfum
komið nálægt þurfum við að
gera við að neðan. Það er lítið á
annarri hliðinni sem getur
talist heilt ennþá. Það er í
rauninni bara austurhliðin
sem við náum að bæta og gera
upp en lítið í hinni hliðinni. Af
hverju það er held ég að sé
aðallega fúalega séð, illa farin
af fúa, hvort það hefur staðið
upp að veðri eða hvað veit ég
ekki. Þannig að það er líka
nýsmíði með,“ segir Eyþór.
„Þetta er ný sýn á það hvernig
hlutirnir voru gerðir hér áður.
Að sjá þetta í húsi er allt annað
en sýna með einhver prufu-
stykki hér inni. Og fá svo að sjá
verkið eftir sig í restina, þegar
húsið er risið, menn eiga eftir
að muna það.“
Aðspurður um verklok
segir Eyþór enga tímasetningu
komna fram, vinnan fari eftir
nemendahópum og hversu vel
gangi. Hann segir það góðan
kost að hafa reist kirkjuna að
hluta til núna því þá er
möguleiki á að vinna í henni
inni og jafnvel hægt að nýta
dagskólann eitthvað í það en
væntanlega verður nokkur bið
í að hún verði reist á ný,
kannski ekki fyrr en eftir
áramót. „Þá getum við kannski
reist hana á ný og mögulega
nýtt dagskólann meira í þetta.
En þá þyrftum við að byggja
yfir hana fyrst, segl eða eitthvað
annað, til að ekki fari illa í vatni
og vindum.“
Byggingalag
tvennra tíma
„Í dag höfum við svo mikið af
samsetningum, bæði skrúfum
og vinklum og öllu þessu sem
við byggjum burðavirki með.
Á þessum tíma var ekkert til
sem tengist járnastyrkingum
nema þá þessir sinklar sem
voru þá smíðaðir í járn-
smiðjum. Menn notuðu líka
það timbur sem var til staðar
en getum keypt í dag allar
stæðir og gerðir. Þarna voru
kannski rekaviðardrumbar
sem voru til staðar á bæjunum
og þannig að þetta snérist
frekar um að nýta það sem til
var frekar en hitt. Maður sér
það á sumum drumbunum að
þetta hefur kannski verið
gamalt rekaviðarefni sem
kom á land og nýtt. Í dag erum
við með heilsteyptara efni,
ákveðnir flokkar af timbri og
byggt eftir gefnum stöðlum
sem ekki voru til þá.“
Eyþór segir tilgang verk-
efnisins m.a. þann að víkka
þekkingu nemenda á húsa-
viðgerðum fyrri tíma, í þessu
tilfelli bindingsverki og
timburklæðningum þessa
tíma. Í henni má sjá sam-
setningar bjálka og stoða, t.d.
lása, töppun stoða við syllu og
aurstokk. Einnig er mikið lagt
upp úr ýmiss konar viðgerðar-
aðferðum á grindum, þar sem
aðalatriði eru dregin fram, svo
sem efnisval, burðarþol við-
gerða og að viðgerðir séu tákn
síns tíma.
Guðmundur Lúther Haf-
seinsson arkitekt hjá Þjóð-
minjasafninu hefur umsjón
með verkefninu og segir Eyþór
hann hafa komið einu sinni til
tvisvar í eftirlit á ári og leið-
beint með viðgerðir og fleira.
Fyrrum kennari við skólann,
Bragi Skúlason, hefur einnig
verið bakhjarl í heimabyggð,
en hann hefur helgað sig gamla
handverkinu og er mikill
hafsjór af fróðleik sem skólinn
nýtur góðs af.
„Það er mikill heiður fyrir
nemendur og kennara að vera
treyst fyrir þessu verkefni.
Skólastjórnendur hafa einnig
verið okkur hliðholl í þessu og
gert okkur kleift að framkvæma
það með sem bestum hætti,“
segir Eyþór Fannar í lokin.
Inni voru nemendur að fást við ýmislegt smálegt, og þó, úr kirkjunni.
Eyþór Fannar Sveinsson og Óskar Már Atlason, í miðið, með tveimur nemendum sínum við grind Stefánskirkjunnar
sem reist var á dögunum við tréiðnadeild FNV. MYND: PF
Tilbúinn í samsetningu.
UMFJÖLLUN
Páll Friðriksson
4 35/2020