Feykir - 16.09.2020, Side 5
Síðastu leikirnir í riðla-
keppni 4. deildar fóru fram í
gær og á Blönduósvelli tók
lið Kormáks/Hvatar á móti
stríðsmönnum Stokkseyrar.
Ljóst var fyrir leik að
heimamenn voru þegar
búnir að tryggja sér sæti í
úrslitakeppni 4. deildar en
með sigri gátu þeir tryggt
sér efsta sætið í B-riðli og þá
kannski auðveldari
mótherja í átta liða
úrslitunum.
Fyrsta mark leiksins
gerðu heimamenn á 44.
mínútu en þar var Hilmar
Kára á ferðinni. Ingvi Rafn
bætti við marki í upphafi
síðari hálfleiks og á 65.
mínútu bætti Hilmar við
öðru marki sínu í leiknum
og allt í lukkunnar velstandi
hjá Húnvetningum. Fjórum
mínútum síðar var Stokks-
eyringnum Rúnari Birgis-
syni vísað af velli en það
virtist bara hleypa óvæntum
krafti í gestina. Fyrst
minnkaði Örvar Hugason
muninn með marki á 74.
mínútu og fjórum mín-
útum síðar hleyptu Stokks-
eyringar spennu í leikinn
þegar Sigurður Sigurvinsson
skoraði annað mark þeirra.
Staðan 3-2 og um stundar-
fjórðungur eftir af leiknum.
Oliver Torres tryggði liði
Kormáks/Hvatar toppsæti
riðilsins með tveimur mörk-
um í lokin og lokatölur 5-2.
Kormákur/Hvöt endaði
því með 28 stig af 36
mögulegum, liðið vann níu
leiki, gerði eitt jafntefli en
tapaði tveimur. Með þeim í
úrslit fara Rangæingar í KFR
sem voru með 27 stig.
Mótherjar Húnvetninga í
úrslitakeppninni er lið KÁ
sem er væntanlega eins
konar b-lið Hauka í Hafnar-
firði. Fyrri leikur liðanna í
átta liða úrslitum fer fram á
Ásvöllum nk. laugardag og
hefst kl. 13:00. Seinni leikur-
inn verður á Blönduósvelli
miðvikudaginn 23. septem-
ber kl. 16:15. /ÓAB
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR F
4. deild karla | Kormákur/Hvöt – Stokkseyri 5–2
Húnvetningar enduðu
á toppi riðilsins
Fyrsti æfingaleikur karlaliðs
Tindastóls í körfunni fór fram í
Síkinu sl. föstudagskvöld en
þá kom lið Þórs úr Þorlákshöfn
í heimsókn.
Leikurinn var ágæt skemmtun
og hart tekist á. Lið Tindastóls
náði fljótlega yfirhöndinni í
leiknum og varð munurinn
mestur 20 stig í leiknum í
síðari hálfleik. Tindastólsmenn
voru Kanalausir, en Shawn
Glower er enn ekki mættur á
Krókinn, á meðan gestirnir
mættu með fullskipað lið eftir
því sem Feykir kemst næst.
Pétur Rúnar var öflugastur
heimamanna með 21 stig (7-
10 í skotum), 7 fráköst og 5
stoðsendingar. Tomsik var
mikið í boltanum og skilaði 22
stigum en of mörg skot
dönsuðu af hringnum. Viðar,
Hannes, Jaka, Helgi Rafn og
Axel áttu ágætis leik og
Antanas reif niður 14 fráköst
eins og áður segir og heilt yfir
leit Tindastólsliðið ágætlega út
miðað við fyrsta leik haustsins
og eiga eftir að styrkjast enn
frekar þegar Bandaríkjamað-
urinn kemur inn í liðið.
Stólarnir eiga næst æfinga-
leik í Garðabæ nk. föstudag og
síðan mæta Akureyringar í
Síkið mánudaginn 21. sept.
Stelpurnar
í startholunum
Kvennalið Tindastóls í körfu-
bolta fór í Stykkishólm á
fimmtudaginn og spilaði gegn
liði heimastúlkna í Snæfelli.
Leikurinn endaði 87-51 fyrir
Snæfell. Þrátt fyrir mikinn
mun í lokin þá spiluðu Stóla-
stúlkur oft glimrandi flottan
bolta, að sögn Árna Eggerts
Harðarsonar þjálfara Tinda-
stóls. Reiknað er með að
Dominique Toussaint komi til
landsins í vikunni en hún er
nýr Kani Tindastóls.
Keppni í 1. deild kvenna
hefst síðustu helgina í septem-
ber. Nánar má lesa um körfu-
boltann á Feykir.is. /ÓAB
Fyrstu æfingaleikir haustsins að baki
Körfubolti | Karla- og kvennalið Tindastóls undirbúa sig fyrir komandi tímabil
Aðstæður til knattspyrnu-
iðkunar – eða kannski frekar
knattspyrnuáhorfs – voru ekki
spennandi þegar Tindastóll og
Ægir Þorlákshöfn mættust í 3.
deildinni á Króknum á
laugardag. Engu að síður var
hart tekist á á gervigrasinu og
bæði lið gerðu hvað þau gátu
til að næla í stigin þrjú en
veðrið setti pínu strik í
spilamennskuna og fór svo að
liðin deildu stigunum í 1-1
jafntefli.
Fátt markvert gerðist í fyrri
hálflleik en gestirnir fengu þó
besta færið. Staðan 0-0 eftir
jafnan hálfleik.
Það dró svo loks til tíðinda í
leiknum á 57. mínútu þegar
Brynjólfur Eyþórsson fékk
boltann á miðju vallarins,
hann brunaði af stað og lék
nokkra varnarmenn Stólanna
illa áður en hann kom sér í gott
færi við vítateigslínuna og
plantaði boltanum síðan
örugglega í markið. Þetta var
raunar sú vítamínsprauta sem
vantaði í leikinn því nú stigu
Stólarnir á bensíngjöfina. Það
liðu aðeins sex mínútur þar til
Kuldabolti á Króknum
Lengjudeild kvenna | Tindastóll – Ægir 1–1
Tanner Sica jafnaði eftir að
hafa fengið boltann óvænt á
auðum sjó eftir aukaspyrnu.
Lið Tindastóls hafði yfirhönd-
ina í kjölfar jöfnunarmarksins
og áttu að fá vítaspyrnu þegar
Arnar Ólafs var straujaður í
teignum en eftir smá reiki-
stefnu ákvað dómarinn að
færa brotið út fyrir teig –
sennilega alveg kolröng
ákvörðun. Í stað þess að fá víti
fengu Tindastólsmenn auka-
spyrnu sem ekkert varð úr.
Þegar 20 mínútur voru til
leiksloka kom Ingvi Hrannar
Ómarsson inn á en hann lagði
skóna á hilluna haustið 2017.
Töluverð mannekla hrjáir lið
Stólanna nú á haustdögum en
Ingvi stóð fyrir sínu eins og
vanalega.
Síðasta stundarfjórðunginn
komust Ægismenn betur inn í
leikinn og bæði liði ógnuðu en
gekk illa að skapa góð færi.
Sigurmarkið leit ekki dagsins
ljós og úrslitin gerðu lítið fyrir
liðin sem eru í hálfgerðu
miðjumoði í deildinni. með að
komast í efstu deild.
Í gærkvöldi kom Einherji á
Krókinn en þá var Feykir
farinn í prentun. /ÓAB
Addi Ólafs á fullri ferð í leiknum gegn Ægi. MYND: ÓAB
Kvennalið Tindastóls færðist
skrefi nær sæti í Pepxi
Max-deildinni í gær þegar það
heimsótti lið Fjölnis í
Grafarvoginn. Það er óhætt að
fullyrða að Stólastúlkur hafi
verið mun sterkari aðilinn í
leiknum og á meðan vörnin er
eins og virki og Mur heldur
áfram að gera hat-trick þá er lið
Tindastóls ósigrandi. Lokatölur
0-3 og já, Mur gerði þrennu.
Lið Tindastóls átti svo sem
engan stjörnuleik en heima-
stúlkur, sem voru í næstneðsta
sæti Lengjudeildarinnar, voru
hreinlega aldrei líklegar til að
skora. Murielle kom gestunum
yfir eftir 20 mínútna leik,
skoraði af stuttu færi eftir
hornspyrnu frá Jackie.
Það gerðist ekki margt
frásagnarvert framan af síðari
hálfleik í Grafarvogsvindinum
en á 77. mínútu átti María
Dögg frábæra sendingu inn á
vítateig Fjölnis sem Mur náði
og komst í dauðafæri sem hún
kláraði af öryggi. Á 86. mínútu
fullkomnaði hún þrennuna
með auðveldu marki. Lið
Tindastóls náði þá góðri sókn
þar sem boltinn var færður frá
hægri kanti yfir á þann vinstri,
síðan kom prýðileg fyrirgjöf
sem fór framhjá nokkrum
leikmönnum en Mur hafði
skilað sér inn á teig með seinni
skipunum og hún fékk boltann
á fjærstöng fyrir opnu marki –
hún var ekki að fara klikka þar.
0-3 og sigur í höfn.
Þetta var vinnusigur. Stelp-
urnar gerðu varla mistök,
héldu boltanum ágætlega og
voru skynsamar. Mur gerði
fimmtu þrennu sína í sumar.
Árið 1991 gerði Olga Færseth
níu þrennur í sömu deild.
Aðrir tímar – önnur öld. /ÓAB
Súper Stólastúlkur
Lengjudeild kvenna | Fjölnir – Tindastóll 0–3
Margir hafa beðið spenntir eftir að sjá Nick Tomsick í þessum búning. MYND: HJALTI ÁRNA
35/2020 5