Feykir - 16.09.2020, Page 6
Hvernig nemandi varstu? Til
fyrirmyndar. Ég ræddi það svo
sem ekki mikið við „kennara“
mína, enda fannst mér ég sjálfur
hafa besta yfirsýn yfir mitt nám,
því þó ég hafi að nafninu til gengið
í gegnum hið hefðbundna íslenska
skólakerfi, þá stjórnaði ég námi
mínu sjálfur frá 1.bekk grunnskóla,
enda stóð íslenska skólakerfið
engan veginn undir væntingum
mínum. Ég reyndi í einhvern tíma
að koma mínum hugmyndum
að en talaði fyrir daufum eyrum,
þannig að á móti lokaði ég mínum
eyrum fyrir boðskap „kennaranna“
( RABB-A-BABB ) oli@feykir.is
NAFN: Frímann Gunnarsson.
ÁRGANGUR: A gentleman does not reveal his age (nor weight!).
FJÖLSKYLDUHAGIR: Ég gæti sagt einhleypur, en mér finnst einstakur
hljóma betur.
BÚSETA: Í gamla (virta) hluta Reykjavíkurborgar, gef ekki nánari
staðsetningu upp af augljósum ástæðum.
HVERRA MANNA ERTU OG HVAR UPP ALINN: Það eru aldeilis persónu-
legar spurningar! Ég hef haldið spilunum þétt að mér með mína
fortíð, svo ekki sé hægt að nota hana gegn mér. Því segi ég að ég sé af
einföldu en góðu fólki. Ég fékk barnungur lögskilnað frá foreldrum
mínum, af ástæðum sem ég vil ekki gefa upp, og var ég því alinn
upp hjá ömmu minni, sem var einföld en góð sál. Í rauninni ól hún
mig þó ekki upp, ég áttaði mig fljótt á því að það væri farsælast að
ég sæi um eigið uppeldi, því ég vildi hafa það á háu gæðastigi. Það
má á margan hátt segja að ég sé uppalinn af fjölda heimspekinga,
helstu rithöfundum mannkynssögunnar og Sir Winston Churchill,
s.s. í gegnum þeirra ritverk.
STARF/NÁM: Rithöfundur, ljóðskáld, samfélagsrýnir og fjölmiðla-
maður. Það sem kannski nær best utan um mín störf er uppfræðari.
Ég er menntaður í Bretlandi, er afsprengi heimsveldisins sem ég
gjarnan kalla mitt menningarlega móðurlíf.
HVAÐ ER Í DEIGLUNNI: Jah, hvar skal byrja? Ég er með ótal járn í
eldinum (myndlíking), vinn að ritstörfum, ljóðasmíði og uppfræðslu
þjóðarinnar, meðal annars í gegnum sjónvarpsþætti mína og samtöl
og athugasemdir á alnetinu. Það má segja að ég sé að vinna stanslaust
að þessum málum án þess að hvílast í dag og mun gera um ókomna
framtíð. (Fyrir utan auðvitað rúmlega ellefu tíma svefn á hverri
nóttu og afternoon nap (70 mínútur hvert síðdegi, auk matmálstíma
og hefðbundins tetíma (45 mínútur) þrisvar sinnum á dag.))
Frímann
Það er ekki komið að tómum kofanum þegar Frimann er annars vegar. MYND ÚR EINKASAFNI
og fór mínar leiðir. Þetta mættu
miklu fleiri börn gera, a.m.k.
bráðger börn og börn af mínu
kaliberi – sem eru auðvitað ekki
mörg.
Hvað er eftirminnilegast frá ferm-
ingardeginum? Þarna gefið þið
ykkur að ég hafi fermst. En þar sem
þjóðkirkjan skellti skollaeyrum við
mínum breytingartillögum, sem
snéru meðal annars að bættri
fræðslu, uppfærslu á Testament-
unum (bæði því gamla og því
nýja), kröfu minni um innfluttan
prest og fleira þá ákvað ég að
fresta minni fermingu þar til
síðar. Ég hef ekki enn fundið réttu
tímasetninguna fyrir slíkt, enda sé
ég ekki fram á að kröfum mínum
verði mætt, svo vel sé, í náinni
framtíð. Their loss.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar
þú yrðir stór? Lengi vel langaði
mig að verða strætisvagnabílstjóri
því ég var algjörlega heillaður
af þessum stóru vögnum og
því að hafa öll þessi líf í hendi
mér. En þegar ég áttaði mig á
menntakröfunum (nánast engar!)
og því að ég myndi ekki hafa
neitt um það að segja hverjir
væru farþegar í vagninum mínum
þá missti ég allan áhuga á því. Í
rauninni hef ég aðeins einu sinni
stigið um borð í strætisvagn hér á
Íslandi og það fór ekki vel.
Hvert var uppáhalds leikfangið
þitt þegar þú varst krakki?
Penninn. Engin spurning. Ég áttaði
mig mjög fljótt á því að hann er
uppspretta alls. Þá er ég alls ekki
að tala um lélegan kúlupenna,
heldur vandaðan blekpenna.
Besti ilmurinn? Lyktin af nýpúss-
uðum leðurskóm.
Hvar og hvenær sástu núverandi
maka þinn fyrst? Aftur spyr ég,
fyrir hvern eru þessar spurningar?
Það mætti endurskoða þær með
tilliti til þess sem á að svara þeim.
Það eru ekki allir hjarðdýr.
Hvað varstu að hlusta á þegar þú
fékkst bílprófið? Ég tók reyndar
ekki bílpróf 17 ára. En það
skiptir svo sem engu hvað varðar
spurninguna, því ég hef hlustað
aðallega á klassík og óperur frá
því ég man eftir mér. Ef ég hefði
tekið prófið 17 ára hefði ég líklega
keyrt um götur bæjarins (jafnvel
á Vauxhall Viva) með vel valda
aríu eftir Giuseppi (Verdi) á lágum
styrk (er með viðkvæm eyru) eins
og ég geri reyndar enn þann dag
í dag.
Hvernig slakarðu á? Sjá svar hér
fyrir ofan.
Hverju missirðu helst ekki af
í sjónvarpinu? Ég horfi lítið á
sjónvarp, þá aðeins á fréttir BBC
og hlusta aðeins á útvarpsstöðvar
BBC, en það get ég gert eftir
að ungur vinur minn „hakkaði“
internetið fyrir mig. Íslenskt efni
myndi ekki vera gott fyrir andlega
heilsu mína, þó ég horfi ekki á
það, þá tel ég mig geta dæmt
það allt saman engu að síður
sem áhugamannadútl. Fyrir utan
auðvitað mitt eigið efni, sem er
á heimsmælikvarða. Það get ég
horft á endalaust (og geri).
Besta bíómyndin? Hún hefur ekki
enn verið framleidd. Hún mun bera
heitið My years at Downingstreet
no.10. Um ungan mann, sem
er ráðinn sem persónulegur að-
stoðarmaður Margaret Thatcher,
forsætisráðherra. Vinskapinn sem
þróast með þeim og hvernig hann
endar sem hennar helsti ráðgjafi
og confidant. Þetta verður epísk
stórmynd í anda t.d. Gandhi og
Lawrence of Arabia. Ég fæ gæsa-
húð bara við tilhugsunina.
Hvaða íþróttamanni hefurðu
mestar mætur á? Hahaha, þetta
hlýtur að vera grínspurning. Af
hverju spyrjið þið mig ekki hvaða
grís er líklegastur til að fljúga
einn og óstuddur til Tunglsins?
Sú spurning myndi a.m.k. vekja
áhuga minn, þó ég hafi óbeit á
klaufdýrum.
Hvað gerir þú betur en allir
aðrir á þínu heimili? Ekki batna
spurningarnar. Ég bý einn…say no
more. S.s. geri ég allt best sjálfur.
Reyndar held ég að svarið myndi
ekki breytast þó ég myndi búa
með öðrum en það stendur nú
hvort sem er ekki til.
Hvert er snilldarverkið þitt í eld-
húsinu? Glúteinlaus hirðingja-
baka (Shepherd’s pie) kemur fyrst
upp í hugann.
Hættulegasta helgarnammið?
Ég viðurkenni að ég er ansi veikur
fyrir hárrétt poppuðu poppkorni,
ég „poppa“ alltaf í sama pottinum
og alltaf upp úr lýsi, því þó það
komi vissulega sérstakt bragð við
það þá er það eina leiðin sem ég
get innbyrt lýsi. Tvær flugur í einu
höggi!
Hvernig er eggið best? Ég sýð
alltaf mín egg, samt aðeins í 55
sekúndur, því mér finnst þau best
ef þau eru vel „runny“.
Hvað fer mest í taugarnar á
þér í fari þínu? Þetta er erfið
spurning. Líklega er það eina sem
fer í taugarnar á sjálfum mér hvað
ég geri fá mistök. Það getur verið
þreytandi til lengdar.
Hvað fer mest í taugarnar á þér
í fari annarra? Þessi listi gæti
orðið ansi langur… ætli ég segi
þá ekki bara nánast allt. Fyrir
utan einstaka bros, sem geta
verið falleg, ef þau eru ekki full af
sjálfsánægju, sem þau eru flest.
Uppáhalds málsháttur eða til-
vitnun? „History will be kind
to me for I intend to write it.“
Winston Churchill.
Hver er elsta minningin sem þú
átt? Ég hef líklega verið tveggja
ára þegar ég fékk fyrstu ristuðu
brauðsneiðina með Marmite.
Ógleymanleg reynsla sem lifir enn
6 35/2020