Feykir - 16.09.2020, Blaðsíða 7
óljóst, þá settum við fjögurra
vetra hryssurnar alveg til
hliðar í vor, tókum þær svo
aftur í júní og náðum þá að
sýna Eygló fyrst miðsumars
og síðan síðsumars,“ segir
Mette en vegna Covid var
öllum stóru gæðingakeppnum
sumarsins aflýst en kynbóta-
sýningar héldu velli og þess
vegna var áherslan lögð á
kynbótahrossin.
Mette segir Eygló óvenju
hæfileikamikla hryssu hvað
vilja og rými varðar og hefur
hryssan ætíð borið það með
sér, alltaf á tölti eða skeiði. Hún
er undan Eldi frá Torfunesi,
sem einnig fékk háan dóm
fjögurra vetra 2011, hæstur
yfir landið það árið. Móðirin
er klárhryssan Happadís frá
Stangarholti sem gerði garð-
inn frægan fyrir nokkrum
árum og er einnig úr ræktun
Mette og Gísla í Þúfum.
Happadís er leirljós og margir
muna eftir henni þar sem
Mette reið henni beislislaust
í reiðhallarsýningum. Einnig
sigruðu þær í fjórgangi á
Íslandsmóti 2010.
Unghryssan Eygló
frá Þúfum setti heimsmet
Mette segir að það sé alltaf
markmið í ræktun að koma
með hrossin snemma í kyn-
bótadóm þar sem þá sést hvað
býr í hrossinu að eðlisfari
áður en búið er að þjálfa mjög
mikið. „Fjögurra vetra dómur
er alltaf svolítið merkilegur í
sjálfu sér, bara það að fjögurra
vetra hross sé tilbúið að mæta
í dóm og ekki síst ef það
stendur sig líka vel,“ segir
Mette sem byrjaði að temja
öll fjögurra vetra tryppin 1.
október í fyrra.
„Eygló var í þjálfun fram í
byrjun desember en fékk svo
rúmlega mánaðar pásu svo
þjálfuðum við í rólegheitunum
í vetur. Síðar kemur í ljós
hvaða tryppi fer að verða
tilbúið í sýningu en það er ekki
raunhæft markmið að koma
með öll fjögurra vetra hross í
sýningu. Þó maður hafi það í
huga þá eru þau oftast fimm
eða sex vetra sem verða tilbúin
í sýningu. Þannig að það er
einhvern tímann undir vor
sem maður fer að skoða hvort
það sé einhver möguleiki,“
segir Mette en ekki var farið í
það að neinu ráði fyrr en eftir
vorsýningar að kíkja á fjögurra
vetra tryppin með sýningu i
huga. „Í þessu Covid ástandi
var öllu seinkað og allt var svo
Flott par á þeysireið, Mette Manseth og Eygló frá Þúfum.
MYNDIR AÐSENDAR
Hestahvíslarinn Mette Manseth tekin tali
Heimsmet var sett á síðsumarssýningu á Hólum í
Hjaltadal sem haldin var dagana 18. til 21. ágúst sl.
þegar fjögurra vetra hryssan Eygló frá Þúfum náði
bestu einkunn sem gefin hefur verið til þessa í þeim
flokki. Hryssan var sýnd af eiganda sínum og
ræktanda, Mette Mannseth í Þúfum í Skagafirði, og
hlaut 8,63 fyrir sköpulag, 8,56 fyrir hæfileika,
aðaleinkunn 8,59, sem er hæsta einkunn sem fjögurra
vetra hryssa hefur hlotnast til þessa.
VIÐTAL
Páll Friðriksson
Mette og Happadís slógu í gegn á Stórsýningu Fáks 2009.
ljóslifandi í kolli mínum. Ég á alltaf
tvær óopnaðar krukkur af Marmite
í skápnum mínum, just in case.
Þú vaknar einn morgun í líkama
frægrar manneskju og þarft að
dúsa þar einn dag. Hver værirðu
til í að vera og hvað myndirðu
gera? Dame Margaret Thatcher,
engin spurning. Ég myndi sitja
allan þann dag fyrir framan
spegilinn og svo myndi ég lesa
öll ljóðin mín og smásögur inn á
hljóðsnældu svo ég ætti hennar
rödd lesa mín verk. Einn dagur
væri reyndar alltof lítill tími.
Hver er uppáhalds bókin þín og/
eða rithöfundur? Líklega væri
það The Joy of Sadness, eftir
breska heimspekinginn Joseph
Blunden, þó er erfitt að velja úr
verkum hans. Hann kenndi mér að
gangast við tilfinningum mínum
og njóta þeirra, þrátt fyrir stöðug
vonbrigði og utanaðkomandi
áreiti.
Orð eða frasi sem þú notar of
mikið? Líklega segi ég talsvert oft
við sjálfan mig, „Vertu þolinmóður
litli kútur, einn daginn munu þau
skilja.“ og hef gert frá því ég man
eftir mér.
Hvaða þremur persónum vildirðu
bjóða í draumakvöldverð? Loks-
ins almennileg spurning! Ég
myndi auðvitað bjóða Sir Winston
Churchill, Dame Margaret
Thatcher og Gandhi. Þá loksins
gæti ég rætt opinskátt um mínar
hugmyndir með fólki sem gæti
skilið þær. Gandhi þyrfti eflaust
mest á máltíðinni að halda, en
vonandi myndi hann þó mæta í
ásættanlegum klæðnaði.
Ef þú gætir farið til baka í
tímann, hvert færirðu? Ég myndi
fara aftur til ársins 1940 til
Grantham í Bretlandi og leita uppi
15 ára stúlku að nafni Margaret.
Ég er viss um að okkur yrði vel til
vina og ég myndi hvísla að henni
afrekum og snjöllum setningum
sem hún myndi nýta sér síðar á
ævinni.
Hver væri titillinn á ævisögu
þinni? Með vindinn í fangið
(myndlíking).
Framlenging:
Ef þú gætir hoppað upp í flugvél
og réðir hvert hún færi, þá
færirðu... Engin spurning, London
Farnborough Airport, sem er einn
virtasti flugvöllur fyrir einkaþotur í
heiminum… þetta væri einkaþota
ekki satt?
Nefndu eitthvað þrennt sem
þér finnst þú mega til að gera
áður en þú gefur upp öndina:
Læra betur Esperantó, skrifa,
framleiða og leika aðalhlutverkið
í kvikmyndinni My Years at No.10
og njóta svo velgengni hennar.
35/2020 7