Feykir - 16.09.2020, Qupperneq 12
Ert þú
áskrifandi?
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
35
TBL
16. september 2020 40. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Körfuboltadeild Hvatar stofnuð á Blönduósi
Mikill áhugi á körfubolta
Nú nýverið tók gott fólk á Blönduósi sig saman og
stofnaði körfuboltadeild innan Hvatar. Formaður
deildarinnar er Lee Ann Maginnis en í spjalli við
Feyki segir hún meðal annars að stofnendur séu allt
mæður barna sem æfðu körfubolta hjá Helga
Margeirs (Körfuboltaskóla Norðurlands vestra)
síðastliðinn vetur og er stjórnin einungis skipuð
konum. Æfingar verða tvisvar í viku í vetur í tveimur
aldurshópum. Feykir spjallaði við Lee Ann í tilefni
þessara tímamóta.
Hvað kom til að stofnuð var
körfuboltadeild Hvatar? „Stofn-
unin á deildinni á sér smá sögu.
Fyrir um tveimur árum fór
Körfuboltaskóli Norðurlands að
venja komur sínar á Blönduós með
æfingar fyrir börn og unglinga.
Guðrún Björk Elísdóttir, einn af
stofnendum deildarinnar, ákvað að
setja sig í samband við Helga
Margeirs síðasta haust og kanna
hvort hann gæti haldið úti reglu-
legum æfingum á Blönduósi. Það
gekk upp og það fór svo að Helgi
kom á Blönduós tvisvar í viku og
þjálfaði krakkana fram að COVID.
Guðrún aflaði styrkja fyrir fyrstu
önninni sem gerði það að verkum að hægt var að bjóða
upp á fríar æfingar fram að jólum,“ segir Lee Ann.
Hverjir stóðu að stofnun deildarinnar? „Stofnendur
deildarinnar eru allt mæður barna sem æfðu körfubolta
hjá Helga síðastliðinn vetur. Það var kominn tími á að
gera þetta formlega og þær ákváðu að keyra þetta bara af
stað. Ég sjálf kem nú bara inn í þetta á lokametrunum til
að sjá um formlegheitin í kringum það að stofna deild-
ina og fæ svo þann heiður að vera fyrsti formaður
deildarinnar fram að aðalfundi. Stjórnin er einungis
skipuð konum.“
Tveir af stofnendum deildarinnar, Guðrún Björk og Lee Ann. AÐSEND MYND
Vörn gegn
ásóknum drauga
Til að verjast ásókn drauga á
maður að signa sig ofan á
höfuðið eða hvirfilinn því
draugar sækjast helzt eftir að
komast fyrst yfir höfuðið á
mönnum, líklega til að ringla
þá.
Mussumaðurinn í Útskálakirkjugarði
Einu sinni var grafið í Útskálakirkjugarði, sem þá var
orðin timburkirkja, norðanmegin við hlöðin undir
kirkjunni miðja vega. En er þeir voru búnir að stinga
upp fyrstu pálstorfurnar verður graftarmönnum
heldur en ekki bilt við, því þar undir lá maður með hatt
á höfði og parrugg, í mussu svart[r]i og sortuðum
stuttbrókum og mórauðum sokkum.
Hann leit upp á þá; þeir lögðu niður torfurnar og
grófu annars staðar. /PF
Þjóðsögur Jóns Árnasonar
Afturgöngur
Þórdís Hauksdóttir, fræðslustjóri Austur-Húnavatnssýslu, og Tinna
Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Tröppu, við undirritun samningsins
á Hilton Hóteli í Reykjavík. MYND AF SKAGASTRÖND.IS
Trappa sér um
greiningar og þjálfun
Samningur um talmeinaþjónustu
Félags- og skólaþjónusta Austur-Húnavatnssýslu
og Trappa ehf. hafa undirritað tveggja ára samning
um að efla talmeinaþjónustu í heimabyggð.
Á heimasíðu Sveitarfélagsins Skagastrandar kemur
fram að Trappa muni því sjá um greiningar og þjálfun
barna í Austur Húnavatnssýslu en talmeinafræðingar
koma reglulega til að sinna greiningum og sinna
þjálfun í gegnum fjarskiptaforritið Kara Connect að
mestu á skólatíma barna./PF
ÚTSALA
Nú er útsala í fullum gangi í öllum verslunum Líflands.
Reiðtygi, gæludýravörur, fatnaður, hjálmar, hestafóður, bætiefni
og margt fleira á frábærum tilboðum.
REYKJAVÍK
LYNGHÁLSI 3
SÍMI: 540 1125
LÍFLAND SÖLUDEILD
BRÚARVOGI 1-3
SÍMI: 540 1100
lifland@lifland.is
AKUREYRI
ÓSEYRI 1
SÍMI: 540 1150
BORGARNESI
BORGARBRAUT 55
SÍMI: 540 1154
BLÖNDUÓSI
EFSTUBRAUT 1
SÍMI: 540 1155
HVOLSVELLI
ORMSVELLI 5
SÍMI: 487 8888
Er mikill áhugi á körfubolta á Blönduósi og nágrenni?
„Það er mikill áhugi á körfubolta á svæðinu og hefur
verið síðustu ár. Það hefur samt ekki verið hægt að æfa
hann hér í langan tíma. Við höfum líka verið heppin með
hversu mikil körfuboltamenningin er á Sauðárkróki og
það smitast yfir fjallið. Helgi hefur líka sinnt þessu mjög
vel með Körfuboltaskólanum og krakkarnir fengið að
kynnast því frábæra íþróttafólki sem er í körfunni með
Stólunum. Karlaliðið kom m.a. einu sinni við á æfingu á
leið í leik fyrir sunnan og það gerir mikið fyrir krakkanna.
Einhverjir iðkendur hafa keppt undir merkjum
Tindastóls og svo náðum við í eitt Hvatarlið fyrir
Króksamótið síðasta vetur sem var mjög skemmtilegt.“
Verða fastar æfingar í vetur? „Já, það verða æfingar
tvisvar í viku fyrir börn og unglinga. Á mánudögum og
þriðjudögum frá kl. 19-21. Yngri hópurinn (2009-2012)
er kl. 19 og eldri hópurinn (2005-2008) er kl. 20,“ segir
Lee Ann að lokum.
Körfuboltadeildin er komin með Facebook-síðu
https://www.facebook.com/karfahvot og svo er hægt að
hafa samband við okkur á netfangið hvotkarfa@gmail.
com. Lengri útgáfu viðtalsins má finna á Feykir.is. /ÓAB