Feykir


Feykir - 30.09.2020, Qupperneq 6

Feykir - 30.09.2020, Qupperneq 6
lokið við að setja upp upplýst ljósaskilti í garðinum, beint á móti inngöngunni í garðinn en fráfarandi stjórn hafði unnið að þessu verkefni um tíma og aðeins var eftir að bæta við nokkrum merktum leiðum, finna staðsetningu fyrir skiltið og fjármagna dæmið. Þetta sama ár var gert bílaplan við garðinn í samvinnu við Blönduósbæ, en rætt hafði verið um nauðsyn þess að koma upp malbikuðu plani utan við garðinn í nokkuð mörg ár. Kostnaður var rúm- lega sex milljónir króna og þar af var hlutur kirkjugarðs- ins 2,5 milljónir króna en Blönduósbær fjármagnaði restina,“ segir Valli og heldur áfram. „Árið 2019 var ráðist í það stóra verkefni að gera við allar steypuskemmdir sem komnar voru í kirkjugarðsvegginn. Þetta verkefni var unnið í samráði við dr. Magga Jóns Kirkjugarðurinn á Blönduósi til fyrirmyndar Kirkjan hefur átt örlítið undir högg að sækja síðustu árin og fréttir um fækkun í þjóðkirkjunni nokkuð algengar. Engu að síður virðast allir hafa skoðun á kirkjunni og hvert hlutverk hennar eigi að vera og þá ekki síður hvort það sé í lagi að teikna Jesú sem barmgóðan, hamingjusaman hippa o.s.frv. Það er þó nokkuð víst að fæstum hugnast að sjá kirkjur og kirkjugarða í niðurníðslu, enda íbúar oft stoltir af sinni kirkju og þær víða bæjarprýði og miðpunktur samfélagsins. Á Blönduósi er nýleg kirkjan sannarlega perla í bænum miðjum. Kirkjugarðurinn er hins vegar staðsettur á brekkunni vestan við Blöndu og gamla Sýslumannsbústaðinn. Hvað hefur verið gert í kirkju- garðinum á Blönduósi síðustu 2-3 árin? „Árið 2018 var Frá framkvæmdum í kirkjugarðinum í sumar. AÐSENDAR MYNDIR Rætt við Valdimar Guðmannsson vegna framkvæmda við kirkjugarð Blönduóskirkju Fyrir tilviljun heimsótti blaðamaður Feykis kirkjugarð Blönduóskirkju í sumar og hreifst af umgengninni og þeim framkvæmdum sem átt höfðu sér stað og unnið var að. Bæði var garðurinn snyrtilegur, bílaplan malbikað og bráðsnjallt upplýsingaskilti um garðinn var til fyrirmyndar. Á þeim tíma var verið að undirbúa lagfæringu á stígnum sem liggur um garðinn. Það var því ekki úr vegi að hafa samband við Valdimar Guðmannsson, Valla Blönduósing, formann stjórnar kirkjugarðs Blönduóskirkju og spyrja hann út í framkvæmdirnar. VIÐTAL Óli Arnar Brynjarsson Undirstöður fyrir auglýsingaskilti steyptar – og að sjálfsögðu allir í sjálfboðavinnu! sem hannaði garðinn á sínum tíma. Samið var við Árna Þor- valdsson múrarameistara úr Mosfelsbæ að vinna verkið. Þessir tveir heiðursmenn, ásamt efnasérfræðingum hjá BM Vallá, völdu efnið sem notað var við viðgerðina á veggnum. Viðgerðirnar tók- ust mjög vel og liturinn er svipaður og á kirkjunni, enda er hún einnig hönnuð af dr. Magga Jóns. Kostnaður við þetta verkefni var rúmar fjórar milljónir króna fyrir utan alla sjálfboðavinnu og aðkomu fyritækja á Blönduósi varðandi fæði verktaka, gistingu fyrir þá og flutning á efni svo eitthvað sé nefnt. Á sama ári var einnig byrjað að setja upp trékrossa með plötum með nafni, fæðingar- og dánardegi á þekkt en ómerkt leiði. Kostnaður við hvert leiði er um 12.000 krónur sem garðurinn borgar. Á þessu ári, 2020, hefur verið haldið áfram með þetta 6 37/2020

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.