Feykir - 30.09.2020, Side 8
úr að hann var sendur á
sveitabæ hér innanfjarðar
sem vinnumaður. Ekki leið á
löngu þar til bóndinn hafði
samband við lögreglu og
lét vita að hann saknaði
peninga og var það töluverð
upphæð sem bónda
vantaði. Ég fór ásamt gamla
varðstjóranum á vettvang og
við ræddum við bóndann og
gangsterinn og þegar hann
varð tvísaga þá handtókum
við gaurinn og ókum með
hann af stað í handjárnum á
Krókinn. Er á lögreglustöðina
var komið segir Mundi við
mig að við verðum að gera
líkamsleit á manninum og
var ástæðan sú að Munda
grunaði að maðurinn væri
með eitthvað á þeim stað
þar sem að sólarljóssins nyti
eigi við. Við fórum í málið og
viti menn peningavöndull,
óhugnanlega þykkur komst
í sólina.
„Hann iðaði sér allt of mikið
í sætinu á bílnum,“ var svar
Munda þegar ég spurði
hann að því hvernig hann
hefði fattað þetta.
- - - - - -
Ég skora á Sigurð Hólmar
Kristjánsson, fulltrúa
lögreglustjóra, að taka við
pennanum.
Það var á vormánuðum
2008 sem fjölskyldan flutti
búferlum frá Flateyri til
Sauðárkróks en ég hafði
tekið starfi varðstjóra í
lögreglunni á Sauðárkróki
eftir að hafa starfað sem
slíkur í lögreglunni á Ísafirði
í um tíu ár.
Þetta var nú töluverð
breyting fyrir mig og mína að
koma úr 200 manna þorpi
og flytja á Krókinn þar sem
allt var til alls og Bergljót
Ásta, dóttir okkar, fékk
bekkjarfélaga en hún hafði
verið ein í árgangi á Flateyri.
Einnig tókum við strax
eftir hvað menningarlífið
var öflugt hér, ég byrjaði
fljótlega í karlakórnum
Heimi og Gógó byrjaði að
tengja sig við leikfélagið á
staðnum.
Vinnufélagarnir voru ekki af
verri endanum og dásamleg
reynsla að starfa með
köllum eins og Kristjáni
Óla og Guðmundi, Munda,
sem marga fjöruna höfðu
sopið. Það byrjaði svo sem
ekkert áfallalaust að mæta
á fyrstu vaktina hérna á
Króknum þegar Mundi
tók á móti mér og sagðist
ekki ætla að taka í hönd
mína þar sem að hann hafi
viljað að annar maður fengi
jobbið, eins og hann orðaði
það, en það átti eftir að
breytast því þegar Mundi
gekk út af lögreglustöðinni
frá sinni síðustu vakt sem
lögreglumaður, tók hann í
höndina á mér og sagðist
líta á mig sem arftaka sinn
í starfi.
Við verðum nú að láta eina
löggusögu fylgja hér af
Munda sem sýnir hvað hann
gat verið naskur.
Lesendur kannast kannski
við þegar við fengum
hingað í Skagafjörðinn,
fyrir nokkrum árum, ófagra
sendingu frá einu af
Eystrasaltslöndum, kauða
sem hafði nú einhverja
tengingu við mafíustarfsemi
og gerði óskunda í einni
verslun bæjarins með því
að lesa upplýsingar af
kortum viðskiptavina þannig
að hægt var að taka út af
þeim. Rannsókn málsins tók
mikinn tíma og maðurinn
var settur í farbann og
einhvern veginn varð það
ÁSKORENDAPENNINN
Pétur Björnsson Sauðárkróki
Arftaki Munda
UMSJÓN
Páll Friðriksson
Pétur Björnsson. MYND AÐSEND
Nýliðar voru áberandi í starfi GSS í
sumar en metþátttaka var á árlegu
nýliðanámskeiði í júní. Formaður
klúbbsins brá sér í hlutverk blaðamanns
og tók nokkra þeirra tali og mun Feykir
birta viðtöl í næstu blöðum.
Díana Dögg Hreinsdóttir og Dúfa Dröfn
Ásbjörnsdóttir brugðu sér í golfdressið í
sumar en Dúfa hefur oftast klæðst mark-
mannstreyjunni þegar sportið er annars
vegar þar sem hún var öflug á milli stanganna
hjá nokkrum liðum
í Íslandsmóti KSÍ.
Körfuboltabolur-
inn var líka mikið
notaður hér áður
fyrr og kannski
ekki alveg kominn á
herðatréð enn.
„Við tókum þetta
alla leið og erum
búnar að spila við
hvert tækifæri,“
segja þær Díana
og Dúfa. Þær eru
sammála um að það
hafi verið auðvelt
að ganga í klúbbinn
og að vel hafi verið
tekið á móti þeim,
allir tilbúnir að
leiðbeina og hjálpa.
Díana segir að það
hafi komið sér á
óvart að hún varð
ekki geggjað góð strax, en líka að góðu
golfararnir geta átt mjög slæm högg líka.
Dúfa segir það helst hafa komið sér á óvart
hve forfallin hún varð. Þær mæla með að
allir prófi íþróttina: „Golf er skemmtileg leið
til að fá sér smá göngutúr,“ segir Dúfa.
Sumarið hefur verið eftirminnilegt og
skemmtilegt. „Líklega stendur upp úr að
hafa náð tveimur fuglum og að hafa náð
tvisvar lengra upphafshöggi en Árný þegar
við spiluðum saman í vanur/óvanur,“ segir
Díana.
( NÝLIÐAR Í GOLFI ) @Kristján Bjarni Halldórsson
Tókum þetta alla leið
Dúfa Dröfn og Díana Dögg.
AÐSEND MYND
Díana Dögg og Dúfa Dröfn
Sérstakur kafli í sögunni er nú skráður
og sýnist í öllu geta okkar veislukjör stytt.
Við sjáum það nú að sitthvað var gott hér áður
þó sífellt við værum að tuða um þetta og hitt.
Því veira sem enginn í verunni mikið þekkir
er veraldarplága orðin sem fjandaher.
Hún aflagar kjörin og utanlandsferðunum hnekkir
og enginn veit hvernig málið að lokum fer.
En sumir eru víst meira en mikið hræddir
og margir reiðir af hagsmunaskelfandi vá.
Og til eru þeir sem trúa því líka mæddir
að tilveran öll sé nú lokadóm sinn að fá.
Og verið getur að allt þetta eigi með rökum
einhverjar stoðir og sumar af traustari gerð.
En mannkyn sem allt er á kafi í siðlausum sökum
er síst til þess fært að dæma hvað hér er á ferð.
Það kemur í ljós hvað Covid mun hafa að segja
en kannski er best að tjá sig sem minnst um það.
Úr einhverju verða þó allir að lokum að deyja
og ef til vill komast menn þannig á friðsælli stað!
AÐSENT | Rúnar Kristjánsson
Kveðið um Covid
8 37/2020