Feykir - 30.09.2020, Side 10
BYGGÐASAFN SKAGFIRÐINGA GREINIR FRÁ VERKEFNUM SUMARSINS OG ÁHRIFUM COVID-19
eftir Berglindi Þorsteinsdóttur og Ylfu Leifsdóttur
Óhefðbundið sumar hjá Byggðasafninu
Það hefur verið fremur óvenjulegt
um að litast í Glaumbæ undanfarna
mánuði, þar sem alla jafna má
sjá margt um ferðamanninn og
oftar en ekki fjöldann af rútum á
hlaðinu, en nú hefur verið heldur
rólegra á safnsvæðinu vegna
kórónuveirufaraldursins. Um
tólf þúsund gestir hafa heimsótt
Byggðasafn Skagfirðinga í Glaumbæ
og Víðimýrarkirkju það sem af er þessu
ári og er þetta um 68% fækkun miðað
við sama tíma í fyrra. Réði þar fækkun
erlendra ferðamanna mestu um. Það
var okkur þó gleðiefni að Íslendingar
voru duglegir að heimsækja safnið í
sumar en í fyrra voru Íslendingar um
7% gesta safnsins en í ár um 27%.
Tíminn mun svo leiða það í ljós hver
staðan verður í árslok.
Með tilkomu COVID-19 núna í vor
var ljóst að þetta sumar yrði með öðru
móti en síðustu ár. Lögð voru drög að
viðburðadagskrá til að hafa líf og fjör á
safnsvæðinu í von um að trekkja að fleiri
gesti. Boðið var upp á daglegar leiðsagnir,
leiki á laugardögum og gestum leyft að
sjá hvernig strokka á smjör og leika með
leggjabú á gamla mátann. Hestar frá
Syðra-Skörðugili mættu á svæðið og var
börnum boðið á bak, þjóðlegar og
prúðbúnar konur í Pilsaþyt heimsóttu
safnið og vöktu að vanda aðdáun gesta.
Þá kom Eyjólfur Eyjólfsson og heillaði
viðstadda með langspilsleik í bað-
stofunni. Haldið var upp á afmælisdag
Mark Watson, hins enska aðalsmanns
sem tók ástfóstri við Glaumbæ og
íslenska fjárhundinn á fyrri hluta 20.
aldar en framlag hans til varðveislu
hvors tveggja var ómetanlegt. Af því
tilefni fjölmenntu íslenskir hundar og
eigendur þeirra í Glaumbæ og gestum
var boðið að klappa fjór-fætlingunum.
Sótt var um styrk úr aukaúthlutun
safnaráðs vegna Covid-19, sem ætlaður
var til eflingar á faglegu starfi viður-
kenndra safna og hlaut Byggðasafnið
1,5 m.kr. styrk. Þá kom Nathalie
Jacqueminet, sérfræðingur í forvörslu
og safnafræðingur, til ráðgjafar í
Byggðasafnið í tæpar tvær vikur í júlí.
Meðal þeirra verkefna sem Nathalie
kom að var aðstoð við að meta ástand
gripa í sýningum, leiðbeina um hvernig
meta á hvort gripir þarfnist hvíldar eða
forvörslu og hvernig frágang gripa í
safngeymslum væri best háttað. Einnig
aðstoðaði hún við gerð nýrrar neyðar-
áætlunar, fór yfir öryggismál og
aðstoðaði við gerð áætlunar um um-
hirðu gripa. Kom hún, ásamt starfs-
mönnum safnsins, víða við í sýningum
og safngeymslum safnsins meðan á
veru hennar hjá safninu. Munum við
halda áfram vinnu okkar í áætlana-gerð
Til vinstri: Frá flutningi nýs þjónustuhúss í Glaumbæ. Til hægri: Glæsilegar konur í Pilsaþyt ásamt Eyjólfi Eyjólfs-
syni langspilsleikara, Ásmundi Kristjánssyni gullsmið og Guðrúnu Hildi Rosenkjær hjá Annríki, þjóðbúningar
og skart.
Nathalie Jacqueminet sérfræðingur í forvörslu ásamt starfsfólki Byggðasafns Skagfirðinga.
MYNDIR: BYGGÐASAFN SKAGFIRÐINGA
Byggðasafn Skagfirð-
inga, Héraðsbókasafn
Skagfirðinga, Héraðs-
skjalasafn Skagfirðinga
og Listasafn Skagfirðinga
tóku sig saman og létu
hanna fyrir sig nýtt
auðkenni safnanna. Nýtt
og sameiginlegt auð-
kenni er tákn um vilja
safnanna til aukins
samstarfs sín á milli, sem
öll sinna skagfirskum
menningararfi.
Gengið var til samninga við
Þórhall Kristjánsson grafísk-
an hönnuð hjá Effekt
hönnun slf., um hönnun
auðkennisins. Leitað var
innblásturs á meðal prýðis-
gripa sem varðveittir eru hjá
Byggðasafni Skagfirðinga
með áherslu á útskurð, en
það er gott dæmi um
alþýðulist sem tengir öll
söfnin saman. Útskurður var
ein af þeim aðferðum sem
Íslendingar notuðu öðrum
fremur til að fegra umhverfi
sitt í árhundruð. Gripirnir
voru sjaldan merktir höfundi
en stundum var hægt að
greina höfundareinkenni í
stíl og myndmáli útskurðar.
Útskurðurinn sem er fyrir-
mynd auðkennisins prýðir
kistil sem var í eigu Guðrúnar
Björnsdóttur frá Skíðastöð-
um í Laxárdal (BSk 857 –
sjá meðfylgjandi myndir).
Hann er sérlega fallegur og
vel varðveittur en hann var
gefinn til safnsins fyrir tæpri
hálfri öld (1972).
Kistillinn sjálfur er frá árinu
1767 og er ártalið rist á
framhlið hans, listamaðurinn
er óþekktur. Útskurðartáknið
á hlið kistilsins fangaði
athygli okkar þar sem
myndmál þess getur vel
táknað söfnin fjögur, eitt lauf
stendur fyrir hvert safn, sem
tengjast innan banda
Skagafjarðar og skagfirsks
menningararfs. Auðkennin
eru eins en hvert safn er
með sinn lit og þar af leið-
andi sitt sérkenni. Litavalið
eru hefðbundnir jarðlitir en
litina má finna allt frá
vefnaði úr jurtalituðu bandi
yfir í blæbrigði torfsins, og í
verkum Jóhannesar Geirs –
þeir tóna vel saman og eiga
skírskotun í skagfirskan
menningararf.
Sameiginlegt tákn
safnanna í Skagafirði
Mynd af lógói Byggðasafnsins og útskornum kistlinum sem varð
innblástur fyrir nýtt auðkenni safnanna í Skagafirði en sama tákn er
í merkjum Héraðsskjala-, Héraðsbóka- og Listasafns Skagafjarðar.
og frekari úrvinnslu þeirrar vinnu sem
fram fór og ábendinga sem fram komu
á meðan á dvöl hennar hjá Byggða-
safninu stóð.
Þetta fremur rólega sumar veitti
einnig tækifæri til ýmissa verka sem
annars hefði ekki gefist tími til að
framkvæma. Sumarstarfsmenn safns-
ins höfðu í nógu að snúast í ýmsu
viðhaldi og þrifum í upphafi sumars
þegar sem fæstir gestir voru á ferð-
inni. Farið var í yfirhalningu á Gils-
stofunni í ár, gluggar voru lagfærðir og
húsið málað og klárað var að lagfæra
glugga í Áshúsi en Trésmiðjan Ýr hafði
veg og vanda að þeirri viðgerð sem hófst
sl. vor. Þá var farið í að ganga frá
umhverfis nýtt þjónustuhús í Glaum-
bæ, sem hagleiksmennirnir í áhaldahúsi
Sveitarfélagsins Skagafjarðar smíðuðu.
Fornverksmenn sáu um að tyrfa þakið,
önnuðust uppsetningu hliðs, hellulögn
og annan frágang umhverfis þjónustu-
húsið svo prýði er að. Einnig hafa þeir
umsjón með viðgerðum á gamla
bænum núna í haust.
Frá Mark Watson deginum þegar íslenskir fjárhundar og eigendur þeirra heimsóttu safnið.
10 37/2020