Fréttablaðið - 21.12.2021, Síða 2

Fréttablaðið - 21.12.2021, Síða 2
Það eru að minnsta kosti ekki vandkvæði á því að nemendur grunnskólans okkar fái einstaklingsmiðaða kennslu. Birna Björns- dóttir, íbúi á Raufarhöfn Jólainnkaupin kláruð í kapphlaupi við tímann Aðeins einn nemandi er eftir á unglingastigi á Raufarhöfn. Enginn í fyrsta bekk. Áður voru yfir hundrað nemendur við grunnskólann. bth@frettabladid.is BYGGÐAMÁL Raufarhöfn er í hópi þeirra byggðarlaga þar sem fækkun fólks hefur orðið hvað örust undan- farið. Árið 2001 voru 338 íbúar samkvæmt Hagstofunni búsettir á Raufarhöfn. Nú, 20 árum síðar, hefur íbúafjöldi nánast helmingast og er 174 manns. Mikil merki þessa koma fram í grunnskólastarfi. Birna Björns- dóttir sem sinnti kennslu á Raufar- höfn um átján ára skeið, segist þó reyna að horfa á björtu hliðarnar. „Það eru að minnsta kosti ekki vandkvæði á því að nemendur grunnskólans okkar fái einstakl- ingsmiðaða kennslu,“ segir Birna. Staðan á Raufarhöfn er þannig skólaárið 2020-2021 að aðeins einn nemandi er eftir á öllu unglinga- stiginu. Hann sækir skóla á Raufar- höfn fjóra daga vikunnar en einn dag í Lundi. Átta nemendur eru samanlagt á Raufarhöfn í 2.-7. bekk. Enginn nemandi er í 1. bekk, tveir eru í 2. bekk, einn nemandi er í 3. bekk, einn í 4. bekk, tveir í 5. bekk og einn nemandi í 6. og 7. bekk. Vel yfir 100 nemendur stunduðu nám í skóla- húsinu á Raufarhöfn þegar best lét. „Það tekur auðvitað svolítið á að fylgjast með þessari þróun,“ segir Birna. „En ég vil ekki barma mér, fólk er alls ekki á vonarvöl en auð- vitað vantar okkur fleira fólk og þá ekki síst foreldra sem eiga börn á grunnskólaaldri.“ Birna sat áður í sveitarstjórn Raufarhafnarhrepps. Hún telur að stjórnvöld mættu fara í það sem hún kallar „róttækari byggðaað- gerðir“. Hún bindi vonir við f leiri störf án staðsetningar, enda kjósi hluti landsmanna alltaf strjálbýli umfram þéttbýli. Í samantekt Vífils Karlssonar hag f ræðings kemur f ram að heildartekjur sveitarfélaga voru árið 2019 alls 354 milljarðar. Þær skiptust þannig að 60 prósent voru útsvarstekjur, 13 prósent voru fast- eignaskattur, 13 prósent komu úr jöfnunarsjóði og 14 prósent voru þjónustutekjur og aðrar tekjur. Mikilvægi íbúa á vinnumarkaði fyrir tekjur sveitarfélaga liggur því skýrt fyrir. n Enginn á fyrsta ári og bara einn á öllu unglingastiginu Þar sem voru yfir hundrað nemendur eru nú færri en tíu. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Úr starfi grunnskólans á Raufarhöfn. mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30 laugardaga 8.00 -16.00 sunnudaga 9.00 -16.00 Austurströnd 14 • Hringbraut 35 ....................................................Sími: 561 1433 www.bjornsbakari.is PREN TU N .IS TARTALETTUR Íslenskar hátíðar ................................................ Fyrir jól og áramót Fléttubrauð, skrautrúnstykki, súpurúnstykkifín og gróf snittubrauð, fín og gróf samlokubrauð, partýbrauð 15 og 30 kúla GLEÐILEG JÓL Pantið í verslunum okkar eða hringið í síma 561 1433 benediktboas@frettabladid.is SKÓLAMÁL Aref Qasemi útskrifað- ist á sunnudag úr Tækniskólanum af pípulagningabraut, 22 ára gam- all. Í bréfi skólans segir að Aref sé frá Afganistan og hafi komið hing- að til lands árið 2016 eftir að hafa orðið viðskila við fjölskyldu sína á leiðinni til Íran. Hann var í fimm ár á f lótta og ferðaðist 6.500 kílómetra til þess að komast til Íslands. Eftir komu sína til landsins lét Aref reyna á fjölskyldusameiningu, sem tókst að lokum og nú er fjöl- skyldan öll búsett hér á landi. Nú vinnur hann hjá SÍH pípulögnum og stefnir á meistaranám í sama fagi. Það er skemmtileg staðreynd að bróðir Arefs stundar nú nám við sömu braut. Aref hlaut verðlaun fyrir góða ástundun og þrautseigju í námi en alls voru 344 nemendur braut- skráðir. n Útskrifaðist eftir 6.500 kílómetra ótrúlegt ferðalag Aref Qasemi benediktboas@frettabladid.is COVID-19 Ef farið verður eftir minn- isblaði Þórólfs Guðnasonar sótt- varnalæknis munu hertar aðgerðir verða kynntar eftir ríkisstjórnar- fund í dag. Samkvæmt frétt á Vísi í gær leggur Þórólfur til 20 manna samkomu- bann og að skólar hefjist síðar en ráðlagt var eftir jólafrí, eða 10. janú- ar. Minnisblaðið sendi hann til Will- ums Þórs Þórssonar heilbrigðisráð- herra í gær. Fjöldi Covid-smita hefur verið að greinast að undanförnu og náði hámarki á sunnudag þegar alls 220 greindust. Þá greindust 18 á landa- mærunum. Vanalega fara færri í skimun á sunnudögum og því er hugsanlegt að enn fleiri hafi greinst í gær. Ráðherranefnd fundar um til- lögur sóttvarnalæknis klukkan þrjú í dag. Ríkisstjórnin fundar í dag og væntanlega verður tilkynnt um aðgerðir að fundi loknum. Núver- andi reglugerð gildir til miðnættis á miðvikudaginn. Alls eru rúmlega þrjú þúsund manns í sóttkví og um tvö þúsund í einangrun. Þá liggja ellefu á sjúkra- húsi en tveir á gjörgæslu. n Hertar aðgerðir verða kynntar í dag Þórólfur Guðnason, sóttvarna- læknir. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Það var líflegt um að litast í Smáralind í gærkvöldi þegar ljósmyndara Fréttablaðsins bar þar að garði. Fjölmargir höfðu lagt leið sína í verslunarmið- stöðina enda allar líkur á að kynntar verði harðar aðgerðir fram yfir jól og því betra að vera búin að klára jólagjafir áður en aðeins örfáir mega koma inn í búðirnar til að finna eitthvað gott í pakkana. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI 2 Fréttir 21. desember 2021 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.