Fréttablaðið - 21.12.2021, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 21.12.2021, Blaðsíða 4
Covid-göngudeild Landspít- ala undirbýr sig fyrir storm- inn því smittölur hækka í sífellu. Fyrir utan eitt lyf er líklegt að sömu aðferðum sé hægt að beita gegn Omíkron og fyrri afbrigðum. kristinnhaukur@frettabladid.is COVID-19 Heilbrigðisstarfsfólk á Covid-göngudeild Landspítala und- irbýr sig fyrir storm vegna hraðrar útbreiðslu Omíkron-af brigðisins. Enn sem komið er dugar mann- skapurinn til þess að sinna Covid- sjúklingum en varað hefur verið við því að smittölur gætu þrefaldast. Það er, fari úr 200 í 600 á dag. „ M ið að v ið þ e s s a h r ö ðu útbreiðslu má búast við auknum fjölda sem eru það veikir að þeir þurfi okkar þjónustu, en það er ekki farið að reyna á það enn þá,“ segir Runólfur Pálsson, einn af yfirmönnum Covid-göngudeildar Landspítala. „Þetta mun koma í ljós á næstu viku eða svo en við gerum okkar áætlanir út frá þeim mikla fjölda sem greinist á hverjum degi.“ Þá sé einnig horft til aldursdreifing- ar smitaðra og bólusetningarstöðu. Fréttir hafa borist frá öðrum löndum um að veikindi af völdum Omíkron séu ekki jafn alvarleg og af fyrri afbrigðum, en smitist hraðar. Til að mynda sýnir nýleg rannsókn frá Hong Kong að Omíkron fjölgi sér sjötíufalt hraðar í barkanum en Delta-af brigðið en fjölgi sér tífalt hægar í lungunum en upprunalega veiran. Runólfur segir enga reynslu komna á alvarleika veirunnar hér og segir enn þá skorta meiri gögn að utan. „Það er ekkert sem bendir til annars en að við getum beitt sömu aðferðum gegn Omíkron og fyrri afbrigðum,“ segir hann. „Fyrir utan að vísbendingar eru um að lyfið Ronapreve, sem innifelur einstofna mótefni gegn kórónaveirunni, hafi mjög takmarkaða virkni gegn Omíkron-afbrigðinu.“ Dæmi eru um að fólk sem hefur fengið Covid-19 sé nú að sýkjast aftur. Runólfur segist ekki búast við því að veikindi þessa fólks verði alvarlegri en annarra, fólk búi yfir ónæmisviðbrögðum sem ættu að draga úr alvarleika veikinda. „Ég myndi ekki segja að það sé líklegt að fólk sem smitaðist í haust smitist aftur af Omíkron núna. En það er meira um endursmit en við höfum áður séð í þessum faraldri,“ segir hann. Þó það sé afar ólíklegt sé ekki útilokað að vera með báðar veirur á sama tíma. Þegar þetta er skrifað eru 1.807 manns smitaðir, þar af 654 börn. Flestum dugar rafræn upplýsinga- miðlun en þeir sem fá mikil ein- kenni eða teljast í aukinni áhættu á alvarlegum veikindum fá símaþjón- ustu og boð um að koma í skoðun ef þurfa þykir. Íslendingar hor fa mikið til reynslu Dana þar sem Omíkron- afbrigðið er nú að taka yfir. Sjúkra- húsinnlagnir þar eru 0,7 prósent. Omíkron hefur þegar tekið yfir á Írlandi og í Lundúnaborg. Hafa ýmsar Evrópuþjóðir sett takmark- anir á f lug frá Bretlandi vegna Omíkron. „Þetta verða erfiðar vikur og mánuðir eftir því sem lengra líður á veturinn,“ sagði Anthony Fauci, sóttvarnalæknir Bandaríkjanna. Í Bandaríkjunum hefur daglegum smitum fjölgað úr 70 þúsundum frá því í byrjun nóvember í tæp- lega 130 þúsund. Jonathan Reinir, heilbrigðissérfræðingur CNN sjón- varpsstöðvarinnar, sagði Omík- ron-af brigðið álíka smitandi og mislingaveiruna, sem væri ein mest smitandi veira sögunnar. n Mjög ólíklegt en ekki útilokað að hafa Omíkron og Delta á sama tíma Símavakt Covid- göngudeildar. Fæstir þurfa símaþjónustu og dugar að skrá einkenni raf- rænt. MYND/ÞORKELL ÞORKELSSON Runólfur Páls- son, yfirlæknir Covid-göngu- deildar Land- spítala Já, gegnum tölvupóst Já, í gegnum símtal Já, í gegnum smáskilaboð Já, í gegnum samfélagsmiðla Já, með bréfi eða pósti Já, með öðrum leiðum Nei UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LAUGARDAGA 12-16 960.000 KR VSK VERÐHÆKKUN UM ÁRAMÓT* A L V Ö R U J E P P I – A L V Ö R U F J Ó R H J Ó L A D R I F JEEP COMPASS LIMITED TROÐFULLUR AF AUKABÚNAÐI 6.999.000 KR. JEEP RENEGADE TRAILHAWK TROÐFULLUR AF AUKABÚNAÐI 6.199.000 KR. *Verð á Compass og Renegade hækkar um 480.000-960.000 um áramótin, vegna VSK hækkana. Nánari útskýringar fást hjá sölumönnum. ÁRA ÁBYRGÐ 8 ÁRA ÁBYRGÐ Á DRIFRAFHLÖÐU Nær helmingur landsmanna orðið fyrir tilraunum svikara Hefur einhver haft samband, eða reynt að hafa samband, við þig til að svíkja út úr þér fé síðastliðna tólf mánuði? 37,7% 11,5% 10,8% 11,4% 0,9% 0,9% 54% adalheidur@frettabladid.is NETÖRYGGI Tæpur helmingur lands- manna, eða 46 prósent, hefur orðið fyrir tilraunum til fjársvika síðast- liðna tólf mánuði, ef marka má nýja könnun Prósents. Flestir segja slíkar tilraunir hafa birst þeim í tölvupósti, eða 31,7 pró- sent, en 11,5 prósent segja að um símtal hafi verið að ræða. Um ellefu prósent segjast hafa fengið slík boð gegnum smáskilaboð og önnur ellefu prósent gegnum samfélagsmiðla. Alls segja 54 prósent að hvorki hafi verið haft samband, né reynt að hafa samband í þeim tilgangi að svíkja út úr þeim fé. Samkvæmt niðurstöðum könn- unarinnar aukast líkur á tilraunum svikulla aðila eftir því sem tekjur fólks hækka. Þá er fólk á aldrinum 45 til 54 ára líklegast til að verða fyrir þessu ónæði, en yngsti aldurshópur- inn verður oftar fyrir tilraunum til svika á samfélagsmiðlum en aðrir aldurshópar. Könnunin, sem var gerð dagana 19. til 28. nóvember, var send á 2.200 einstaklinga átján ára og eldri, sem tilheyra könnunarhópi Prósents. Svör voru vigtuð eftir kyni, aldri og búsetu. Svarhlutfall var 53 prósent. n 46% segja svindlara hafa reynt að komast í sam- band við sig. gar@frettabladid.is VEÐUR Nær engar líkur virðast nú vera á því að snjór falli hérlendis á aðfangadag. Undantekningin frá því gæti þá orðið á Kvískerjum og þar í kring undir Vatnajökli. Langtímaspár veðurfræðinga sýnast ætla að ganga eftir þann- ig að kalt verði í veðri en algerlega úrkomulaust nema á litlu svæði á suðausturhorni landsins. Sama virðist ætla að gilda um jóladag. Á annan dag jóla gæti snjóað á norð- an- og austanverðu landinu miðað við spár í augnablikinu. n Jólasnjórinn alveg út úr kortunum Við Arnarhól í fyrravetur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK benediktboas@frettabladid.is BÓKATÍÐINDI Aðeins 16,6 prósent bóka sem getið er í Bókatíðindum Félags íslenskra bókaútgefenda 2021 eru prentuð hér á landi. Fjöldi titla sem prentaðir eru innanlands eru 112 og fækkar um 21 frá fyrra ári. Bókasamband Íslands kannaði prentstaði íslenskra bóka og fer hlutfallið niður milli ára. Hlutfallið var 20,4 prósent í fyrra en tæp 70 prósent fyrir áratug. n Rithöfundar prenta erlendis 4 Fréttir 21. desember 2021 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.