Fréttablaðið - 21.12.2021, Síða 6
Vísindarannsóknin
gengur út á að með-
höndla sjúkdóminn
snemma, en það er
einmitt svona sem
framþróunin verður í
krabbameinslækning-
um.
Sigurður Yngvi Kristinsson,
prófessor í blóðsjúkdómum
GLÆSIBÆ
URÐARHVARFI
Þú nnur Lyfsalann í Glæsibæ, Urðarhvar og bílaapótek Vesturlandsvegi
Renndu við í lúguna
9-22
OPIÐ ALLA DAGA
BÍLAAPÓTEK
URÐARHVARF
Opið virka daga 9.00 - 17.30
GLÆSIBÆR
Opið virka daga 8.30 - 18.00
BÍLAAPÓTEK VIÐ VESTURLANDSVEG
Opið alla daga 9.00 - 22.00
bth@frettabladid.is
STJÓRNMÁL „Þetta var ekkert rætt
en ég geri ráð fyrir að hver ráðherra
fái að velja sér sína aðstoðarmenn og
að það gildi um mig eins og aðra ráð
herra. Þannig hefur það alltaf verið,“
segir Guðrún Hafsteinsdóttir, þing
maður Sjálfstæðisflokksins, spurð
hvort aðstoðarmannamál hafi verið
rædd á fundi hennar með Bjarna
Benediktssyni, formanni Sjálfstæðis
flokksins, þegar skipan ráðherra var
ákveðin fyrir skemmstu.
Guðrún mun taka við af Jóni
Gunnarssyni sem innanríkisráð
herra eftir tæpa 18 mánuði. Eftir að
Hreinn Loftsson tók þá ákvörðun í
síðustu viku að hætta sem aðstoðar
maður Jóns hafa vaknað spurningar
um hvort mannabreytingar hjá for
vera Guðrúnar í ráðuneytinu muni
hafa áhrif á starfsumhverfi hennar
síðar. Áður hafði verið tilkynnt að
Hreinn og Brynjar Níelsson myndu
aðstoða Jón saman.
Spurð hvort hún hyggist halda
Brynjari Níelssyni sem aðstoðar
manni eftir að tími Jóns rennur út í
ráðuneytinu segist Guðrún ekkert
vita um það. Spurð hvort hún telji
eftirsjá að Hreini úr ráðuneytinu
segir Guðrún að hún sjái ekki betur
en að hann og Áslaug hafi unnið
mjög vel saman. „Ég geri ráð fyrir að
Hreinn hafi staðið sig vel.“
Guðrún segist hlakka til að takast
á við þau nýju verkefni sem fylgi ráð
herradómi.
„Ég var alveg skýr með það að ég
hef metnað fyrir hönd míns kjör
dæmis til að taka við ráðuneyti.“ n
Guðrún reiknar með að velja aðstoðarmenn sjálf
Þetta var ekkert rætt en
ég geri ráð fyrir að hver
ráðherra fái að velja sér
sína aðstoðarmenn og
að það gildi um mig
eins og aðra ráðherra.
Guðrún Hafsteinsdóttir
Svo virðist sem að með nýrri
lyfjagjöf megi í fyrsta sinn
lækna mergfrumuæxli á byrj
unarstigi. Íslensk rannsókn
sem náði til allrar þjóðarinnar
og lyfjameðferð við forstigs
einkennum benda sterklega til
þessarar niðurstöðu.
elinhirst@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL „Fyrstu sjúkling
arnir með byrjandi mergæxli hafa
nú lokið tveggja ára lyfjameðferð og
sýna gríðarlega góða svörun,“ segir
Sigurður Yngvi Kristinsson, prófess
or í blóðsjúkdómum við Læknadeild
Háskóla Íslands og sérfræðingur við
Landspítala.
Byrjað er að nota tvö ný líftækni
lyf ásamt sterum í tilraunaskyni
hér á landi þegar forstigseinkenni
af mergæxli greinast, eða svokölluð
„mallandi mergæxli“. Sterkar vís
bendingar eru um að ef sjúkdómur
inn greinist á forstigi megi í fyrsta
skipti lækna hann með þessari lyfja
blöndu.
„Við höfum ekki séð svona góða
svörun við meðferð mergæxlis áður,“
segir Sigurður Yngvi.
Oft verður einkenna sjúkdómsins
ekki vart fyrr en hann er kominn á
alvarlegt stig. En fyrir fimm árum
var ákveðið að fara í að skima alla
Íslendinga, 40 ára og eldri, fyrir
forstigi mergæxlis, sem var ein
stæð vísindarannsókn í heiminum.
Merg æxli er krabbamein sem verður
til í fljótandi merg í beinum, þegar
þær frumur sem þar eru breytast
í krabbameinsfrumur. Hægt er að
mæla hvort þessar krabbafrumur
eru til staðar með því að leita að
ákveðnu próteini í blóðinu með ein
földu blóðprófi.
Fyrir fimm árum hófu Sigurður
Yngvi og teymi hans vinnu við rann
sóknina. Rúmlega 80 þúsund Íslend
ingar tóku þátt. Sigurður Yngvi kom
að máli við tvö stór erlend lyfjafyrir
tæki og sagt þeim frá því að til stæði
að skima heila þjóð til að sjá hvort
ávinningur væri af því að ráðast
gegn sjúkdóminum á forstigi. Lyfja
fyrirtækin voru reiðubúin til að taka
þátt og hafi þegar lagt til verkefnisins
líftæknilyf að andvirði 2,5 milljarða
íslenskra króna.
„Vísindarannsóknin gengur út á
að meðhöndla sjúkdóminn snemma,
en það er einmitt svona sem fram
þróunin verður í krabbameinslækn
ingum,“ segir Sigurður Yngvi.
Líftæknilyfin sem notuð eru auk
Sterkar vísbendingar um lækningu
á mergæxli greinist það á forstigi
Sigurður Yngvi
Kristinsson, pró-
fessor í blóð-
sjúkdómum
við Læknadeild
Háskóla Íslands.
MYND/AÐSEND
stera, heita Lenalidomid og Carsil
zomib.
Skimunarrannsóknirnar sýna að
um 5 prósent Íslendinga 40 ára og
eldri eru með forstig mergæxlis, en
ekki nærri því allir fá krabbamein
að sögn Sigurðar Yngva. „Þess vegna
viljum ekki meðhöndla alla, heldur
aðeins þá sem eru með svokallað
mallandi mergæxli, það er að segja
þegar forstigið er lengra gengið.“
Þessi íslenska rannsókn á heilli
þjóð vakti mikla athygli á árlegri
ráðstefnu bandarískra blóðlækn
inga, sem haldin var í Atlanta í
Bandaríkjunum helgina 10. til 14.
desember síðastliðinn. „Það má segja
að íslenska rannsóknin hafi verið á
allra vörum,“ segir Sigurður Yngvi. n
benediktboas@frettabladid.is
REYKJAVÍK Íbúaráð Háaleitis og
Bústaðahverfis fordæmir orð Þór
dísar Lóu Þórhallsdóttur, formanns
borgarráðs, sem hún lét falla í frétt
mbl.is um ráðið.
Þar sagði Þórdís að sér fyndist
ekki gott að heyra að Sjálfstæðis
f lokkurinn í Bústaðarhverfi væri
að boða til fundar. Í bókun ráðsins
á síðasta fundi eru þessi orð for
dæmd „Ekki verður önnur ályktun
dregin af þessum orðum en að
annað hvort sé um mikla vanþekk
ingu borgarfulltrúans að ræða, eða
algera vanvirðingu við fundinn og
stjórn Íbúasamtaka Bústaða og
Fossvogshverfis.
Samtökin eru ópólitísk samtök,“
segir í bókuninni. „Skorað er á borg
arfulltrúann að draga framangreind
ummæli sín til baka,“ segir þar enn
fremur. n
Íbúaráð fordæmir
orð Þórdísar Lóu
benediktboas@frettabladid.is
DÓMSMÁL María Sjöfn Árnadóttir
segir að sú yfirlýsing sem dóms
málaráðuneytið lét fréttamanni
CNN í té, þess efnis að brot ríkisins
í málsmeðferð hennar teldust ekki
nægjanleg til að flokkast sem brot
á réttlátri málsmeðferð gagnvart
mannréttindasáttmála, sé kjafts
högg fyrir sig og aðra þolendur
ríkisofbeldis.
CNN fjallaði ítarlega um íslenska
réttarkerfið og hvernig það bregðist
konum, í umfjöllun sinni í gær.
María er ein níu kvenna sem
hefur höfðað mál á hendur íslenska
ríkinu fyrir Mannréttindadómstóli
Evrópu vegna óréttlátrar málsmeð
ferðar innan íslenska dómskerfis
ins.
„Ég er gjörsamlega forviða og á
sama tíma verulega sár og reið yfir
þessari yfirlýsingu ráðuneytisins.
Lagalæsi virðist vera í einhverjum
ólestri hjá æðsta yfirvaldi dóms
mála,“ skrifar María í yfirlýsingu. n
Kjaftshögg
fyrir þolendur
Þórdís Lóa
Þórhallsdóttir,
formaður
borgarráðs
6 Fréttir 21. desember 2021 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ