Fréttablaðið - 21.12.2021, Side 8
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks,
Flokks fólksins og Miðflokks
í borgarráði gagnrýna meiri-
hlutann fyrir breytingar á
aðalskipulagi sem sagðar
eru eiga að miða að þéttingu
byggðar, breyttum ferða-
venjum og „grænni borg“.
gar@frettabladid.is
SKIPULAGSMÁL Borgarráð hefur
með atkvæðum meirihluta Sam-
fylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og
Vinstri grænna samþykkt uppfærslu
á aðalskipulagi Reykjavíkur fyrir
2010 til 2030. Fulltrúar Sjálfstæðis-
flokks í borgarráði greiddu atkvæði
á móti og áheyrnarfulltrúar Mið-
flokksins og Flokks fólksins gagn-
rýndu meirihlutann.
„Þéttleiki verður mikill meðfram
borgarlínu, íbúðum verður fjölgað
og atvinnuhúsnæði sömuleiðis,“
segir í bókun fulltrúa meirihlutans.
„Aðalskipulagið gerir ráð fyrir meiri
metnaði í breytingu ferðavenja þar
sem gert er ráð fyrir að fleiri hjóli,
gangi og noti almenningssamgöng-
ur. Þá er í aðalskipulaginu gert ráð
fyrir samdrætti í losun gróðurhúsa-
lofttegunda og grænni borg.“
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðis-
flokks segja í sinni bókun að aðal-
skipulagið sé gallað, ekki síst í hús-
næðismálum.
„Ef spá um vöxt rætist er árleg
þörf 1.210 íbúðir á ári til 2040. Að
óbreyttu mun þessi tala ekki nást og
húsnæðisverð í Reykjavík því áfram
vera undir þrýstingi vegna skorts á
fjölbreyttu framboði bygginga,“
segir í bókun Sjálfstæðismanna.
Áhyggjuefni sé að ekki sé áformað
að heimila uppbyggingu á Keldum
fyrr en eftir áratug.
„Ekki er gert ráð fyrir uppbygg-
ingu á Geldinganesi og möguleikar
lítið nýttir á Kjalarnesi. Ekki er gert
ráð fyrir íbúðum í Örfirisey né á BSÍ
reit. Hætta er því á að áfram skorti
hagkvæma reiti til fjölbreyttrar hús-
næðisuppbyggingar og óvissa er um
uppbyggingu í Úlfarsárdal,“ bóka
Sjálfstæðismenn.
„Það er með öðrum orðum gat í
húsnæðisáætlun borgarinnar upp á
þúsundir íbúða,“ segir í bókun Sjálf-
stæðismannanna þriggja.
„Hér er verið að boða massíva
þrengingarstefnu sem f lestir sjá
að gengur ekki upp. Ljóst er að ef
80 prósent nýrra íbúða verða
á áhrifasvæði svokallaðrar
borgarlínu þá þýðir
það mikla röskun í
rótgrónum hverfum
með tilheyrandi álagi
á umhverfið og íbúana.
Innviðirnir þola ekki
slíka uppbyggingu,“ segir
áheyrnarfulltrúi Mið-
flokksins í sinni bókun.
„Allt þetta miðar að því
að gefa leyfi fyrir háum
byggingum, með tilheyrandi
skuggavarpi sem er heilsuspill-
andi, í hverfunum ásamt því að
útrýma bílastæðum fyrir fjöl-
skyldubílinn. Það er sláandi að ekki
er gert ráð fyrir frekari úthlutun
lóða í úthverfum Reykjavíkur þar
sem möguleiki væri á stórkostlegri
uppbyggingu hagkvæms húsnæðis,“
bókar fulltrúi Miðflokksins.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins,
Kolbrún Baldursdóttir, bendir í
sinni bókun á að athugasemdir sem
komið hafi fram séu flestar vegna
byggingarmagns, hæðar húsa,
blandaðrar byggðar og svæða fyrir
bílastæði. Sérstaklega gagnrýnir
Kolbrún þó málefni skotsvæðanna
á Álfsnesi, sem reyndar er nefnt
Kjalarnes í bókuninni.
„Skipulagsyfirvöld ganga fram án
viðhlítandi samráðs. Fulltrúi Flokks
fólksins hefur áður tjáð sig um
skotveiðisvæðið á Kjalar-
nesi. Hagsmunum hverra
er verið að berjast fyrir í
því sambandi?“ bókar
fulltrúi Flokks fólksins. Í
sextán ár hafi íbúar mátt
þola hljóðmengun og blý
hafi safnast á ströndina
og í sjóinn.
„ A ð a l s k i p u l a g i
var breytt á síðustu
stundu, íbúar höfðu
ekkert tækifæri til athuga-
semda og samráð var ekkert.
Ýmsum brögðum er beitt, allt til
að skotvellirnir geti opnað að
nýju.“ n
Hér er verið að boða
massíva þrengingar-
stefnu sem flestir sjá að
gengur ekki upp.
Vigdís Hauks-
dóttir, borgarfull-
trúi Miðflokksins
og áheyrnarfull-
trúi í borgarráði
Minnihlutinn gagnrýnir þrengingar
í skipulagi og fyrirséðan íbúðaskort
Sjálfstæðismenn furða sig á að ekki sé gert ráð fyrir byggð á Geldinganesi í breyttu aðalskipulagi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
kristinnhaukur@frettabladid.is
HÚSNÆÐISMÁL Húsnæðisverð hefur
hækkað mest í Vestur-Evrópu hér á
Íslandi undanfarin fimm ár. Nemur
hækkunin tæpum 58 prósentum
frá árinu 2015 til 2020. Á öllu Evr-
ópusvæðinu er Ísland í þriðja sæti,
á eftir Ungverjalandi og Tyrklandi.
Þetta kemur fram hjá Eurostat, töl-
fræðistofnun Evrópu.
Fréttablaðið hefur í mánuðinum
fjallað ítarlega um húsnæðisskort-
inn á Íslandi, sér í lagi á höfuð-
borgarsvæðinu, og það háa verðlag
sem fylgir. Þróun húsnæðisverðs
á Íslandi sker sig mjög frá hinum
Norðu rlöndu nu m samk væmt
Eurostat, sem notar árið 2015 sem
núllpunkt í útreikningum sínum.
Hækkunin í Danmörku, Svíþjóð og
Noregi er á bilinu 22 til 25 prósent
sem er aðeins undir Evrópumeðal-
talinu, 26 prósent. Í Finnlandi er
hækkunin á húsnæðisverði aðeins
6 prósent á fimm árum.
Öfgarnar á Íslandi sjást einnig
á árunum fyrir 2015, en á árunum
2010 til 2015 hækkaði húsnæðis-
verð um 28 prósent á Íslandi. Aðeins
í Tyrklandi og Eistlandi hækkaði
verðið meira á þessum árum. Á liðn-
um áratug er Tyrkland eina landið
sem er með meiri heildarhækkun
en Ísland.
Húsnæðisverð á Íslandi tók risa-
stökk árið 2017, um 21 prósent, og
gera má ráð fyrir mikilli hækkun á
árinu 2021 einnig. En þær tölur liggja
ekki fyrir hjá Eurostat.
Af stórþjóðum hefur verð hækkað
um 39 prósent í Þýskalandi, 35 í Pól-
landi, 27 á Spáni, 17 í Frakklandi og
0,5 á Ítalíu þar sem hækkunin er
minnst í álfunni undanfarin fimm
ár. Á tíu ára tímabili hefur húsnæðis-
verð á Spáni reyndar lækkað, því að
hrun varð þar árin 2012 og 2013. n
Húsnæðisverð hér hækkað mest í Vestur-Evrópu
Ísland er langt frá Evrópumeðaltalinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
benediktboas@frettabladid.is
LÖGREGLUMÁL Skráð voru 677 hegn-
ingarlagabrot á höfuðborgarsvæð-
inu í nóvember. Fækkaði þessum
brotum töluvert milli mánaða. Þetta
kemur fram í mánaðarskýrslu lög-
reglustjóra.
Tilkynningum um þjófnaði og
innbrot fækkaði.
Sjö tilvik voru skráð þar sem lög-
reglumaður var beittur of beldi og
þrjú þar sem lögreglumanni var
hótað ofbeldi. Alls voru 64 mál um
heimilisofbeldi tilkynnt.
Alls bárust níu beiðnir um leit að
börnum og ungmennum í október.
Skráðum fíkniefnabrotum fækk-
aði milli mánaða. Voru tvö stórfelld
fíkniefnabrot skráð í nóvember. n
Tvö stórfelld brot
tengd fíkniefnum
Skráðum fíkniefnabrotum fækkaði á
milli mánaða. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
benediktboas@frettabladid.is
NETÖRYGGGI Um helgina uppgötv-
uðust nýir veikleikar í Log4j-kóða-
safninu. Enn er mikið um tilraunir
til árása sem byggja á veikleikanum.
Í ljósi þessara upplýsinga ríkir áfram
óvissustig almannavarna.
Í tilkynningu ríkislögreglustjóra
segir að fylgst verði með mögulegum
áhrifum veikleikans. Allir ómiss-
andi innviðir og þjónusta starfi eðli-
lega. Ekkert atvik hafi verið tilkynnt
þar sem brotist hafi verið inn í kerfi
með Log4j-veikleika. n
Fylgst með nýjum
veikleika í Log4j
Enn er mikið um tilraunir til árása
sem byggja á veikleikanum Log4j.
benediktboas@frettabladid.is
VIÐSKIPTI Meiri velta var í f lestum
atvinnugreinum á Íslandi í septem-
ber og október í ár en á sama tíma
í fyrra.
Framleiðsla málma fór upp um
76 prósent og veltan úr 36,2 millj-
örðum í 63,7 milljarða, samkvæmt
tilkynningu frá Hagstofunni.
Þar segir að á árinu 2020 hafi
verið mikið um lokanir og takmark-
anir vegna Covid-19. n
Stóraukin velta
framleiðslugreina
Framleiðsla málma á Íslandi fór upp
um 76 prósent. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
8 Fréttir 21. desember 2021 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ