Fréttablaðið - 21.12.2021, Síða 23

Fréttablaðið - 21.12.2021, Síða 23
Ísbúð Vesturbæjar ehf. hefur verið starfandi á Hagamel frá árinu 1971. Verslunin er því 50 ára á þessu ári. Verslanirnar eru fimm talsins og má segja að ísbíltúrinn vin- sæli hefjist með heimsókn í Ísbúð Vesturbæjar. Katla Guðjónsdóttir, fram- kvæmdastjóri Ísbúðar Vesturbæjar ehf., segir að Ísbúð Vesturbæjar eigi sér marga trygga viðskipta- vini sem koma aftur og aftur allan ársins hring. „Með tilkomu nýrra afgreiðslustaða síðustu árin, þá heldur áfram að bætast í hóp góðra viðskiptavina, sem kunna vel að meta hinn svala og kalda „gamla“ ís,“ segir hún. Ísbúð Vesturbæjar ehf. var fyrst opnuð á Hagamel árið 1971 og var það eina verslunin fram til ársins 2008, þá var önnur verslun opnuð við Grensásveg 50 í Reykjavík. Ísbúðin við Fjarðargötu í Hafnar- firði var opnuð 2010 og sómir sér vel í hjarta bæjarins. Einnig var opnuð verslun við Bæjarlind í Kópavogi árið 2013 og síðan í Skip- holti í Reykjavík árið 2016. „Ísbúð Vesturbæjar ehf. er þar af leiðandi hálfrar aldar gamalt fyrir- tæki, sem býður upp á gamla ísinn sem allir þekkja, en það er kaldur og ferskur mjólkurís. Gamla ísinn er hægt að fá í formi vanilluíss, súkkulaðiíss og jarðarberjaíss. Einnig er fáanlegur rjómaís, sem kallast nýi ísinn. Braðarefurinn er ákaflega vinsæll en ís í boxi ásamt ís í brauð- eða vöffluformi stendur alltaf fyrir sínu, ýmist einn og sér eða með sósum, ídýfum og/ eða sælgæti. Trúðaísinn í boxi eða brauði er uppáhald margra barna, sem oft fá að búa til sinn eigin trúð,“ upplýsir Katla. Vinsæl gjafabréf Gjafabréf Ísbúðar Vesturbæjar ehf. fást í miklu úrvali og njóta vaxandi vinsælda enda auðvelt að nálgast þau bæði í verslunum Ísbúðar Vesturbæjar ehf. eða af heima- síðunni isbudvesturbaejar.is. Ísbúð Vesturbæjar í 50 ár Starfsstúlkur taka vel á móti viðskiptavinum, Hekla Líf Hrafnsdóttir, Dagbjört Guðmundsdóttir og Þórunn Björgvinsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Gjafakort upp á trúðaís, bragðaref eða einhvern annan ís hjá Ísbúð Vesturbæjar er kærkomin gjöf. „Einnig er hægt að kaupa ákveðnar vörur, til dæmis bragða- ref, sjeik eða ísveislur. Enn fremur er hægt að velja ákveðna upphæð og viðskiptavinurinn fær að velja sjálfur,“ segir Katla og bætir við: „Sérstök jólagjafabréf eru til sölu, sem nýtast við hin ýmsu tækifæri tengd jólum, þau henta bæði fyrir einstaklinga, jólasveina og fyrirtæki. Þessi jólagjafabréf hafa þótt hentug fyrir jólasveina í skóinn, í jólavinagjafir eða sem möndlugjöf. Það gleðjast bæði ungir sem aldnir yfir að eiga í vændum ljúffengan ís,“ segir Katla. „Sumir kaupa jólaísinn í lítratali. Ísveislur eru algengar um jólin og allt árið um kring njóta margir þess að bjóða upp á ís með sósum í fjölskylduboðum. Bæði fyrirtæki og félagsmiðstöðvar hafa verið dugleg að gleðja sitt fólk með ís. Boðið er upp á eins lítra umbúðir, tveggja lítra og 4,5 lítra umbúðir. Með þessu er einnig hægt að fá sælgæti til að bragðbæta ísinn fyrir þá sem það vilja. Undanfarið hefur verið talsvert um það að fyrirtæki sendi starfsfólki sínu ísveislu, þetta hefur glatt marga sem hafa verið ýmist í sóttkví eða í einangrun,“ segir Katla. Gamli ísinn Ísbúð Vesturbæjar ehf. er þekkt fyrir gamla ísinn, en hann er kald- ur og ferskur mjólkurís. „Uppruna- legi gamli ísinn hefur verið og er enn framleiddur sérstaklega fyrir Ísbúð Vesturbæjar ehf. og er hann eingöngu fáanlegur í verslunum okkar. Gamli ísinn er grunnurinn að því öfluga vörumerki sem Ísbúð Vesturbæjar ehf. er.“ Ísbíltúrinn alltaf vinsæll Katla segir að Íslendingar séu sér- stakir að því leyti að þeir kaupa ís allan ársins hring. Auðvitað er ísinn vinsælastur yfir sumar- tímann en fólk fær sér ís hvernig sem viðrar. Ísbíltúrar eru hluti af menningu okkar Íslendinga og einnig kærkomin samverustund, að sögn Kötlu. Ísbúð Vesturbæjar ehf. reynir að leggja áherslu á umhverfisvernd og allar umbúðir eru umhverfis- vænar. „Við leggjum metnað okkar í samfélagslega ábyrgð og umhverfisvernd er hluti af því,“ segir Katla. n Ísbúð Vesturbæjar ehf. er þar af leiðandi hálfrar aldar gamalt fyrirtæki, sem býður upp á gamla ísinn sem allir þekkja, en það er kaldur og ferskur mjólkurís. kynningarblað 3ÞRIÐJUDAGUR 21. desember 2021 ÍS OG ÍSBÚÐIR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.