Fréttablaðið - 21.12.2021, Síða 27
Ísinn hjá Skúbb hefur verið
valinn besti ísinn hjá Reykja-
vík Grapevine undanfarin
fjögur ár. Nokkrir af bestu
veitingastöðum landsins
bjóða upp á ís frá Skúbb og
hann fæst einnig í matvöru-
verslunum.
Ísgerðin Skúbb hefur heldur betur
slegið í gegn síðan hún var stofnuð
árið 2017 og hefur meðal annars
verið valin af Reykjavík Grape-
vine undanfarin fjögur ár sem sú
ísgerð hérlendis sem býður upp á
besta ísinn.
Hugmyndin á bak við Skúbb
ísgerð hefur alltaf verið að gera
handgerðan ís frá grunni með
bestu vörum sem völ er á og velja
alltaf lífrænt og aukaefnalaust ef
hægt er, segir matreiðslumeistar-
inn Einar Þór Ingólfsson hjá Skúbb,
sem gjarnan er kallaður best
geymda leyndarmál ísgerðarinnar
enda maðurinn á bak við ísinn
sem Skúbb framleiðir. „Mér finnst
skemmtilegast að þróa nýjar ísteg-
undir. Við höfum þróað hundruð
bragðtegunda og við erum alltaf
með nýjar tegundir í ísborðinu.
Svo þróum við líka ístegundir fyrir
veitingastaði enda færðu Skúbb
ís á mörgum af flottustu veitinga-
stöðum landsins,“ segir Einar.
Skúbb ísinn fæst auk þess í
verslunum Nettó, Hagkaupa, Mela-
búðinni, Iceland, Krambúðum,
Skagfirðingabúð, Frú Laugu og
Heimkaupum.
Lífræn mjólk notuð
Skúbb notar eingöngu lífræna
mjólk frá Biobú í ísana sína,
bætir Einar við. „Úrvalið okkar
samanstendur af handgerðum
ís, íslokum, ísrefum, íssósum,
ístertum, smákökum, toppings og
fleira. Við notum alvöru hráefni
við gerð íssins sem gerir bragðið
ósvikið, ferskt og engu líkt. Enda
hefur ísinn slegið í gegn hjá lands-
mönnum.“
Skúbb hefur líka alla tíð lagt
áherslu á að bjóða upp á gott vegan
úrval og hefur þróað fjölmargar
tegundir af vegan ís. Einnig má
bæta við að kökudeigið og Skúbb
snickers er vegan líka.
Handgerður frá grunni
Einar segir það vera mikinn
heiður fyrir Skúbb að hafa verið
valinn besti ísinn fjögur ár í röð
af Reykjavík Grapevine. „Ísinn er
handgerður frá grunni með sér-
völdum hráefnum, lífrænni mjólk,
lífrænum hrásykri og lífrænum
bindiefnum og án allra aukaefna
sem skilar sér í bragðinu til við-
skiptavina okkar. Það er því sannur
heiður að fá þá viðurkenningu að
ísinn okkar sé sá besti á Íslandi og
það fjögur ár í röð. Við elskum að
búa til ísa og prófa okkur áfram í
nýjum bragðtegundum. Utan okkar
frábæru ísa bjóðum við líka upp
á dásamlegar ístertur, til dæmis
saltkaramell-ístertu, vegan kókos-,
ástaraldin- og mangóístertu og
Ísinn sem hefur
slegið í gegn
Saltkaramellu-ístertan er ein af ljúffengu ístertunum
sem Skúbb býður upp á og hafa notið mikilla vinsælda.
Skúbb þróar stöðugt nýjar ístegundir og því lítur ísborðið aldrei eins út.
Ísveislur frá Skúbb slá alltaf í gegn.
Íssósurnar frá Skúbb eru dásamlegar með ísnum.
MYNDIR/AÐSENDAR
Ísvagninn frá Skúbb slær alls staðar í gegn.
Einar Þór
Ingólfsson, mat-
reiðslumeistari
hjá Skúbb
jólaístertuna vinsælu sem er með
ristuðum möndlum og karamellu-
súkkulaði.“
Ísvagninn slær í gegn
Skúbb býður einnig upp á ísveislur
sem eru fyrir stóra jafnt sem smáa
hópa. Ísveislurnar, sem jafnan
vekja mikla lukku, samanstanda af
nokkrum tegundum af ís, heima-
gerðu gotteríi og sósum, segir
Einar. „Þar að auki slær ísvagninn
hjá Skúbb alltaf í gegn en hann
hentar mjög vel fyrir alls kyns við-
burði eins og brúðkaup, árshátíðir,
bæjarhátíðir og fyrirtækjafögnuði.
Þá mætir starfsmaður Skúbb með
vagninn og heldur uppi fjörinu
með fjórum tegundum af ís og öllu
tilheyrandi. Ísvagninn er tilvalinn
fyrir hópa yfir 60 manns.“ n
Ísbúð Skúbb er á Laugarásvegi 1
í Reykjavík. Nánar á skubb.is.
Við notum alvöru
hráefni við gerð
íssins sem gerir bragðið
ósvikið, ferskt og engu
líkt. Enda hefur ísinn
slegið í gegn hjá lands-
mönnum.
Ísinn er
hand-
gerður frá
grunni
með sér-
völdum
hráefnum,
lífrænni
mjólk,
lífrænum
hrásykri
og líf-
rænum
bindi-
efnum og
án allra
aukaefna.
Ísdósirnar frá
Skúbb fást í
ýmsum mat-
vöruverslunum
um land allt.
kynningarblað 7ÞRIÐJUDAGUR 21. desember 2021 ÍS OG ÍSBÚÐIR