Fréttablaðið - 21.12.2021, Síða 28
Allur ís Ísgerðar-
innar er hand-
gerður og því getur hún
boðið upp á ís með
Þrista-molum og kókos-
bollum eða öðru sælgæti.
Vinsælar bragð-
tegundir eru
Þristurinn og Kókos-
bolluísinn sem eru með
vinsælu sælgæti frá
Kólus, eða Sambó, eins
og nöfnin gefa til
kynna.
Mikil gróska hefur orðið í
ísgerð og ísgerðarmenningu
hér á landi á undanförnum
árum.
Nýjar ísbúðir spretta upp og í
frystiborðum stórmarkaða sjást
orðið nýjar og framandi ísteg-
undir, sumar hverjar íslenskar.
Ísgerðin á Akureyri er með fjölda
bragðtegunda og selur einnig sex
tegundir í stórmörkuðum um
land allt.
Eigandi og framkvæmdastjóri
Ísgerðarinnar er Ásdís Elva Rögn-
valdsdóttir. „Við erum tíu ára í
ár, opnuðum 2011. Þá hétum við
Jóger og seldum jógúrtís. Við
vorum nú ekki alveg á leiðinni
í rekstur á ísbúð en einhvern
veginn þróaðist lífið í þessa átt.
Við hjónin vorum bæði í allt
öðrum verkefnum. Ég var að
vinna í Reykjavík og ekkert að spá
í neinu svona.
Sköpuðu sér verkefni
Börnunum okkar leið hins vegar
ekki nógu vel í Reykjavík svo við
drifum okkur bara norður og
fórum í að búa okkur til verkefni.
Við erum bæði að norðan og þó að
okkur hafi liðið vel fyrir sunnan
skiptir öllu máli að börnunum líði
vel. Við fórum norður áður en við
vorum búin að finna okkur vinnu
og þetta var ekkert einfalt. Þetta
var stuttu eftir hrun og tímarnir
skrítnir.“
Sem fyrr segir byrjaði ævin-
týrið á því að Ásdís fór að selja
jógúrtís. „Það var svo árið 2014 að
við breyttum nafninu í Ísgerðin
og komum með ísblöndu sem við
þróuðum sjálf. Við blöndum ísinn
okkar alveg frá grunni, handhrær-
um og allt hráefni er ferskt. Fyrir
vikið er ekki þetta þykka kremaða
bragð sem er af íblöndunarefnum
sem oft eru sett í hjá stærri verk-
smiðjum. Fitan í okkar ís er úr
rjómanum en ekki olíum eða feiti
sem stundum er notað við stærri
verksmiðjuframleiðslu. Okkur
finnst mikilvægt að blanda frá
grunni og nota eingöngu ferskt og
gott hráefni.“
Aðeins það besta
Ísgerðin notar ítölsk bragðefni
frá litlu fjölskyldufyrirtæki á
Ítalíu. „Þau eru vissulega dýr, en
of boðslega góð. Góð bragðefni
eru mikilvæg við ísgerð. Þarna
koma alveg jarðarberjakjarnarnir
með bragðefninu. Við þurfum til
dæmis að sigta hindberjakjarnana
frá vegna þess að þeir mega ekki
fara í vélarnar.
Við framleiðum ísinn sem fer í
pakkningar og kúluís og mjúkís-
inn sem fer á vélarnar. Fram-
leiðsluferlið er eins en uppskriftin
aðeins önnur eftir því hvort um
mjúkís eða ítalskan er að ræða.“
Ísgerðin selur ísinn í ísbúðinni
á Akureyri en pakkar einnig í
hálfs lítra umbúðir ís sem seldur
er í Hagkaupum, Nettó, Iceland,
Krambúðinni og Kjörbúðinni um
land allt. Vinsælar bragðtegundir
eru Þristurinn og Kókosbolluísinn
sem eru með vinsælu sælgæti frá
Kólus, eða Sambó, eins og nöfnin
gefa til kynna. „Okkur fannst
mjög spennandi að nota íslenskt
sælgæti og Þristurinn er búinn að
vera vinsælasta sælgætið í mörg
ár,“ segir Ásdís.
Þristurinn er handhakkaður til
að fá hann í nákvæmlega þeirri
stærð sem hentar og bitar af sæl-
gætinu eru í ísnum. „Þetta er sko
alveg ekta handavinna. Það er
nákvæmnisverk að hafa stærðina
á bitunum rétta vegna þess að ef
þeir eru of stórir verða bitarnir of
harðir þegar þeir eru kaldir og ef
þeir eru of litlir finnur fólk ekki
nógu vel fyrir sælgætinu.
Við erum ekki mikið í að nota
venjulega vanillu í okkar ís. Það er
of einfalt fyrir minn smekk. Van-
illuísinn okkar er til dæmis ekki
bara með vanillubragði heldur
líka öðru bragði sem styður við
og ýtir undir gott vanillubragð. Í
öllum okkar ís notum við f leiri en
eina bragðtegund til að kalla fram
djúpt og margslungið bragð. Ég
hef það fyrir reglu að mér verður
að þykja ísinn góður til að við
framleiðum hann,“ segir Ásdís.
Sykurlausi ísinn frá Ísgerðinni
kemur sterkur inn í janúar
Ásdís segist ekki hafa tölu á þeim
bragðtegundum sem eru í boði
í ísbúðinni en sex tegundir eru
í sölu úti um allt land. „Það er
Þristurinn, Kókosís með kókos-
bollum, Myntuís sem er blanda af
myntu og súkkulaði, Kökudeig og
svo er það Þrefalt súkkulaði sem er
alveg löðrandi í súkkulaði. Síðan
erum við með sykurlausan ís sem
heitir Macros, alveg æðislegur, og
hentar vel þeim sem telja kaloríur
ofan í sig.“
Macros-ísinn er mjög vinsæll
en ekki samt í desember. Fólk
er greinilega ekki mikið að telja
kaloríurnar í jólamánuðinum.
Hann kemur svo sterkur inn í
janúar.
„Í desember erum við með hátíð-
arís. Það er alltaf sami ísinn, sem
mér finnst alveg ofboðslega bragð-
góður. Þetta er blanda af súkkulaði
og karamellu og svo nota ég ama-
retto-bragðefni í hann til að fá smá
marsipan-keim. Hátíðarísinn er
framleiddur í hálfs lítra pakkn-
ingar og líka sem ístertur og við
höfum ekki undan að framleiða
hann, svo vinsæll er hann. Fram til
þessa hefur hátíðarísinn einungis
verið fáanlegur í desember en nú
verður einnig boðið upp á hann
um páskana vegna ítrekaðra óska
um það.“
Ísframleiðslan er í sama hús-
næði og ísbúðin. „Við erum lítið
fyrirtæki. Við erum þrjár sem
vinnum á daginn og svo eru skóla-
krakkar sem vinna á kvöldin,
einn eða tveir. Þetta fjórfaldast
alveg á sumrin. Ég hef verið spurð
hvort ég ætli ekki að fara að opna
í Reykjavík en það er dálítið stökk
í umsvifum og utanumhaldi að
gera það og við höfum ekki farið út
í það enn þá. Við ætlum áfram að
einbeita okkur að því að vera lítið
fjölskyldufyrirtæki á Akureyri.
Ef fólk vill fá Ísgerðarís brakandi
ferskan verður það að koma til
Akureyrar.“
Hröð og góð afgreiðsla
Ísgerðarísinn hefur ákveðna
sérstöðu vegna þess að erfitt
er að setja sælgætisbita í verk-
smiðjuframleiddan ís. Allur ís
Ísgerðarinnar er handgerður og
því getur hún boðið upp á ís með
Þrista-molum og kókosbollum eða
öðru sælgæti.
En er ekki Brynju-ísinn helsta
samkeppnin við Ísgerðina? „Nei,
alls ekki. Hann er bara samkeppni
eins og aðrar tegundir og mér
finnst frábært að fólk geti valið
úr mörgum framleiðendum og
mörgum tegundum.“
Ísgerðin er með sjálfsafgreiðslu
í ísbúðinni og fyrir vikið gengur
afgreiðslan mjög hratt fyrir sig,
jafnvel þegar bongó-blíða er úti.
Fólk fær sér box, velur úr sex
bragðtegundum og ferska ávexti,
eða sælgæti, vigtar, borgar og fer
svo út í blíðuna með sinn ís. „Við
erum auðvitað líka með afgreiðslu
þar sem hægt er að fá bragðaref, ís
í brauði og svo framvegis en einnig
erum við með salt, samlokur og
ýmislegt fleira. En við erum eina
ísbúðin á Akureyri sem er með
sjálfsafgreiðslu. Krökkum finnst
það voða spennandi. Við erum til
dæmis enga stund að afgreiða heilu
hópana á N1-mótinu og öðrum
fjölmennum íþróttamótum sem
haldin eru á Akureyri,“ segir Ásdís
Elva Rögnvaldsdóttir og vindur sér
í að blanda hátíðarísinn í ístertur
sem beðið er eftir. n
Ísgerðin á Akureyri annar varla eftirspurn
Ásdís Elva Rögnvaldsdóttir er eigandi og framkvæmdastjóri Ísgerðarinnar á Akureyri. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Hátíðarísinn er svo vinsæll í desember að Ísgerðin annar
vart eftirspurn enda er hann algert lostæti.
Ísinn frá Ísgerðinni er seldur í stórmörkuðum um allt
land. Hægt er að velja um nokkrar tegundir af ísnum.
8 kynningarblað 21. desember 2021 ÞRIÐJUDAGURÍS OG ÍSBÚÐIR