Fréttablaðið - 21.12.2021, Qupperneq 30
Það eru enn nokkrir dagar í
jólin og tími til að baka smá-
kökur áður fyrir þau sem
hafa áhuga.
sandragudrun@frettabladid.is
Nú eru flestir skólar komnir
í jólafrí og margir búnir með
jólaundirbúninginn að mestu og
þá er tilvalið að hlusta á jólalög
og eiga notalega stund saman við
bakstur.
Haframjöls- og rúsínukökur
Þessar haframjöls- og rúsínukökur
eru mjög góðar með kaffinu en
það er hægt að dýfa þeim í smá
bráðið suðusúkkulaði eftir að þær
hafa kólnað til að gera þær extra
góðar.
4 bollar haframjöl
3 bollar hveiti
4 bollar sykur
2 bollar rúsínur
400 g smjörlíki
2 tsk. matarsódi
2 egg
Haframjöl, rúsínur og smjörlíki er
hakkað saman í matvinnsluvél.
Restinni er síðan blandað
saman við og deigið hnoðað vel.
Því næst er deiginu rúllað í
lengjur sem eru skornar í sneiðar
og settar á bökunarplötu.
Kökurnar eru bakaðar við
170°-190°C í 5-12 mínútur eða þar
til þær eru orðnar fallega brúnar.
Hitastigið fer eftir ofni, það þarf
lægri hita í blástursofn.
Sænskar karamellusnittur
– stökkar en samt örlítið
mjúkar í miðjunni
Þetta eru sænskar smákökur sem
eru stökkar að utan en seigar í
miðjunni, ótrúlega einfaldar að
gera en alveg hrikalega góðar á
bragðið. Uppskriftin dugar í 50-60
kökur.
200 g mjúkt smjör
2,25 dl sykur
4,5 dl hveiti
2 msk. síróp
2 tsk. matarsódi
2 tsk. vanillusykur
(má líka nota vanilludropa)
2 tsk. mulið engifer
(í góðu lagi að sleppa)
Stillið ofninn á 180°C. Blandið
öllum hráefnum saman í skál
þannig að þau verði að þéttu deigi.
Ef smjörið er ekki nógu mjúkt er
sniðugt að hnoða þetta í hönd-
unum til að þetta blandist vel.
Gerið 5-6 rúllur úr deiginu og setjið
á ofnplötu með bökunarpappír.
Hafið ágætt bil á milli rúllanna
því þær fletjast út við baksturinn.
Þrýstið smá á þær svo að þær fletjist
út. Gerið rendur á þær með gaffli til
að fá fallegt munstur.
Bakið í ofni í 12-15 mínútur, allt
eftir því hversu stökkar þær eiga að
vera. Ef þær eru bakaðar stutt verða
þær mjúkar og seigar, en ef þær eru
bakaðar lengi verða þær stökkar.
Þegar lengjurnar eru komnar úr
ofninum eru þær skornar á ská í
sirka 2 sentimetra breiðar sneiðar.
Að lokum eru kökurnar látnar
kólna áður en þær eru borðaðar
af bestu lyst. Þessar smákökur
geymast best í lokuðu íláti. n
Girnilegar jólasmákökur
Haframjöls- og rúsínukökurnar eru sérstaklega góðar með kaffibolla. Það er einfalt að búa til þessar sérlega ljúffengu sænsku karamellusnittur.
OPIÐ TIL 22 Í KVÖLD
Verslun | Snorrabraut 56, 105 Reykjavík | 588 0488 | Vefverslun á Feldur.is
6 kynningarblað A L LT 21. desember 2021 ÞRIÐJUDAGUR