Fréttablaðið - 21.12.2021, Page 42

Fréttablaðið - 21.12.2021, Page 42
Kjartan Arnórsson var aðeins tólf ára þegar hann gat sér fyrst gott orð sem mynda- söguhöfundur og var sextán þegar myndasöguserían hans um Svínharð Smásál hóf göngu sína í Þjóðviljanum sáluga. Þær tæplega 700 ræmur komu nýlega í leitirnar og eru komnar út á bók. toti@frettabladid.is Þótt Kjartan Arnórsson, Kjarnó, hafi lengi búið í Bandaríkjunum er hann enn þekkt stærð í íslenska mynda- sögubransanum enda ákveðinn frumkvöðull. Hann var ekki nema fjórtán ára, 1979, þegar Fjölvi gaf út hans fyrstu myndasögubók, Pétur og vélmennið: Vísindaráðstefnan sem er fyrsta íslenska myndasögu- bókin þar sem ein saga fyllir heila bók. Tveimur árum síðar fylgdi hann ævintýrum Péturs og vélmennisins eftir með bókinni Frosinn fjár- sjóður. Fyrstu myndasögur Kjartans birtust hins vegar í Þjóðviljanum þegar hann var tólf ára og þar átti Svínharður Smásál fastan samastað á myndasögusíðu blaðsins um árabil á fyrri hluta níunda áratugarins. „Athyglin var næstum engin, ef ég man rétt,“ segir Kjartan þegar hann er spurður hvort frægðarljóminn hafi verið mikill á sínum tíma. Ekki síst í ljósi þess að hann var stundum gestur í Stundinni okkar í Sjónvarp- inu þar sem vinsæl aukapersóna úr Svínharði Smásál, Kafteinn Ísland, fékk síðar fimm mínútna þætti í sjónvarpsþættinum. „En sem leið til að afla vasapen- inga fyrir skegglausan táning, þá þótti mér þetta frábært!“ Gamaldags klíkuskapur Þegar Kjarnó er spurður hvort hann hafi horft til einhverra myndasögu- fyrirmynda í byrjun stendur ekki á svari sem kemur ekki mjög á óvart þar sem hér var fátt annað í boði á gráum árum hafta og leiðinda en reytingur af hasarblöðum frá Mar- vel og D.C. Comics að ógleymdum Ástríki, Tinna, Lukku-Láka og fleiri evrópskum kempum. „Allt þetta! Ekkert snobb hér. Ég var eins og besta ruslatunna, tók við öllu.“ Þjóðviljinn var, eins og ellismellir sjálfsagt muna, málgagn Alþýðu- bandalagsins og því lengst vinstra megin við miðju íslenskra stjórn- mála. Kjartan segist þó aðspurður ekki hafa verið pólitískt ungmenni. „Nei, engan veginn. Ég hafði enga pólitík. Svínharður birtist í Þjóð- viljanum vegna þess að ég var með innanbúðartengsl. Klíkuskapur var algengur í dentíð,“ segir Kjartan sem er sonur Arnórs heitins Hannibals- sonar, prófessors í heimspeki, og stóri bróðir Þóru, ritstjóra Kveiks. Lítið hefur til Svínharðs spurst síðan hann hvarf af síðum Þjóð- viljans þangað til Kjartan kom alls konar dóti í geymslu hjá Jean Anto- ine Posocco, myndasöguútgefanda hjá Froski. Núðlur með smjöri „Tilviljun réð því eiginlega að ég fékk alla strimlana hans, eins og þeir lögðu sig, í geymslu og mér brá þegar ég sá hversu staflinn af Svínharði var þykkur,“ segir Jean sem furðaði sig á því að engum hefði dottið í hug að „dusta rykið af þessum frábæru teiknimyndasögum og gera þeim hærra undir höfði.“ Hann ákvað því sjálfur að láta slag standa eftir að hafa skoðað myndirnar oft og lengi. „Það var ekki hægt að sitja á gullkistu og láta eins og þetta væri gamalt dót sem enginn vissi lengur að væri til eða vildi ekki lengur sjá. Og þegar ég spurði Kjartan hvort það væri ekki sniðugt að gefa Svín- harð út í bókarformi fannst honum það bara í lagi. Svaraði eins og hann hafi verið spurður um hvort hann vildi fá núðlur í smjöri í matinn.“ Klám í grautinn Kjartan flutti til Bandaríkjanna fyrir margt löngu þar sem hann elur enn manninn. En hvað varð til þess að þú fluttir út og hvað hefurðu verið að sýsla þar ytra? „Elta stelpur!“ svarar Kjarnó að bragði og bætir við: „En í hjáverkum teiknaði ég heilmikið. Ef einhver vill sjá hvað ég hef verið að gera upp á síðkastið kíkið þá á Patreon.com/ Karno/overview,“ segir Kjarnó áður en hann vindur sér í upptalningu á því helsta sem hann hefur verið að teikna í seinni tíð: „The Mink, ævintýri galdranorn- ar. Herman Orca, ævintýri rottu sem vill ekki láta éta sig og svo spannst löggusaga út úr þeirri sögu, Meat on her Bones, sem má líka sjá á Patreon. Og svo er klám á sunnudögum!“ Já, þú hefur líka eitthvað fengist við að teikna frekar djarfar sögur. Hvernig kom það til? „Ég var bláfátækur og hjólgraður táningur. En þar sem ég kunni að teikna, þá gat ég teiknað eigið klám. Datt svo í hug að ég gæti heimtað peninga af fólki til að fá að lesa það líka. Hrein frekja, en það virkaði!“ Svínharður snýr aftur Kjartan segist ekki hafa hugsað mikið til Svínharðs frá því gengið var frá strimlunum ofan í kassa. „Ég reyndi einu sinni að gera enska útgáfu af Svínharði, en það fór hvergi. Ég er mjög þakklátur Jean fyrir framtakið.“ Jean gekk síðan í að skanna mynd- irnar og raða þeim í töluröð. „Mikið verk var unnið og útkoman er falleg, skemmtileg bók með tilfinningalegt gildi sem á eftir að kalla fram gamlar minningar og bros hjá mörgum. Það er engin spurning,“ segir Jean. Kjartan gerði stuttan stans á Íslandi til þess að fylgja bókinni úr hlaði með áritun í Nexus á föstu- daginn var og hitti þá fyrir gamla aðdáendur Svínharðs. „Viðbrögðin voru mjög jákvæð. Ótrúlegt hvað margir mundu eftir þessari gömlu runu af aulabrönd- urum!“ segir Kjarnó sem útilokar ekki að í kjölfarið muni fleiri gamlir kunningjar, til dæmis Kafteinn Ísland og Pétur og vélmennið, skjóta upp rykugum kollunum. „Ég er búinn að láta skanna inn alla gömlu Kafteins Íslands-teikn- ingarnar úr sjónvarpsþáttunum. Nú vantar bara tímann til að safna þessu í bækur.“ n Kjarnó teiknaði klámið sitt sjálfur Kjartani Arnórssyni og Svínharði var vel tekið í Nexus þótt yngri nör- darnir þar hafi hvorki þekkt á þeim haus né sporð. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI Fimmaurabrandarar Svínharðs Smásálar þykja eldast merkilega vel. toti@frettabladid.is Engilbert Arnar stofnandi Face­ book­ hópsins Costco Gleði. „Það er alltaf eitthvað nýtt að koma en þetta eru vörurnar sem fólk hefur verið að spyrja mig hvað mest um,“ segir Engilbert Arnar, stofnandi Facebook- hópsins Costco Gleði. „Þetta eru þær vörur sem hafa komið aftur og aftur,“ segir Engil- bert en áréttar þó að allt sé þetta núna meira eða minna uppselt. 1. Gourmia Air Fryer „Airfryerinn er klárlega vinsælasta jólagjöfin þetta árið! Loftsteik- ingarpotturinn frá Gourmia með 360° Fry Force tækninni er vara sem mokselst,“ segir Engilbert. 2. Playstation 5 „Vinsæla leikjatölvan er Playstation 5 frá Sony,“ segir Engilbert og varla þarf að hafa miklu fleiri orð um sturlaða eftirspurn- ina eftir þessari vél sem er löngu búin að æra óstöðuga og flesta hina líka. 3. Agit-snjóþotubretti Agit-snjóþoturnar hafa runnið út að sögn Engilberts þrátt fyrir að rennslisgrundvöllurinn, sjálfur snjórinn, hafi verið af skornum skammti sunnan heiða. 4. The Comfy Originals „Þessi þægilegu teppi sem hægt er að klæða sig í hafa verið mjög vinsæl,“ segir Engilbert um vöruna sem hann telur óhætt að setja í fjórða sæti. 5. Squishmallows „Þetta eru bangsar sem hægt er að kreista. Þeir stærstu eru 24 tommur og þeir ruku út. Mjög vin- sæl jólagjöf. Þeir eru algjörir risar. Það komu fjögur bretti af þessum skrímslum og þau ruku út.“ n Costco-jólagjafir á gufusuðupunkti n Sérfræðingurinn KVIKMYNDIR Spider-Man: No Way Home Leikstjórn: Jon Watts Aðalhlutverk: Tom Holland, Zendaya, Benedict Cumberbatch Þórarinn Þórarinsson Loksins kom almennileg og smekk- lega ofhlaðin Marvel-mynd í tæka tíð til þess að lyfta þessu heldur þreytta veiruári á aðeins hressilegra plan. Samt er nú vissara að sveifla sér varlega til jarðar eftir þá tilfinninga- þrungnu og smekklega ofhlöðnu tveggja og hálfrar klukkustundar þeysireið sem Spider-Man: No Way Home blessunarlega er og styggja engar krumpaðar sálir elítista sem finna ofurhetjumyndum allt til foráttu með því að lýsa hana bestu mynd ársins. En skemmtilegust er hún. Tom Holland hefur aldrei verið betri sem Peter Parker, gelgjan ákafa sem sveif lar sér, sem hinn undraverði Köngulóarmaður, í frí- stundum og lumbrar á föntum og fúlmennum. Á milli þess sem hann gengur í stærri verkefni og bjargar heiminum. Sem er akkúrat það sem hann þarf að gera eftir að hinn marg- boðaði fjölheimur Marvel opnast nú fyrst fyrir alvöru í bíó og fjand- inn verður laus þegar ofurskúrkum eldri Spider-Man mynda opnast greiður aðgangur að þessum heimi. Þegar sótraftar á borð við Green Goblin, Doctor Octopus, Electro, The Lizard og Sandman hrúgast saman í einni og sömu myndinni er ekki von á góðu. Eða jú, að vísu, fyrir Marvel-aðdáendur og aðra réttþenkjandi áhorfendur þar sem við tekur heilmikil veisla þar sem borðin svigna undan gómsætu aðdáendadekri í mynd sem er full- komlega á pari við Infinity War og Endgame. Enda hefur verið haft á orðið að No Way Home sé Endgame Spider- Man bálksins og hún stendur undir því og gott betur. Myndin sækir enda ekki slagkraft sinn fyrst og fremst í geggjaðan hasar heldur er ofið á tilfinnngaleg djúpmið og mikið lagt í samtöl sem eru á köflum mjög svo lúmskt fyndin í meðvituðu meta-gríni Lóa að sjálfum sér. Ofureflið hér væri hvaða Marvel hetju sem er ofviða en Tom Hol- land er þó ekki alveg einn síns liðs þar sem hann er þrefaldur í roðinu með aðstoð forvera sinna, Tobey Maguire og Andrew Garfield. Sam- spil, samleikur og samræður þessa þrigga Köngulóarmanna eru algert nördagull sem geirneglir No Way Home sem eina allra, allra bestu Marvel-myndina. n NIÐURSTAÐA: Þetta er ekki flókið. No Way Home er geggjuð Marvel-mynd, besta Spider-Man myndin og bara sturlað góð skemmtun sem hreyfir við nörda- hjörtum. Drullisti því í bíó! Lesið samt fyrst lengri útgáfuna af bíó- dómnum á Fréttablaðið.is Nánar á frettabladid.is Þrefaldur gelgjuskammtur af vonum og æskufjöri Tom Holland toppar algerlega. 26 Lífið 21. desember 2021 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 21. desember 2021 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.