Fréttablaðið - 21.12.2021, Side 44
Metsala varð á Bleiku slaufu
Krabbameinsfélagsins. Alls
seldust 32.500 slaufur og 380
viðhafnarslaufur. Slaufan
tengist árlegu átaksverkefni
til stuðnings baráttunni gegn
krabbameinum hjá konum.
Hlín Reykdal þótti heiður að
fá að hanna slaufu ársins enda
stendur málefnið henni nærri.
ninarichter@frettabladid.is
Salan á Bleiku slaufu Krabba-
meinsfélagsins sló met í ár en ágóð-
inn rennur til fjölbreytts fræðslu-,
vísinda- og forvarnarstarfs félags-
ins. Slaufan var til sölu fyrri hluta
október í 300 verslunum um land
allt.
Hlín Reykdal hannaði slaufuna
að þessu sinni og gaf alla sína vinnu
við hönnun og framleiðslu hennar
og hefur afhent Krabbameinsfélag-
inu þær 3,6 milljónir króna sem sala
Sparislaufunnar 2021 skilaði.
Hönnuð fyrir allan aldur
Hlín segir að hún hafi í upphafi
ákveðið að gera hálsmen en ekki
nælu. „Ég vildi gera slaufu sem
myndi henta breiðum aldurshópi.
Eitthvað sem stelpurnar mínar
myndu ganga með og líka amma.“
Hlín segist í í samtali við Frétta-
blaðið sömuleiðis hafa ákveðið
strax að hafa slaufuna gyllta.
„Gull og bleikur eru svo fallegir
saman. Ég fór í slatta þróunarvinnu
með þessar slaufur á vinnustofunni
minni. Innblásturinn var út frá
þessu slagorði: Verum til,“ segir
Hlín sem heillaðist mjög af slag-
orðinu. „Verum til staðar, verum til
í dag. Mér fannst það smart pæling
og við tókum það með í hönnunar-
ferlið.
Ég vildi líka hanna slaufuna
þannig að eftir október væri til
dæmis hægt að taka slaufuna af, og
vera bara með skjöldinn með þessu
fallega slagorði, Verum til.“
Mikið og mikilvægt starf
„Það var mikill heiður fyrir mig að
fá þetta mikilvæga verkefni, af því
að Krabbameinsfélagið reiðir sig
aðeins á sölu og styrki af þessum
toga, en ekki á fjárframlög frá rík-
inu,“ segir skartgripahönnuðurinn.
„Þau eru að vinna þarna stórkost-
legt starf, fyrir bæði aðstandendur
og þá sem eru að glíma við krabba-
mein og líka eftirmeðferð. Ég vissi
ekki fyrr en núna hversu umfangs-
mikið starf þau vinna og það kom
mér á óvart,“ segir Hlín og bætir við
að samstarfið hafi verið sérstak-
lega ánægjulegt. „Það var
svo gaman að vinna með
félaginu, þetta er allt
svo magnað fólk.“
Málefnið stendur
Hlín nærri en faðir
hennar, myndlistar-
maðurinn Jón Reyk-
dal, lést úr krabba-
meini ár ið 2013.
„Maður hefur þannig
upplifað þennan sjúk-
dóm af eigin raun,“
segir hún. n
Hlín Reykdal þótti mikill heiður að hanna Bleiku slaufuna. MYND/DÓRA DÚNA
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Ég vissi ekki fyrr en
núna hversu umfangs-
mikið starf þau vinna
og það kom mér á
óvart.
odduraevar@frettabladid.is
Ný tíu laga plata með Grúski, Grúsk
II – Beneath it all, er komin út á Spot-
ify og á geisladisk. Á plötunni eru tíu
lög og textar eftir Einar Oddsson, en
hann segir að platan hafi upphaf-
lega átt að koma út f ljótlega eftir
útkomu fyrri plötu sveitarinnar, en
sú plata kom út fyrir tíu árum.
„Við gáfum út plötu fyrir tíu árum
og þessi plata er framhald og var svo
gott sem tilbúin f ljótlega eftir þá
fyrri. Hún átti því að koma út fyrr
en svo bara líður tíminn og áður en
maður vissi af voru þetta orðin tíu
ár,“ segir Einar. Hann er ánægður
með afraksturinn.
Grúsk er stúdíóhljómsveit sem
er mynduð í kringum lagasmíðar
Einars, þar sem hinir ýmsu tón-
listarmenn koma við sögu og andi
tónlistar áttunda áratugarins
svífur yfir vötnum. Upptökustjórn
á plötunni var í höndum Péturs
Hjaltested.
„Ég samdi megnið af þessum
lögum þegar ég var unglingur, svona
milli 1975 og 1980,“ segir Einar, en
textana segist hann hafa samið
síðar.
„Þetta er búið að vera mjög
skemmtilegt ferli og fínt að þetta er
nú loks komið fyrir sjónir almenn-
ings. þá er þetta ekki lengur bara
niðri í skúffu.“ n
Seint kemur Grúskari en kemur þó
Einar Oddsson tónlistargrúskari
fylgir Grúski eftir. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Metsala á Bleiku slaufunni
skilaði á fjórðu milljón
AFGREIÐSLUTÍMI TIL JÓLA
MÁN. - MIÐ. 20. - 22. DES. 11–19
FIM. 23. DES. 11–20
FÖS. 24. DES. 10–13
JÓLADAGUR 25. DES. LOKAÐ
2. Í JÓLUM 26. DES. LOKAÐ
MÁN. - FIM. 27. - 30. DES. 11–18
FÖS. - SUN. 31.DES. - 2. JAN. LOKAÐ
MÁN. 3. JAN. 11–18
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
VEFVERSLUN
www.betrabak.is
OPIN ALLAN
SÓLARHRINGINN
LÚXUS SLOPPAR
Nú frá 19.920 kr.
Fullt verð frá: 24.900 kr.
VERÖLD
HVÍLDAR
BETRA BAK – LEGGUR GRUNN AÐ GÓÐUM DEGI
Verð 9.900 kr.
www.betrabak.is
TEMPRAKON ERGOMAGIC
KODDI
Koddi með memory foam svampi
og innbyggðri hitastýringu.
Verð 26.900 kr.
21.520 kr. J Ó L AV E RÐ
STORMUR HEIL SUINNISKÓR
Með NÍU svæða nuddinnleggi nærðu slökun
og vellíðan sem dregur úr spennu og örvar
blóðflæði. Heilsuinniskórnir eru fallegir, hlýir
og einstaklega þægilegir.
TEMPRAKON ZONE SÆNG
Sæng með innbyggðri hitastýringu.
Fylling: Gæsadúnn og fjaðrir.
135x200 cm. Verð 59.900 kr.
47.920 kr. J Ó L AV E RÐ
JOOP RÚMFÖT
CORNFLOWER
140x200 cm. 100% egypsk
bómull. Verð: 25.900 kr.
20.720 kr. J Ó L AV E RÐ
ELEGANTE RÚMFÖT
BRILLIANT
140x200 cm. 100% egypsk
bómull. Verð: 28.900 kr.
23.120 kr. J Ó L AV E RÐ
A F S L ÁT T U R
20%
A F S L ÁT T U R
20%
A F S L ÁT T U R
20%
1
2
3
4
5
6
7
8
9
28 Lífið 21. desember 2021 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ