Fréttablaðið - 23.12.2021, Qupperneq 34
Elsku móðir mín, tengdamóðir,
amma og langamma,
Steinunn Steinarsdóttir
Boðagranda 2,
lést fimmtudaginn 16. desember.
Útförin fer fram í Seltjarnarneskirkju
þriðjudaginn 28. desember kl. 13.00.
Gestir vinsamlegast framvísi gildu hraðprófi.
Steinar Guðnason Jóhanna Runólfsdóttir
Guðni Steinarsson Hildur Margrét Nielsen
Ægir Steinarsson Ása Þórdís Ásgeirsdóttir
Ingibjörg Steinunn, Hugrún Anna og Elín Fanney
Okkar innilegustu þakkir fyrir
auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og útför ástkærs
eiginmanns, föður, tengdaföður,
afa og langafa,
Guðmundar Kjartans
Ottóssonar
Fjölskyldan þakkar starfsfólki hjúkrunarheimilisins
Grundar fyrir hlýja og góða umönnun og óskar öllum
gleðilegra jóla og gæfu í framtíðinni.
Guðríður Þorvalds Jónsdóttir
Ottó Guðmundsson Inga Jónsdóttir
Guðný Guðmundsdóttir Jóhannes Stefánsson
Lárus Guðmundsson María Jóhanna Sigurðardóttir
Örn Guðmundsson Ingunn Þorvarðardóttir
Sigurður Guðmundsson
afabörn og langafabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðrún Ingólfsdóttir
lést í Svíþjóð þriðjudaginn
23. nóvember.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Guðvarður Jakobsson
Sigurður Jakobsson
og fjölskyldur.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug vegna andláts elsku
eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Auðar Ólafsdóttur
ritara,
sem lést 11. nóvember og verður
jarðsett í dag, 23. desember. Sérstakar þakkir fær HERA
líknarheimaþjónusta Landspítalans og taugadeild
Landspítalans, fyrir aðhlynningu og vináttu.
Stefán Bjarnason
Ólafur Stefánsson Guðlaug Eiríksdóttir
Helga Stefánsdóttir Jóhann Ingi V. Magnússon
ömmubörn og langömmubörn.
Okkar ástkæri
Einar E. Sigurðsson
kjötiðnaðarmaður,
Hvassaleiti 22,
lést á hjúkrunarheimilinu Hömrum
13. desember sl. Útförin fer fram frá
Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn
28. desember kl. 13.00. Í ljósi aðstæðna munu aðeins
nánustu aðstandendur verða viðstaddir athöfnina.
Þorgrímur E. Sigurðsson
Ingvi Jón Einarsson
Berglind M. Njálsdóttir
Ásta V. Njálsdóttir
Anna V. Ólafsdóttir
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir, tengdafaðir, afi, langafi
og langalangafi,
Leifur Eiríksson
bifvélavirkjameistari,
Hlaðbrekku 19, Kópavogi,
lést föstudaginn 17. desember. Útför hans
fer fram frá Hjallakirkju þriðjudaginn 28. desember kl. 11.
Í ljósi aðstæðna munu einungis nánustu aðstandendur
verða viðstaddir, en athöfninni verður streymt og hægt að
nálgast streymið á www.promynd.is/leifur
Una Sigurðardóttir
Bára Leifsdóttir
Ásta Leifsdóttir
Sigurður Leifsson Hallfríður Ólafsdóttir
Eiríkur Leifsson
afabörn, langafabörn og langalangafabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ásta Sigríður Sigtryggsdóttir
Kópavogsbúi,
lést á líknardeildinni í Kópavogi,
mánudaginn 28. nóvember.
Útförin fer fram frá Kópavogskirkju
miðvikudaginn 29. desember kl. 15.00.
Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu geta einungis nánustu
aðstandendur verið viðstaddir. Streymt verður frá
útförinni á slóðinni https://streyma.is/streymi/
Eiríkur Þór Magnússon
Valgeir Bergmann og Sara Elíasdóttir
Linda Björg Magnúsdóttir
ömmubörn og langömmubörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát
og útför ástkærrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Guðmundu Jóhönnu
Dagbjartsdóttur
Sörlaskjóli 9.
Jóhanna Pétursdóttir Ingimar Þorkelsson
Magnús Pétursson Kristín Guðmundsdóttir
Ólöf Pétursdóttir Þorsteinn Njálsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Egill Skúli Ingibergsson
verkfræðingur,
lést þann 22. desember á líknardeild
LSH. Útförin auglýst síðar.
Kristjana Skúladóttir Þórólfur Óskarsson
Valgerður Skúladóttir Gunnar Helgi Sigurðsson
Inga Margret Skúladóttir Ólafur Björnsson
Davíð Skúlason Fanney Dóra Hrafnkelsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Pétur Jónsson
vörubílstjóri,
lést á Hjúkrunarheimilinu Hlíð á
Akureyri föstudaginn 17. desember sl.
Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju
þriðjudaginn 28. desember kl. 13.00.
Vegna samkomutakmarkana verða aðeins hans nánustu
viðstaddir athöfnina. Streymt verður frá athöfninni á
Facebook síðunni „Jarðarfarir í Akureyrarkirkju“.
Helga Eyjólfsdóttir
G. Ómar Pétursson Björk Pálmadóttir
Jón Pétursson Kolbrún Ævarsdóttir
afabörn og langafabörn.
Ástkær eiginmaður og vinur, pabbi
okkar, tengdapabbi og afi,
Hjörtur Ágúst Magnússon
húsasmíðameistari
og kennari,
lést þriðjudaginn 14. desember
síðastliðinn. Útförin fer fram frá
Langholtskirkju þriðjudaginn 28. desember kl. 13.00.
Gestir eru hjartanlega velkomnir, en eru beðnir um að
framvísa neikvæðu gildu Covid-prófi.
Streymt verður frá athöfninni á
https://livestream.com/luxor/jardarforhjartar
Hlekk á streymi má einnig nálgast á www.mbl.is/andlat
Sigurlín Jóna M. Sigurðardóttir
Inga Kolbrún Hjartardóttir Vilhjálmur Hallgrímsson
Sigurður Ágúst Hjartarson Ásdís Birta Gunnarsdóttir
afabörn.
Sóknarprestur Hallgrímskirkju
ver afmælisdeginum á Þorláks-
messu í að undirbúa aðfanga-
dagsmessu og kalkún fyrir fjöl-
skylduna.
arnartomas@frettabladid.is
„Ég er svolítill jólakall, eigandi afmæli
á Þorláksmessu,“ segir Sigurður Árni
Þórðarson, sóknarprestur í Hallgríms-
kirkju, sem fagnar 68 ára afmæli í dag.
„Ég er aðeins á undan Jesú, en svo kemur
að honum og ég tek þátt í skrallinu með
honum.“
Sigurður stýrir aðfangadagsmessu í
Hallgrímskirkju á morgun þangað sem
hann fer venjulega hjólandi.
„Það þarf aðeins að aðlaga sig þeim
lífsrytma og fjölskyldan tekur þátt í
því,“ segir hann. „Það þarf aðeins að
aðlaga eldamennskuna á heimilinu
við vinnu pabbans. Við eldum kalkún,
sem er ansi prestvinsamlegur matur, og
setjum hann af stað tiltölulega snemma
svo hann sé tilbúinn þegar við komum
úr kirkjunni.“
Himnesk upplifun
„Það er eins og með jarðskjálftana sem
skekja grunninn hjá okkur, þá skekur
Covid-tíminn tilfinningalíf margra,“
segir Sigurður Árni, um starfið á tímum
fjöldatakmarkana. „Það eru margir sem
vilja gjarnan komast í kirkju en eru
dálítið hræddir við það. Við verðum
með streymi á vefnum og ég heyri að það
verður fólk úti um allan heim sem mun
fylgjast með þar. Það finnst mörgum það
vera það himneskasta sem það getur
upplifað – að fá að vera í Hallgrímskirkju
og syngja sálmana, eða í það minnsta að
fylgjast með að heiman.“
Sigurður Árni segir að það sé að mörgu
leyti merkilegur tími runninn upp í
trúmálum Íslendinga. „Trúin skiptir æ
meira máli, en stofnanirnar æ minna
máli,“ segir hann. „Það er skemmtilegt,
verðugt og krefjandi verkefni að horfast í
augu við það.“ Þá segir Sigurður að í Hall-
grímskirkju sé fyrst og fremst verið að
reyna að mæta trúarþörfum fólks hvað-
anæva að. „Við þjónum aðeins öðruvísi
hlutverki en hverfis- og byggðarlags-
kirkjurnar, sem sinna aðallega nær-
umhverfinu,“ segir hann. „Við þjónum
nefnilega nærumhverfinu, fjærumhverf-
inu og heimsumhverfinu líka.“ n
Þorláksmessubarn eldar prestvænan jólamat
Sigurður
segir kalkún
vera prest-
vinsamlegan
jólamat.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 23. desember 2021 FIMMTUDAGUR