Fréttablaðið - 23.12.2021, Side 42

Fréttablaðið - 23.12.2021, Side 42
Ómar Ragnarsson segir sögu Sumargleðinnar vera söguna sem varð að skrifa. Og það hefur hann nú gert með bókinni Af einskærri sumar- gleði. Þar rekur hann sögu þessa sannkallaða stórveldis, sem þeir Raggi Bjarna stofn- uðu og ferðuðust um landið, með söng og gríni öll sumur frá 1971 til 1985. toti@frettabladid.is Ragnar Bjarnason og Ómar Ragn- arsson stofnuðu Sumargleðina fyrir hálfri öld, en hópurinn varð sannkallað stórveldi sem reis hæst undir lokin á fyrri hluta níunda áratugarins, enda voru, svo einhver séu nefnd, ekki ómerkari kempur með í för en bræðurnir Halli og Laddi, Diddú, eftirherman Karl Guðmundsson, leikararnir Bessi Bjarnason og Magnús Ólafsson, Þorgeir Ástvaldsson, Þuríður Sig- urðardóttir, að ógleymdum sjálfum Hemma Gunn. „Málið er að þegar ég byrjaði á þessari bók lá ég eftir mjög vont slys, þar sem ég beinbrotnaði og lemstraðist á sex stöðum, og gat ekkert gert annað en hugsa,“ segir Ómar, um bók sína Af einskærri sumargleði, þar sem hann rekur upphaf ferils síns sem skemmti- kraftar með sérstaka áherslu á árin með Sumargleðinni og færir í letur söguna sem hann segir að hafi þurft að skrifa. „Það hefur aldrei verið fjallað um þennan helming íslenskrar menn- ingar, það sem elítan hefur kallað lágmenningu, en samkvæmt þeirra skilgreiningu er Mozart náttúr- lega bara lágkúrulegur þegar hann semur Tumi fer á fætur. Það bara gengur ekki, sko,“ segir Ómar. Skilið við Sjálfstæðisflokkinn „Upphaflega var ætlunin hjá þeim í Forlaginu að einhver skrifaði sögu Sumargleðinnar einnar, en þeir áttuðu sig bara ekki á því að þegar Sumargleðin var stofnuð var það bara breyting á nafni. Vegna þess að það var sama áhöfn sem sá um tveggja tíma skemmtun og dansleik á eftir eins og hafði verið hjá Sjálf- stæðisflokknum 1969 og 1971. Það var bara hljómsveit Ragnars Bjarnasonar og skemmtikrafturinn Ómar og búið. Við Ragnar stofnuð- um því Sumargleðina og fórum frá flokknum, en breyttum engu öðru. Við losnuðum þó við mikið ónæði sem var farið að vera á héraðsmót- unum,“ segir Ómar og bætir við að mótin hafi verið orðin full pólitísk og straumar fólks inn og út hafi ráðist af því hvort ræðumaður væri á staðnum. Ofboðsleg heimskupör Samgöngu- og framfarasaga þjóðar- innar fléttast óhjákvæmilega saman við sögu Ómars og Sumargleðinn- ar, enda hvíldi útrás reykvískra skemmtikrafta ekki síst á bættum vegum og betri ökutækjum. „Einn kaf linn heitir Hættuleg blanda: Jeppi – flugvél – hraðbátur,“ segir Ómar, um 15. kafla bókarinnar þar sem hann rifjar meðal annars upp eina af sínum ótal svaðilförum. „Ég þurfti að skemmta á sama tíma á Akranesi og í Reykjavík. Það eru engin Hvalfjarðargöng og malar- vegur á milli og úr því verður svo ótrúleg saga að menn hafa sagt við mig að jafnvel þótt ég væri rithöf- undur og skáld, þá myndi ég ekki voga mér að skrifa svona sögu,“ segir Ómar og hlær sínum einstaka hlátri. „Margt af þessu eru bara ofboðs- leg heimskupör mín. Eins og að láta mér detta í hug að það væri hægt að skemmta bæði á Akranesi og Reykjavík á sama klukkutím- anum. Það var nett brjálað,“ heldur Ómar áfram og bendir á að margar sögurnar af ótrúlegum svaðilförum varpi ljósi á „það hvað þessi þjóð þráði sumarið svakalega. Þetta er eina þjóðin í heiminum sem er með sumardaginn fyrsta sem hátíðis- dag.“ Hjónabandsmarkaðurinn Þótt Ómar sé annálaður límheili og sagnabrunnur segist hann aðspurð- ur óhjákvæmilega hafa þurft að leggjast í umtalsverða heimildar- vinnu við ritun þessarar sögu, sem hann þekkir þó manna best. „Þetta var ekkert ómerkilegt,“ segir Ómar um Sumargleðina, hér- aðsmótin og sveitaböllin. „Þetta var stærsti hjónabandsmarkaður lands- ins,“ segir Ómar hlæjandi. „Fletirnir eru svo margir. Á einu ballinu rann sviti ballgesta í taumum niður veggi og glugga á yfirfullum sal sam- komuhússins. Það er bara satt og svo mikill sviti og margir voru það blautir þegar þeir komu inn, að úr þessu varð bara gufubað. Það var ekki hægt að taka myndir eða neitt. Þetta er náttúrlega í nokkrum textum eins og bara Halló, mamma, halló, pabbi. Það lag er náttúrlega bara lýsing á andrúmsloftinu í kringum sveitaböllin og í raun og veru ekkert annað. Þótt það yrði svona vinsælt sem sönglag.“ Margt samferðafólk Sumargleð- innar hefur kvatt þennan heim og aðspurður segir Ómar vinnuna við bókina vissulega hafa vakið ljúfar minningar og söknuð. „Jú, jú, jú, sem hvatti mig til þess að leggja miklu meiri vinnu í þetta heldur en ég ætlaði mér, bara til þess að sýna þessu fólki þá virðingu sem það átti skilið og tilgreina dæmi um þær fórnir sem þau færðu.“ Áfengisbann Ragga Bjarna Ómar rekur, meðal margs annars, áfengisbann, sem Raggi Bjarna setti á Sumargleðina. „Áfengisbannið á Sumargleðinni var tímamótaverkn- aður í íslenskri menningarsögu, vegna þess að það hafði enginn sam- bærilegur hópur verið með svona.“ Bannið var þó í sjálfu sér einfalt. „Bara þegar komið var um borð í rútuna í Reykjavík, eða hvar sem var, þá byrjaði áfengisbann sem var ekki lokið fyrr en menn komu heim til sín. Þeir sem þurftu að vera túramenn og dettíða vikulega, þeir gerðu það bara á mánudögum og þriðjudögum. Eða þriðjudögum og miðvikudögum. Þetta gerði Ragnar,“ segir Ómar og upplýsir að það hafi ekki verið fyrr en eftir að hann skrifaði þessa bók að hann gerði sér grein fyrir „að Ragnar var miklu, miklu stærri faktor í íslenskri menningu en maður áttaði sig á.“ n Á einu ballinu rann sviti ballgesta í taum- um niður veggi og glugga á yfirfullum sal samkomuhússins. Ómar Ragnars- son Bíó Spencer Spencer hefur hlotið mikið lof. Atburðarásin snýst um jóladaga sem Díana prinsessa ver í Sand- ringhamhöll með konungsfjöl- skyldunni. Í myndinni tekst einstaklega vel að skapa andrúmsloft sem er þrúgað af hefðum og þar er ekki rými fyrir frjálsan anda eins og Díönu. Það lýsir hugmyndaríki að láta vofu Önnu Boleyn, hinnar ógæfusömu eiginkonu Hinriks VIII, tala til Díönu. Samband Díönu við aðstoðarkonu sína, sem Sally Hawkins leikur, fær svo skemmti- legan snúning undir lokin. Kristin Stewart er hreint og beint stórkostleg sem Díana og á skilið að fá Óskarinn. Gríðarlega vel gerð mynd en um leið mjög þunglyndisleg og einmitt þess vegna verður frelsunin undir lokin svo gleðileg og velkomin. n n Allra best Helgi Jónsson og Anna Margrét Marinósdóttir eru höfundar Fagurt galaði fuglinn sá, barna- bókarinnar sem er rækilega að slá í gegn þetta árið. Jón Baldur Hlíðberg myndskreytir af sinni alkunnu snilld. Í bókinni kynnist lesandinn alls konar fuglum, bæði stórum og smáum, og getur síðan hlustað á hljóðin sem hver um sig gefur frá sér. Textinn er fróðlegur en um leið stórskemmtilegur því þar er húmorinn aldrei fjarri. Ekki er skrýtið að slegist sé um bókina þessi jólin. Þetta er einfaldlega bók sem öll börn verða að eignast. n  Bókin Fagurt galaði fuglinn sá  odduraevar@frettabladid.is Lífskúnstnerinn Edda S. Jónas- dóttir segist lengi hafa ætlað að taka saman allar sínar uppáhalds- uppskriftir, eða frá því hún fór að búa fyrir um 45 árum. Hún hefur nú loksins látið slag standa, með bókinni sinni Eftirlætisréttir Eddu. „Markmiðið var að prenta út allar uppskriftir sem ég átti í tölv- unni og hefta saman fyrir vinkonur mínar í Edinborgarklúbbnum, þar sem sumar þeirra hafa minnst á það við mig að þær vildu gjarnan fá uppskriftirnar mínar útprent- aðar. Það sem upphaf lega átti að vera hefti er orðið að þessari fal- legu bók.“ Edda hefur komið víða við á ævi sinni og réttirnir fjölbreyttir eftir því. Pabbi hennar var mikill heims- borgari og bauð ítrekað erlendum gestum heim í mat til fjölskyld- unnar. „Mamma var mjög veisluglöð kona, þannig að þetta gekk upp hjá pabba. Elsku mamma mátti líka fá heilt handboltalið í mat þegar ég var ellefu eða tólf ára gömul og æfði handbolta í Bústaðahverfinu. Þá kom handboltalið frá Færeyjum í heimsókn og fjölskyldur í hverfinu voru beðnar um að bjóða einum eða tveimur úr liðinu í mat. Það hentaði mér ekki, ég gat ekki valið hverjum ég ætti að bjóða og bauð því öllu liðinu og mamma steikti fisk ofan í alla og pönnukökur í eftirrétt og fannst þetta ekkert til- tökumál.“ Í skiptinámi í Seattle í Banda- ríkjunum vaknaði loks matar- gerðaráhugi Eddu fyrir alvöru. „Mér fannst allt sem var á borðum í Bandaríkjunum svo nýtt og spenn- andi,“ útskýrir Edda. Húsmóðirin á heimilinu í Seattle, Wanda Morris, gaf henni hennar fyrstu matreiðslu- bók, kennda við Betty Crocker. „Eftir ársdvöl í Seattle rétti hún mér stóra og mikla bók, matreiðslu- bók Betty Crocker. Ég var á leið í fimm vikna rútuferðalag þvert yfir Bandaríkin áður en haldið væri heim til Íslands. Nú voru góð ráð dýr, ferðataskan mín full, þannig að ég tók bókina með mér inn í rútuna og hóf lesturinn. Rútan brunaði af stað til næsta ríkis og ég var upptekin við að lesa uppskriftir, nýja áhugamálið mitt, og sá mun minna af landslaginu heldur en til stóð!“ n Betty Crocker var áhrifavaldur í matarlífi Eddu Edda fékk góðvinkonu sína, Hlíf Unu Bárudóttur, til þess að myndskreyta upp- skriftabókina, sem hún kennir við eftirlætisrétti sína. MYND/HLÍF UNA BÁRUDÓTTIR Hættulegar sumargleðiblöndur Ómars Sumargleðin: Magnús Ólafsson, Þorgeir Ástvaldsson, Ragnar Bjarnason, Ómar Ragnarsson og Hemmi Gunn, sjálfum sér líkir og í því banastuði sem þeir héldu um árabil. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Sumargleðin kynnir happdrætti árið 1979. MYND/EMIL Sumargleðin á heimavelli sínum árið 1982. MYND/ÞG 34 Lífið 23. desember 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 23. desember 2021 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.