Fréttablaðið - 23.12.2021, Síða 44

Fréttablaðið - 23.12.2021, Síða 44
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is Þetta eru alvöru bænd- ur sem mættu beint úr fjósinu og sungu þetta inn, alveg skælbros- andi. odduraevar@frettabladid.is Reynir Guðmundsson hefur loksins gefið út sína fyrstu plötu sem nefnd er eftir honum. „Þetta er ekkert nema góð tilfinning,“ segir Reynir um Reyni, þar finna má fjölbreytt safn laga sem hann hefur samið á síðustu árum. Reynir er fæddur á Ísafirði og vakti fyrst athygli með ísfirsku hljómsveitinni Ýr þegar hann söng smellinn Kanína. Reynir söng í sautján ár með Saga Class, hinu rómaða húsbandi Hótel Sögu, og undanfarin ár hefur hann starfað með Rúnari Þór og góðum félögum frá Ísafirði í hljómsveitinni Trap. Reynir er hans fyrsta plata en hann verður sjötugur á næsta ári. „Ætli ég hafi nokkuð mátt vera að því,“ segir Reynir hlæjandi spurður hví hann hafi ekki gefið sólóplötu út fyrr. „Núna er maður meira og minna hættur að vinna og þá hefur maður meiri tíma. Það er stórafmæli á næsta ári sko!“ Reynir semur öll lög og texta plötunnar fyrir utan eitt, Frá fyrstu stundu, sem er eftir Þóri Úlfarsson við texta Stefáns Hilmarssonar. „Þetta er ansi gaman því það koma svo margir góðir að þessu. Þetta er bara lands- liðið, það er ekkert öðruvísi.“ Reynir segir lögin á plötunni ólík innbyrðis. „Sumum gæti þótt það skrítið en ég reyni að tína ólíka stíla svona héðan og þaðan svo þetta sé ekki allt alltof líkt og svipað hvert öðru. Það væri annað ef maður væri að gefa út plötu á hverju einasta ári, þá væri maður að þróa þetta smám saman.“ n Reynir loksins kominn út Reynir Guðmundsson Platan VODA tók á sig mynd fyrir röð tilviljana þar sem belgísk söngkona í Noregsferð, bændur úr Þingeyjarsýslu, básúnuleikari og barþjónn urðu til þess að langþráður draumur Rafnars Orra Gunn- arssonar rættist. ninarichter@frettabladid.is Elsta lagið á nýútkominni plötu Rafnars Orra Gunnarssonar, VODA, er ellefu ára en hann segir upptöku- ferlið hafa staðið í um fjögur ár. Verkið er í sex köflum eða lögum og unnið sem hluti af listrænum þríleik sem skiptist í tónlist, vatns- litaverk eftir Dušana Pavlovičová og tónlistarmyndbönd sem nálgast má á vefsíðu Rafnars. Platan var frumf lutt í heild sinni árið 2019 og er nú komin kom út á vínyl og streymisveitum. Stúlknakór Húsavíkur, karlakór- inn Hreimur, belgíska söngkonan Martje Vande Ginste og íslenska söngkonan Esther Talía syngja á plötunni. Fór suður Rafnar er fæddur og uppalinn á Húsavík og tónlist hans því með sterka tengingu norður. „Ég var alltaf nálægt tónlist þegar ég var drengur. Sem unglingur var ég í hljómsveitum með æskuvinunum og við tókum til dæmis þátt í Mús- íktilraunum, sem sveitin Tony the pony,“ segir Rafnar. Eftir framhaldsskólanám á Húsa- vík f lutti Rafnar suður. „Þá fór ég að læra hljóðtækni hjá Stúdíó Sýr- landi,“ segir Rafnar sem vann mikið við upptökur og útsetningar en spilaði og samdi lítið sjálfur. Í því ferli hafi leikgleðin gert vart við sig og hugmyndin að plötunni fæðst. Bændur beint úr fjósinu Í framhaldinu sneri Rafnar sér að kvikmyndagerð en hann hefur starfað í faginu síðustu tíu árin og vinnur í dag á auglýsingastofu í Reykjavík. Hann segir tónlistar- drauminn þó alltaf hafa blundað bak við eyrað. Fyrir fimm árum hafi hann síðan fundið að rétti tíminn væri kominn. „Það birtist mér með svo augljós- um hætti, að nú væri kominn tími til að gera allavega þessu einu plötu, og að maður færi alveg einlægur og heiðarlegur í það,“ segir hann. „Ég fékk karlakórinn Hreim með okkur, sem er eitthvað sem mig hefur langað að gera síðan ég var strákur. Þetta eru alvöru bændur sem mættu beint úr fjósinu og sungu þetta inn, alveg skælbros- andi.“ Draumur að vinna með Esther Leik- og söngkonan Esther Thalía söng einnig lag á plötunni. „Þegar ég heyrði hana fyrst syngja með Bang Gang þegar ég var unglingur í félagsmiðstöðinni á Húsavík sagði ég vinum mínum að einn daginn ætlaði ég að gera lag og fá hana til að syngja með mér. Þetta varð svo allt að veruleika,“ segir hann. Vinir og fagfólk Rafnar segir stóran hóp hafa komið að verkinu og nefnir til dæmis tón- listarmanninn Andra Frey Arnar- son, sem notast við listamanns- nafnið Framfari. „Hann vann þetta náið með mér, útsetti og fylgdi mér frá upphafi til enda, alla leið. Þarna eru mínir bestu vinir, sem hafa fylgt mér í gegnum lífið, plús fagfólk eins og Lára Sóley Jóhanns- dóttir, framkvæmdastjóri Sinfóníu- hljómsveitar Íslands, sem spilar á fiðluna.“ Einar Bjarni Björnsson básúnu- leikari leikur einnig á plötunni. „Hann settist niður á bar þar sem ég var að vinna, og þá kom lag í útvarpinu. Ég sagði vá, hvað brassið er flott í þessu lagi. Hann svaraði, já, ég spilaði það.“ Rafnar segir að í kjöl- farið hafi þeir orðið bestu vinir. Í Noregi í næstu koju Belgíska söngkonan Martje Vande Ginste syngur á plötunni. „Sagan á bak við það er stórkostleg,“ segir Rafnar. „Ég flutti til Noregs 2011 og þegar ég kom þangað var ég með gítar í hendinni og einn bakpoka. Ég fór á farfuglaheimili og ætlaði að vera þar á meðan ég kynntist fólki og fyndi mér heimili. Í næstu koju liggur þessi yndis- lega kona. Við fórum að spjalla og ég komst að því að hún elskaði Ísland en hafði aldrei komið hingað,“ segir Rafnar. „Á kvöldin sat hún með börnunum sínum og horfði á Heima-myndina með Sigur Rós. Hún kenndi börnunum sínum íslensku.“ Martje, sem lærði söng í Noregi, var á ferð um Noreg með kórnum sínum. „Við áttum stórkostleg móment á þessu farfuglaheimili, syngjandi með kórnum,“ segir hann og bætir við að þegar þau kvöddust hafi hann boðið henni að syngja á plötunni, sem hann langaði að gera einn daginn. „Tíu árum seinna hafði ég sam- band og þá var hún aldeilis tilbúin. Ég bauð henni og syni hennar til Íslands og hún söng með okkur þegar við fluttum verkið í heild sinni 2019.“ Ferðalag í djúphafið Að sögn Rafnars er VODA „ferðalag mannsandans í djúphafið og heim“. Hann segir að hugmyndafræði verksins byggist á trausti og f læði sem finni sína leið eins og vatnið. „Öll platan er tekin upp í f læði. Ég studdist hvorki við nótur né reglur. Þetta er bara f læði og svo treystir maður því sem kemur,“ segir hann. „Manneskjur og jörðin eru 70 prósent vatn og þetta er kjarni lífs- ins, mér fannst rétt að byrja þarna. Í vatninu er upphafið og þetta er líka mín fyrsta plata.“ Hann segir vísunina líka koma inn í myndlistarhluta verkanna, en myndlistin er unnin með vatns- litum. „Þetta er allt flæði sem finnur sína leið.“ n Húsvíkingur fann sig í flæði Rafnar studdist ekki við nótur og reglur og lét flæðið ráða. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR 36 Lífið 23. desember 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.