Strandapósturinn - 01.06.1971, Blaðsíða 83
Og nýr og fagur dagur renna upp á himni lífs míns. Og annað
hitt: að þótt ég e.t.v. hefði ekki heyrt öll orð hans, myndu
þau koma fram allt að einu. Við þessi orð komst ég aftur til með-
vitundar, en var svo lémagna, að ég gat varla hreyft mig fyrst um
sinn. Var ég þá ein í heiðinni og meira áliðið kvöld en vant
var. Bældi ég féð að venju og gekk síðan til bæjar. Var þá Olaf-
ur húsbóndi minn á förum að vitja um mig og opnaði lofts-
hlerann, þegar ég var að koma. Gekk ég upp í baðstofuna, og
hafði þar ljós verið tendrað. Þegar ég sá það, brá mér svo
við, að ég ætlaði að æða niður af loftinu, því að mér fannst ég
ekki þola birtuna. Steig þá húsbóndinn á hlerann, en ég fleygði
mér upp í rúmið mitt, sem var beint á móti uppgöngunni, og
féll í grát. Mamma sat þama hjá mér, og varð henni mjög bilt
við þetta. Bað hún guð að hjálpa sér og spurði, hvort ég væri veik,
en ég anzaði því engu. Þá segir gömul kona, er Guðrún hét, sem
sat á næsta rúmi: — Það hefir eitthvað komið fyrir hana. I
því kom húsfreyjan fram í dyr herbergisins, sem var í öðrum
enda baðstofunnar, og mælti: — Hvað ætli hafi komið fyrir
hana? Ætli vanti ekki úr hjásetunni? — Það er ólíklegt, segir
húsbóndinn, og óvanalegt. Mun einhver önnur ástæða vera þessa
valdandi. — Allt þetta gjörðist svo fljótt, að ég var ekki búin
að átta mig, þegar ég heyrði orð húsfreyju. Þá festi ég það heit í
huga mínum, að ég skyldi aldrei segja neinum manni frá þessum
atburði. Það heit hélt ég um mörg ár, og hefði aldrei leyst það, ef
heilsan hefði ekki bilað. En aldrei sagði ég mömmu frá því, og
dó hún án þess að vita það. Eftir þetta leið mér oft illa og
var síhrædd, hvar sem ég fór. Tvo daga lá ég í rúminu eftir
þetta; svo fór ég að jafna mig, en líðan mín var ekki góð vegna
óttans, sem alltaf kvaldi mig. A Bassastöðum var ég 2 ár. Svo var
ég 6 ár á næsta bæ, sem heitir Bólstaður og er endabær í Kald-
rananesshreppi. Liggur þaðan leið vfir Trékyllisheiði, norður í
Reykjarfjörð. Þar bjó maður, sem Bjarni hét, og kona hans Björg.
(Þau munu vera foreldrar Lofts, sem nú býr á Bólstað og er
kvæntur Pálfríði dóttur Áskels Pálssonar bónda á Bassastöðum.
-J- ö. J.).
81