Fréttablaðið - 31.12.2021, Blaðsíða 4
Það eru ekki áramót
án stjörnuljósa.
Davíð Már Bjarnason,
upplýsingafulltrúi Landsbjargar
Við höfum einnig
óskað eftir nánari
upplýsingum um slys
frá almenningi, þegar
okkur hafa borist
fregnir af slysum, til
dæmis í gegnum
fjölmiðla.
Þú færð Hallveigu á næsta
flugeldamarkaði björgunarsveitanna
skot
65
SEK
4
5
4,5
100
kg
Skemmtileg terta með ákafri
skothríð frá fyrstu sekúntu.
Fallegar litríkar sprengingar
sem lýsa upp himinninn og
endar auðvitað með flottu
lokaspili sem engan svíkur.
Hetjur faraldursins hugsa yfirleitt um
þá sem eru minnimáttar. MYND/LSH
benediktboas@frettabladid.is
SAMFÉLAG Alls völdu 243 starfs
menn Landspítalans að gefa jóla
gjöfina sína til Mæðrastyrksnefndar
þessi jólin en starfsmenn gátu valið
um nokkrar gjafir. Ein var að gefa
Mæðrastyrksnefnd sjö þúsund
krónur og fékk því nefndin 1,7
milljónir og þúsund krónum betur.
Þetta kemur fram í svari spítalans
við fyrirspurn Fréttablaðsins.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Mæðrastyrksnefnd nýtur góðs af
hetjum faraldursins því í fyrra fékk
starfsfólkið umdeilt sjö þúsund
króna gjafabréf í skóbúð sem um
eitt hundrað manns gáfu til nefnd
arinnar.
Læknar af lyf lækningasviði,
ásamt mörgum f leirum, söfnuðu
jólagjöfum spítalans saman og
færðu Mæðrastyrksnefnd. Þetta
voru þó ekki einu starfsmenn Land
spítalans sem létu gott af sér leiða í
fyrra því nokkrir starfsmenn á mót
tökugeðdeildinni gáfu inneign sína
til Solaris – hjálparsamtaka fyrir
hælisleitendur og flóttafólk.
Í ár gátu starfsmenn spítalans
valið milli fjórtán þúsund króna
gjafabréfs hjá Sky Lagoon, níu
þúsund króna gjafabréfs hjá Sæl
kerabúðinni, tólf þúsund króna
gjafabréfs hjá Cintamani, 12.475
króna gjafabréfs hjá FlyOver Ice
land, tólf þúsund króna gjafa bréfs
hjá Bestseller eða 14.990 króna
gjafabréfs hjá Zipline – Ævintýris í
Vík í Mýrdal.
Ekki kom fram frekari sundurlið
un á hvað starfsfólki leist best á en
samkvæmt vefsíðu spítalans starfa
um sex þúsund manns í rúmlega
fjögur þúsund og fimm hundruð
stöðugildum. n
Á þriðja hundrað starfsmanna gáfu
Mæðrastyrksnefnd jólagjöfina sína
Svava Gerður
Ingimundar-
dóttir, lögfræð-
ingur hjá HMS
Vegna anna á bráðamóttöku höfuðborgarsvæðisins hefur ekki náðst að halda skrá yfir slys af völdum skotelda.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Engin heildartölfræði er til
um skráningu slysa af völdum
vöru hér á landi. Skoteldar
falla þar undir, en vegna anna
á bráðamóttöku höfuð
borgarsvæðisins hefur ekki
verið hægt að safna þeim
upplýsingum saman. Lög
fræðingur hjá Húsnæðis og
mannvirkjastofnun telur
mögulegt að koma í veg fyrir
slys ef haldið er betur utan
um skráningu þeirra.
ninarichter@frettabladid.is
SLYSAVARNIR Í 13. grein reglugerðar
um skotelda frá 2017 segir um til
kynningarskyldu að bráðamóttöku
viðkomandi sjúkrahúss beri að til
kynna slys af völdum skotelds þegar
í stað til lögreglu og Neytendastofu.
Sömuleiðis beri sjúkrahúsinu
skylda til að tilkynna Neytenda
stofu þegar gallaðra skotelda verður
vart í umferð.
Svava G. Ingimundardóttir er lög
fræðingur hjá markaðseftirliti Hús
næðis og mannvirkjastofnunar
(HMS), sem tekið hefur við þessum
málaflokki af Neytendastofu eftir
lagabreytingu um stjórnsýslu neyt
endamála síðan í byrjun október.
Hún segir stofnunina ekki hafa
aðgang að neinni samantekt eða
heildartölfræði um slys af völdum
skotelda.
„Í gegnum árin hefur verið óskað
eftir upplýsingum frá bráðamót
töku vegna slysa af völdum skot
elda. Vegna anna á bráðamóttöku
á höfuðborgarsvæðinu höfum við
fengið þau svör að þau hafi ekki haft
tök á því að taka slíkar upplýsingar
saman,“ segir Svava.
Hún segir HMS hafa fengið upp
lýsingar um slys frá öðrum heil
brigðisstofnunum en stundum hafi
vantað upplýsingar um skoteldinn
og gerð hans.
Engin tölfræði um slys vegna skotelda
„Við höfum einnig óskað eftir
nánari upplýsingum um slys frá
almenningi þegar okkur hafa borist
fregnir af slysum, til dæmis í gegn
um fjölmiðla,“ segir hún.
Stofnunin þarf þess vegna að
reiða sig á ábendingar frá fólki.
Svava nefnir sem dæmi að eitt árið
hafi verið nokkuð um slys vegna
handblysa. „Síðan kom í ljós vegna
ábendinga, bæði frá heilbrigðis
stofnun og einstaklingum, að um
var að ræða ákveðna tegund af
handblysum sem í kjölfarið var
tekin úr sölu.“ Hún segir því ljóst að
slíkar ábendingar geti skipt sköpum
við að koma í veg fyrir frekari slys. n
Terturnar eru vinsælar sem fyrr.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
kristinnhaukur@frettabladid.is
SAMFÉLAG Flugeldasala björgunar
sveitanna fer vel af stað samkvæmt
Davíð Má Bjarnasyni, upplýsinga
fulltrúa Landsbjargar, en f lestir
kaupa f lugelda tvo síðustu daga
ársins.
Flugeldasalan hófst á þriðjudag
og lýkur á flestum stöðum klukkan
16 í dag. Undanfarin ár hafa tekjur
félaganna verið um 700 til 800 millj
ónir, eða um 60 prósent af heildar
tekjunum.
„Sölufólkið okkar er ánægt með
viðtökurnar og landsmenn hafa
greinilega tekið það til sín að mæta
tímanlega,“ segir Davíð en salan
tekur vitaskuld mið af sóttvarna
ráðstöfunum. „Í fyrra tókum við
það upp að nota netverslun og
mörgum finnst það þægilegra.“
Davíð segir terturnar hafa verið
vinsælastar undanfarin ár. Til að
mynda hinar samsettu vígatertur,
sem séu í raun eins og f lugelda
sýning.
„Stjörnuljósin eru líka svakalega
vinsæl vara. Það eru ekki áramót án
stjörnuljósa,“ segir hann.
Fyrir þremur árum hófu björg
unarsveitirnar að selja svokölluð
rótarskot í samstarfi við Skóg
ræktarfélag Íslands, það er gróður
sett tré í áramótaskógi Landsbjargar
við Þorlákshöfn. Þau er bæði hægt
að kaupa í netverslun og á sölu
stöðum, og Davíð segir marga hafa
keypt rótarskot með flugeldunum.
„Með þessu er bæði verið að styðja
við björgunarstarfið og umhverfið,“
segir hann. n
Vígaterturnar vinsælastar og margir kaupa rótarskot líka
benediktboas@frettabladid.is
FJÁRLÖG Alma D. Möller land
læknir sendi bréf á fjárlaganefnd á
mánudag til að ítreka ósk um fjár
heimild vegna rannsóknarinnar
Heilsa og líðan Íslendinga 2022.
Fer Alma þess á leit við nefndina
að hún hækki fjárheimild um 20
milljónir til að tryggja fjármögnun
verkefnisins í samræmi við upp
runalega beiðni til heilbrigðisráðu
neytisins.
Segir Alma í bréfinu að um mikil
væga rannsókn sé að ræða sem hafi
fest sig í sessi sem mikilvæg upp
spretta upplýsinga um heilsufar,
líðan, lífsgæði og lifnaðarhætti full
orðinna Íslendinga. Ítrekar Alma
beiðni sína enda hafi nefndin ekki
gert breytingar á fjárlagafrumvarp
inu þess efnis að veita verkefninu
fjárheimild. n
Hvorki heilsa
né líðan
rannsökuð
Landlæknir biðlar til
fjárlaganefndar um fé
fyrir rannsókninni.
Alma Möller,
landlæknir
4 Fréttir 31. desember 2021 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ