Fréttablaðið - 31.12.2021, Qupperneq 6
Íslendingar eiga að
vera ófeimnir við að
taka þátt í atvinnu-
rekstri erlendis.
Þorsteinn Már Baldvinsson,
forstjóri Samherja Holding ehf.
Hótel er
áformað
á fjallinu.
gar@frettabladid.is
FERÐAÞJÓNUSTA Áform um kláf upp
Eyrarfjall á Ísafirði og veitingastað
og hótel uppi á fjallinu þurfa að fara
í mat á umhverfisáhrifum. Þetta er
niðurstaða úrskurðarnefndar um
umhverfis- og auðlindamál.
Með niðurstöðu sinni staðfestir
úrskurðarnefndin ákvörðun Skipu-
lagsstofnunar um umhverfismat
vegna áforma Eyrarkláfs ehf. Lúta
þau að því að leggja tvo kláfa upp
á Eyrarfjall með byrjunarstöð í
þéttbýlinu á Ísafirði. Þá er fyrir-
hugað að byggja veitingahús ofan
á Eyrarfjalli og síðan sjálf bærar
gistieiningar eða hótel.
Skipulagsstofnun sagði um að
ræða nokkuð umfangsmiklar fram-
kvæmdir.
„Samanstandi þær af byggingu
byrjunarstöðvar við þéttbýlis-
mörk á Ísafirði, uppsetningu um
1.400 metra langra kláfvíra og
burðarmasturs um miðja vegu
upp Eyrarfjall og síðan byggingu
endastöðvar, veitingasalar og hót-
Kláfur og hótel á Eyrarfjalli ofan Ísafjarðar í umhverfismat
Veðurstofan óttast að skíðafólk valdi snjóflóðum en
Eyrarkláfur segist ekki flytja skíðafólk. MYND/AÐSEND
els fyrir um 60 til 70 gesti á toppi
fjallsins,“ segir í umfjöllun úrskurð-
arnefndarinnar.
Þá eigi að framkvæma á órösk-
uðu svæði í hlíðum Eyrarfjalls
og uppi á fjallinu í mikilli nálægð
við þéttbýlið á Ísafirði. „Bæði
Náttúrufræðistofnun Íslands og
Umhverfisstofnun telji að helstu
umhverfisáhrifin verði að fyrirhug-
uð mannvirki muni breyta ásýnd
Eyrarhlíðar og Eyrarfjalls séð víða
að og þannig leiða til varanlegra
breytinga á landslagi.“ n
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri
Samherja Holding ehf.
benediktboas@frettabladid.is
VIÐSKIPTI Hagnaður af rekstri
alþjóðlega sjávarútvegsfyrirtækis-
ins Samherja Holding ehf. á árinu
2020 nam 27,4 milljónum evra eða
um fjórum milljörðum íslenskra
króna samkvæmt ársreikningi.
Ársreikningar samsteypunnar voru
samþykktir á aðalfundi félagsins á
miðvikudag.
Samkvæmt Samherja hefur ekki
enn tekist að sannreyna nægilega
vel gögn vegna útgerðar í Namibíu
sem nú hafi verið hætt. Mikið hefur
verið fjallað um téða útgerð eftir að
Kveikur hóf umfjöllun um hana árið
2019.
Samherji bendir á að enn ríki
óvissa um málarekstur vegna fjár-
hagslegra uppgjöra sem tengjast
rekstrinum í Namibíu og af þeim
ástæðum gerði stjórnin fyrirvara
um uppgjör þess félags sem annað-
ist starfsemina þar í landi í skýrslu
sinni. Sama fyrirvara gera endur-
skoðendur félagsins í áritun sinni.
Að öðru leyti er áritun á reikning-
ana fyrirvaralaus. n
Ekki enn tekist að
sannreyna gögn
vegna útgerðar
benediktboas@frettabladid.is
SAMFÉLAG Alls verður 100 milljón-
um króna varið til að hækka lista-
mannalaun. Á næsta ári mun aukn-
ing til Myndlistasjóðs nema 43,2
milljónum, framlag til sjóðs vegna
starfsemi atvinnuleikhópa hækkar
um 42,5 milljónir og aukning til
tónlistarsjóða nemur 18 milljónum.
Alls munu framlög til verkefna-
sjóða og styrkja á sviði menningar,
að meðtöldum launasjóðum lista-
manna, nema um 3,3 milljörðum
króna á fjárlögum næsta árs. Þetta
kemur fram í tilkynningu á vef
Stjórnarráðsins.
Listamannalaun eru greidd mán-
aðarlega en þeir sem fá starfslaun í
sex mánuði eða lengur skulu ekki
gegna fullu starfi meðan á starfs-
launatímanum stendur, samkvæmt
reglum. Umsóknarfrestur var til
4. október. Listamannalaunin námu
409.580 krónum á mánuði sam-
kvæmt fjárlögum 2021.
Hundrað milljónum varið í að hækka listamannalaun
Lilja Alfreðs-
dóttir menning-
armálaráðherra
Fjöldi umsækjenda í ár var 1.440,
1.305 einstaklingar og 135 sviðs-
listahópar með um 940 listamönn-
um. Sótt var um 13.675 mánuði. Alls
fengu 308 listamenn og 26 sviðlista-
hópar úthlutun.
Á næsta ári munu menningar-
málin meðal annars fá nýtt heimili í
nýju ráðuneyti, ný myndlistarstefna
fyrir Ísland verður kynnt, vinna við
nýja tónlistarstefnu hefjast og ný
sviðslistamiðstöð hefja starfsemi
sína.
„Fjárframlög til sjóða á sviði
menningar halda áfram að vaxa
sem mun ótvírætt skila sér til baka
til samfélagsins. Aukningin er í takt
við stjórnarsáttmálann, þar sem
tekið er skýrt fram að við ætlum að
tryggja undirstöður íslensks menn-
ingar- og listalífs. Heimsfaraldurinn
hefur haft óhjákvæmilegar afleið-
ingar fyrir menninguna okkar, en
við ætlum að halda áfram að hlúa
að henni,“ segir Lilja Alfreðsdóttir
menningarmálaráðherra. n
Kúba
M
exíkó
Bandaríkin
Mexíkóflói
Miami
Orlando
Havana
Houston
Bandarísk flugfélög hafa gert
athugasemdir við umsókn
dótturfélags Icelandair um
flug milli Bandaríkjanna og
Kúbu. Ferðirnar verða 170 á
fjögurra mánaða tímabili.
kristinnhaukur@frettabladid.is
VIÐSKIPTI Þrjú bandarísk flugfélög
hafa mótmælt því að Icelandair fái
leyfi til að fljúga með farþega milli
Bandaríkjanna og Kúbu og saka
flugfélagið um tækifærismennsku.
Þau telja að Icelandair muni ekki
byggja upp þessar f lugleiðir til
framtíðar eins og þau hyggist gera.
Í september var greint frá því að
Loftleiðir, dótturfélag Icelandair,
hefði samið um leiguflug fyrir félag-
ið Anmart Air, alls þrettán ferðir
milli Orlandoborgar í Flórdía-fylki
og Havana, höfuðborgar Kúbu. Nú
á hins vegar að bæta í og fljúga alls
136 ferðir, fram og til baka, milli
Havana og Miami á Flórída, sem og
17 ferðir til Orlando og 17 til Hous-
ton í Texas-fylki.
Flugfélögin iAero Airways, World
Atlantic Airlines og GLOBALX, sem
öll hafa sinnt Kúbuflugi, hafa sent
inn athugasemdir til bandarísku
samgöngustofnunarinnar, DOT,
vegna leyfisveitingar Icelandair.
Í athugasemd iAero segir að inn-
koma Icelandair mun hamla banda-
rískum f lugfélögum sem séu að
byggja upp flugleiðirnar milli Kúbu
og Bandaríkjanna á nýjan leik.
Félagið hafi sjálft nógu margar vélar
til að leigja Anmart fyrir flugið.
Einnig að Icelandair sé farið að
reiða sig í of miklum mæli á f lug
undir hinu svokallaða „sjöunda
frelsi“. En það er rétturinn sem ríki
veita f lugfélögum í þriðja ríki til
þess að sinna millilandaflugi fyrir
sig. Þetta sé 20 prósent af starfsem-
inni nú.
„Aðalástæða Icelandair fyrir
umsóknum um 170 flugferðir yfir
f jögurra mánaða tímabil er að
þrengja efnahagslega að banda-
rískum flugfélögum,“ segir í athuga-
semd iAero. Alls eru f lugferðirnar
milli Bandaríkjanna og Kúbu 3.600
fram og til baka á ári.
Bandarísk félög saka Icelandair um
tækifærismennsku í nýrri Kúbudeilu
Dótturfélag Icelandair hefur samið um að fljúga þrettán ferðir milli Orlandoborgar og Havana. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
„Anmart Superior Travel valdi
Loftleiðir einfaldlega sem sam-
starfsaðila í þessu f lugi og því
kemur gagnrýni bandarísku f lug-
félaganna okkur á óvart,“ segir Árni
Hermannsson, framkvæmdastjóri
Loftleiða. „Á meðal ástæðna sem
Anmart hefur fyrir valinu er að
Loftleiðir geta boðið upp á stærri
f lugvélar með meira farangurs-
rými, en algengt er að fólk taki
mikinn farangur með sér á þessari
f lugleið. Fjöldi f lugfélaga sinnir
f lugi á milli tveggja annarra landa
en heimalandsins og á það sérstak-
lega við um f lugfélög sem sinna
leiguflugi.“
Segir hann Loftleiðir áður hafa
skipulagt verkefni í leiguflugi fyrir
bandarískar ferðaskrifstofur og
það gengið vel. Það er frá borg-
unum Detroit og Boston til áfanga-
staða í Karíbahafinu.
Í yfirlýsingu sendi Icelandair
einnig frá sér að tölur iAero um
hlutfall „sjöunda-frelsis f lugs“
væru bjagaðar í ljósi faraldursins. Í
vanalegu árferði sé fjöldi f lugferða
Icelandair milli Íslands og Banda-
ríkjanna mun meiri. n
Anmart Superior
Travel valdi Loftleiðir
einfaldlega sem sam-
starfsaðila í þessu flugi
og því kemur gagnrýni
bandarísku flugfélag-
anna okkur á óvart.
Árni Hermanns-
son, fram-
kvæmdastjóri
Loftleiða
6 Fréttir 31. desember 2021 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ